Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.05.2011, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 24.05.2011, Qupperneq 14
14 24. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Í frétt á mbl.is síðdegis 30. apríl segir: „Hersveitir NATO hafa varpað sprengjum á stjórnarbyggingu í Trípólí þar sem m.a. ríkissjónvarpið er til húsa. Yfirvöld í Líbíu segja að tilgangur loftárásarinnar hafi verið að drepa Gaddafi þegar hann var að ávarpa þjóðina í ríkissjónvarpinu.“ Í sömu frétt er sagt að NATO hafi hafnað boði Gaddafis um vopnahlé. Síðla kvölds bárust síðan fréttir af því að flugvélar NATO hefðu gert árás á hús Gaddafis í Trípólí þá um kvöldið. Sonur hans og þrjú ung barnabörn fórust. Í húsinu voru einnig Gaddafi sjálfur, eigin- kona hans og fleiri úr fjölskyld- unni. Um þetta þarf í sjálfu sér ekki að hafa fleiri orð. Hér var um hreina morðárás að ræða og barnamorð í ofanálag. Í fljótu bragði verður ekki annað séð en þetta hafi verið stríðs- glæpur. NATO tók þann 25. mars yfir hernaðar- gerðir í Líbíu sem höfðu að forsendu ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1973 frá 17. mars. Ályktunin hefur verið umdeild enda sátu fimm ríki hjá. Með henni var sett á loftferðabann yfir Líbíu. Jafnframt er tekið fram að hún miði að verndun almennra borgara og lausn átakanna en ekki að knýja fram stjórnarskipti. Árásir á sjónvarpsstöð og heimili og önnur borgaraleg skotmörk eru því langt utan við það sem þessi ályktun heimilar. Aðgerðir NATO hafa líklega frá upphafi farið út fyrir ramma ályktunarinnar og sannanlega þessar aðgerðir. Margir hafa gagnrýnt samþykki íslensku ríkis- stjórnarinnar við aðgerðir NATO. Forystumenn Vinstrihreyfingar- innar græns framboðs hafa sagt að utanríkisráðherra hafi veitt þetta samþykki án þess að leita álits VG. Í ályktun stjórnar VG 25. mars segir: „Stjórn Vinstrihreyf- ingarinnar græns framboðs for- dæmir allar aðgerðir í Líbíu sem ekki eru í samræmi við samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.“ Á fundi sínum 20.-21. maí skerpti flokks- ráð VG á þessu með ályktun þar sem segir: „Flokksráð VG fordæmir loftárásir NATO á Líbíu og skorar á þingmenn VG að bera fram á Alþingi þingsályktunartillögu þar að lútandi,“ en á sömu leið ályktaði kjördæmis- ráð flokksins í Suðurkjördæmi á fundi sinum 7. maí. HALLDÓR Hér var um hreina morðárás að ræða og barnamorð í ofanálag. Samþykki á að draga til baka Hernaður Einar Ólafsson bókavörður Styrmir og lýðræðið Ræða, sem Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, hélt nýverið á fundi Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins og birtist síðar á netinu, hefur vakið nokkra athygli. Í ræðunni segir Styrmir flokkinn þurfa að horfast í augu við það að íslenskt þjóðfélag og raunar flokkurinn einnig hafi verið í klóm sérhagsmuna. Áhrifaríkasta leiðin til að brjóta þá sérhags- muni á bak aftur sé að taka upp beint lýðræði þar sem þjóð- in sjálf taki ákvarðanir um meginmál. Þá segir Styrmir flokkinn einnig þurfa að aðhyllast beint lýðræði og því eigi að kjósa formann í almennri kosningu allra skráðra flokksmanna. Hvað sagði Bjarni aftur? Styrmir segir að lokum að með þessum hugmyndum sé hann að boða byltingu. Hann er þó varla fyrstur til að vekja máls á hugmyndum í þessum anda innan Sjálf- stæðisflokksins. Formaðurinn sjálfur, Bjarni Benediktsson, helgaði umræðunni um beint lýðræði kafla í lands- fundarræðu sinni sum- arið 2010. Hann sagði flokkinn styðja þann rétt þjóðarinnar að fá að taka þátt í stórum