Fréttablaðið - 24.05.2011, Qupperneq 17
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Á
rni Þór Árnason, fram-
kvæmdastjóri og sjó-
sundkappi, ætlar að
verða annar Íslending-
urinn sem synt hefur yfir Ermar-
sund. „Benedikt Hjartarson klár-
aði þetta sund árið 2008 og ég
hef ekki verið látinn vera síðan,“
segir Árni Þór glettinn.
Fjórir Íslendingar hafa frá upp-
hafi reynt að synda yfir Ermar-
sund en einungis einn hefur náð
takmarki sínu, Benedikt Hjartar-
son. Sundið er 32 kílómetrar og
einungis tekst um 20 prósentum
að komast alla leið yfir.
Ferð Árna Þórs hefst 1. júlí
þegar hann heldur til Dover í Eng-
landi. „Þá tekur við vika þar sem
ég verð að synda á æfingasvæði í
höfninni þar,“ segir Árni Þór, sem
byrjaði að stunda sjósund fyrir
um átta árum en ákvað síðasta
haust að synda yfir Ermarsund.
„Ég er búinn að vera í mjög stífri
þjálfun hjá rússneskum þjálfara,
Vadim Forafonov, í sjö mánuði.
Hann hefur breytt allri minni
sundkunnáttu.“
Að sögn Árna Þórs er markmið
hans að reyna við svokölluð 7Seas,
sem eru sjö erfiðustu sundleiðir
í heimi, Ermarsundið er þeirra
á meðal. „Mér fannst eins og ég
yrði að takast á við stóru raun-
ina. Svo er ekki útilokað, ef þetta
gengur vel, að ég haldi áfram, það
er af nógu að taka úti um allan
heim.“ martaf@frettabladid.is
FRETTABLAÐIÐ/GVA
Árni Þór Árnason ætlar að verða annar sjósundkappi Íslands sem syndir yfir Ermarsund.
Reynir við
Ermarsundið
Norræna brjóstagjafarráðstefnan verður haldin á
Grand Hóteli dagana 31. maí til 1. júní. Þetta er í fjórða
sinn sem ráðstefnan er haldin en að henni standa
auk Landlæknisembættisins, Félag brjóstagjafarráð-
gjafa á Íslandi, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og
heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkum koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin sjálfstæð Apótek selja einnig Proactiv Solution:
REYKJAVÍKURAPÓTEK, Seljavegi 2 // LYFJABORG APÓTEK,
Borgartúni 28 // GARÐSAPÓTEK, Sogavegi 108
URÐARAPÓTEK, Grafarholti // RIMA APÓTEK, Grafarvogi
APÓTEK HAFNARFJARÐAR, Tjarnarvöllum 11
ÁRBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 115 // LYFJAVER Suðurlandsbr. 22
00000
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA SKÚBB
Meiri Vísir.