Fréttablaðið - 24.05.2011, Blaðsíða 34
24. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
KOLBEINN SIGÞÓRSSON hefur verið undanfarna daga og vikur verið sagður á leið til hollenska
stórliðsins Ajax. Hann mun hafa komist að samkomulagi um kaup og kjör en félag hans í Hollandi, AZ
Alkmaar, vill fá fimm milljónir evra fyrir sinn mann. Danny Blind, tæknistjóri Ajax, sagði við hollenska fjöl-
miðla það vera of mikið fyrir Kolbein en Ajax er sagt hafa lagt fram tilboð upp á 3,5 milljónir.
FÓTBOLTI Ísak Björgvin Gylfa-
son, átján ára markvörður úr 2.
flokki Fylkis, mun að öllum lík-
indum standa í marki Fylkis þegar
liðið mætir bikarmeisturum FH í
32-liða úrslitum Valitor-bikar-
keppninnar annað kvöld. Fjalar
Þorgeirsson verður í banni og
Bjarni Þórður Halldórsson er enn
meiddur.
Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylk-
is, segir að félagið hafi ekki skoð-
að þann möguleika að fá markvörð
á neyðarláni til félagsins þar sem
búið er að loka fyrir félagaskipta-
gluggann.
„Það gæti orðið ofan á að hann
muni spila þennan leik,“ segir
Ólafur um Ísak Björgvin. „Eins
og er þá er útlit fyrir það. Þetta er
strákur sem hefur verið að standa
sig vel með 2. flokki og um að gera
að láta á það reyna. Einhvern tím-
ann verður að nota þessa drengi,“
segir hann í léttum dúr.
Bjarni Þórður er með brotinn
fingur og er enn í gifsi. Það kemur
því ekki til greina að hann spili
leikinn gegn FH.
Fylkismenn fengu tvö rauð
spjöld í leiknum gegn Breiðabliki
á sunnudagskvöldið. Fyrst Valur
Fannar Gíslason og svo Fjalar
stuttu síðar. Þá meiddist Albert
Brynjar Ingason og óvíst hvort
hann verður með gegn FH. „Það
verður að koma í ljós þegar líður
á vikuna,“ segir Ólafur, „en ég er
vongóður um að Kjartan Ágúst
Breiðdal og Baldur Bett séu að
komast á lappirnar, sem og Rúrik
Þorfinnsson. - esá
Markvarðavandræði Fylkis fyrir leikinn gegn FH:
Fylkismenn líklega
með táning í markinu
VERÐUR Í BANNI Fjalar Þorgeirsson,
markvörður Fylkis, má ekki spila
með liðinu í bikarleiknum gegn FH á
fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Tryggvi Guðmundsson ætlar að gera
allt til þess að bæta markamet Inga Björns
Albertssonar í efstu deild karla en heppnin
hefur ekki alveg fylgt honum í tveimur fyrstu
útileikjum Pepsi-deildarinnar. Hann fékk
rautt spjald eftir 44 mínútur í þeim fyrsta á
móti Val og svo var hann fluttur á sjúkrahús í
hálfleik í leiknum á móti Keflavík í fyrrakvöld
eftir að hafa fengið slæmt högg á kinnbeinið.
„Þetta er búin að vera mjög skrautleg byrj-
un hjá mér og ég var að átta mig á því í gær að
ég er í raun bara búinn að spila þrjá leiki.Ég
er búinn að spila tvo fyrstu leikina og svo bara
hálfleik á móti Val og hálfleik á móti Kefla-
vík. Ég hef í raun einungis spilað þrjá leiki af
fimm og það er hundfúlt. Maður þarf að spila
leiki til þess að skora mörk,“ segir Tryggvi
sem skoraði sitt 118. mark í efstu deild á móti
Keflavík. Hann vantar nú átta mörk til að
jafna markamet Inga Björns Albertssonar.
„Þetta var svakalegt högg en ég var ótrú-
lega stoltur af því að ég vann skallaeinvígið.
175 cm á móti Halla Guðmunds sem er mikill
skallamaður. Ég var mjög ánægður með það.
Halli koma þarna aðeins of seint og ætlaði
að skalla boltann í burtu af alefli en skallaði
bara mig í burtu í staðinn,“ segir Tryggvi sem
er með þrjú brot í andlitinu, tvö í kinnbein-
inu þar sem höggið kom og svo aðra sprungu
undir auganu. Hann þarf að fara í aðgerð til
þess að rétta kinnbeinið en sú aðgerð hefur
þó ekki mikil áhrif á það hversu lengi hann
verður frá.
„Ég sá stjörnur í byrjun og leið ekkert alltof
vel strax en þetta var ekkert svo slæmt á eftir.
Menn vildu ekki taka neina áhættu og það var
brunað með mig í sjúkrabíl beint í Fossvog-
inn,“ segir Tryggvi en hann fylgdist vel með
félögum sínum í Eyjaliðinu sem tókst að landa
sigrinum og komast upp í annað sæti deildar-
innar.
„Ég var í gemsanum eiginlega allan tímann
á leiðinni til Reykjavíkur og heyrði hvernig
þetta gekk fyrir sig. Ég var sjálfsögðu ánægð-
ur með að strákarnir kláruðu þetta,“ segir
Tryggvi.