ákvörðunum og taldi tíma til kominn að opna formannskjör flokksins frekar. Nánar tiltekið ætti að kjósa formann í almennri kosningu allra skráðra flokksmanna. Landeyjahöfn í lagi Eldgosið í Grímsvötnum hefur sett samgöngur á Suðurlandi úr skorðum. Þjóðvegi 1 hefur verið lokað, innan- landsflug liggur niðri auk þess sem millilandaflug er í mýflugumynd. Eitt samgöngumannvirki lætur eldgosið þó ekki á sig fá. Landeyjahöfn er nefnilega opin aldrei þessu vant. magnusl@frettabladid.is Fræðslumynd um krabbamein í ristli og endaþarmi sýnd á RÚV þriðjudaginn 24. maí kl. 21:25 „Þetta er svo lúmskt“ Krabbameinsfélag Reykjavíkur, Ristilfélagið og Stómasamtök Íslands. Auglýsingin er gerð í samvinnu við Roche og Merck Serono. Krabbameinsfélagið E ldgosið í Grímsvötnum minnir okkur enn og aftur á að við búum í landi þar sem náttúruöflin eru óútreikn- anleg og geta hvenær sem er gripið harkalega inn í okkar daglega líf. Náttúran sýnir mátt sinn og megin og manneskjurnar verða um leið ósköp smáar frammi fyrir þeim ógnarkrafti sem í henni býr. Saga landsins sýnir að við getum hvenær sem er búizt við enn ógurlegri hamförum. Hins vegar erum við líka margfalt betur í stakk búin að takast á við náttúruhamfarir en fyrr á öldum, þegar þjóðin var vanbúin og varnarlaus gagn- vart afleiðingum eldgosa. Almannavarnakerfið, sem byggt hefur verið upp á undan- förnum áratugum, hefur virkað vel að þessu sinni eins og síð- ustu skipti sem hefur gosið á Íslandi. Meðal annars vegna sam- stillts átaks heimamanna, björgunarsveita, lögreglu og annarra hefur enn enginn slasazt eða veikzt af völdum gossins og mest af búpeningi hefur komizt í skjól. Ýmis áhrif eiga eftir að koma fram síðar, til dæmis eru menn nú farnir að átta sig betur á sálrænum áföllum, sem fylgja náttúruhamförum. Áhrifin á efnahagslífið – á svæðinu í kringum eldstöðina, á Íslandi og raunar víðar um heiminn – geta orðið umtalsverð. Lífsafkomu bænda í sveitunum í nálægð við Vatnajökul er ógnað. Ferðaþjónustan, sem bjóst við metsumri, getur misst spón úr aski sínum. Ef fram fer sem horfir, verða öðru sinni á rúmu ári verulegar truflanir á alþjóðlegri flugumferð vegna eldgoss á Íslandi. Eins og við höfum séð, geta bæði falizt ógnir og tækifæri í þeirri athygli sem slíkt vekur á landinu. Nú búa ferðaþjónustan og ferðamálayfirvöld að reynslunni frá því í fyrra og verða að vera reiðubúin að grípa aftur til sérstakra aðgerða til að miðla upplýsingum og reyna að snúa stöðunni sér í hag. Mörgum þykir nóg komið af vondum fréttum á Íslandi. Nátt- úruhamfarir tvö ár í röð, eftir tvö verstu árin í efnahagslífinu um langan aldur, eru sannarlega ekki góð tíðindi. Reynslan af gosinu í Eyjafjallajökli í fyrra sýnir okkur hins vegar að hægt er að vinna vel úr vondri stöðu og gera það til- tölulega hratt. Í uppbyggingarstarfinu hefur þjóðin staðið ein- huga að baki þeim sem urðu fyrir tjóni í gosinu og margir hafa lagt sitt af mörkum við endurreisnina. Það er reyndar munurinn á viðbrögðunum við hinum vondu fréttum, af bankahruninu og öllu sem því fylgdi annars vegar og af náttúruhamförunum hins vegar; í síðara tilvikinu stendur þjóðin saman sem einn maður. Enda er erfitt að finna sökudólga á meðal náttúruaflanna. Engu að síður hljótum við að velta því fyrir okkur hvort okkur geti lærzt með tímanum að bregðast jafn fagmannlega og fumlaust við efnahagslegum áföllum og við náttúruhamförum. Náttúruöflin sýna mátt sinn og megin. Vondar fréttir, samstillt viðbrögð Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.