Þegar á sjúkrahúsið var komið fór Tryggvi
í myndatöku og hann fékk síðan endanlegar
niðurstöður eftir frekari skoðun í gærmorgun.
„Það eina sem ég hugsaði um þegar læknarnir
voru að tala við mig: Hvað verð ég lengi frá,
hvað verð ég lengi frá? Mér var alveg sama
um þetta blessaða andlit á mér,“ segir Tryggvi
sem mun væntanlega mæta til leiks með grímu
þegar hann snýr aftur á völlinn.
„Þeir segja að ég verði frá í tvær til þrjár
vikur sem þýðir að ég verð þá í fríi fram að
hléinu vegna 21 árs landsliðsins. Ég nenni
ekki að hlusta á það. Það er allt of gaman að
spila með þessu ÍBV-liði og það er markamet
sem þarf að slá. Ég hef engan tíma í svona vit-
leysu,“ segir Tryggvi.
„Ég ætla að sjá til hvað gerist. Bikarleikur-
inn í vikunni er klárlega farinn og Víkingsleik-
urinn á sunnudaginn er ólíklegur en ég ætla að
ná rest. Það getur samt vel verið að einhverjir
læknar sem lesa þetta telji að ég sé alveg far-
inn í hausnum,“ segir Tryggvi í léttum tón.
„Mér finnst ótrúlegt að heyra það að ég sé
svona mikið brotinn og þurfi að fara í aðgerð
miðað við það hvernig mér líður,“ segir
Tryggvi. „Ég væri alveg til að fara á æfingu á
eftir og finnst þetta fúlt en maður verður víst
að hlusta á þessa lækna.
ooj@frettabladid.is
Alveg sama um blessað andlitið
Tryggvi Guðmundsson kvartar ekki mikið þrátt fyrir að hafa þríbrotnað í andlitinu í 2-0 sigri ÍBV í
Keflavík í fyrrakvöld nema þá helst yfir því að læknarnir segi að hann spili ekkert fótbolta næstu vikurnar.
„Það er alltof gaman að spila með þessu ÍBV-liði og það er markamet sem þarf að slá,“ segir Tryggvi.
ÞRÍBROTIN Í ANDLITINU „Ég er pínu bólginn þar sem
höggið sjálft var og svo er ég enn þá bara með þessa
kúlu undir auganu sem að poppaði upp. Annars er ég
bara gullfallegur,“ sagði Tryggvi Guðmundsson sem
sést hér sýna á sér „betri“ hliðina í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
AUKASÝNINGAR
„Þessi leiksýning hefur allt
sem þarf til að skapa vel heppnað
og eftirminnilegt leikverk.“
I.Þ., Mbl.
„Þetta var geggjuð flott sýning,
eins og gelgjan sagði.
Og hvað viljið þið meira?“
B.S., pressan.is „Critics choice“
Time Out, London
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
FÓTBOLTI Jack Wilshere, leik-
maður Arsenal, verður ekki með
Englendingum á EM U-21 liða í
sumar þrátt fyrir fyrri yfirlýs-
ingar um áhuga sinn að spila með
liðinu.
Stuart Pearce, landsliðsþjálfari
Englands, valdi í gær 23 manna
lokahóp sinn fyrir EM og var
nafn Wilsheres hvergi að finna.
„Hann sagði mér í mars að
hann vildi vera með en í vikunni
tjáði hann mér að hann taldi sig
ekki í nógu góðu formi til að fara
til Danmerkur,“ sagði Pearce.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
var afar mótfallinn því að senda
Wilshere til Danmerkur og fékk
því sínu framgengt. Andy Carr-
oll, leikmaður Liverpool, verður
heldur ekki með í sumar en það
er vegna meiðsla.
Enska liðið er þó gríðarlega
sterkt en 18 af leikmönnunum 23
eru á mála hjá félögum í ensku
úrvalsdeildinni. - esá
Enska U-21 landsliðið:
Wilshere ekki
með á EM
WILSHERE Mun hvíla sig þegar EM fer
fram í Danmörku í sumar. MYND/GETTY
FÓTBOLTI Ekkert liggur enn fyrir
um framtíð Heiðars Helguson-
ar hjá QPR sem vann sér sæti
í ensku úrvalsdeildinni á dög-
unum. Samningur Heiðars við
félagið rennur út í sumar.
„Það er ekkert í hendi enn,“
sagði Heiðar í samtali við Frétta-
blaðið. „Það hafa einhverjar við-
ræður átt sér stað en það er svo
mikið í gangi hjá félaginu þessa
dagana. Ég er bara einhvers stað-
ar í röðinni.“
Góðu fréttirnar eru hins vegar
þær að eigendur QPR staðfestu
á dögunum að Neil Warnock yrði
áfram knattspyrnustjóri liðsins.
„Hann vill halda mér. Ég er því
frekar vongóður en verð rólegur
þar til ég skrifa undir.“ - esá
Framtíðin enn óljós hjá Heiðari Helgusyni:
Heiðar er vongóður