Fréttablaðið - 04.06.2011, Síða 2

Fréttablaðið - 04.06.2011, Síða 2
4. júní 2011 LAUGARDAGUR2 JEMEN, AP Ali Abdullah Saleh, forseti Jemens, særðist þegar hópur uppreisnarmanna skaut flugskeytum á forsetahöllina í Sanaa í gær. Að minnsta kosti sex verðir létu lífið og sjö hátt- settir embættismenn særðust einnig, þar á meðal forsætisráðherra, varaforsætisráðherra, þingforseti landsins og ríkisstjórinn í Sanaa. Bæði Nooman Dweid, ríkisstjóri Sanaa, og Rashad al-Alimi, varaforsætisráðherra, eru alvarlega særð- ir og al-Alami hefur ekki komist til meðvitundar. Jemenskur embættismaður segir að forsetinn hafi aðeins hlotið minniháttar meiðsli á hálsi. Hann sé nú við góða heilsu, en sjónvarpsstöð stjórnar- andstæðinga hafði fullyrt að forsetinn hefði fallið í árásinni. Stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar hafa barist hart í höfuðborg Jemens í nærri hálfan mánuð og hafa þau átök kostað hátt á annað hundrað manns lífið. Þetta er þó í fyrsta sinn sem árás er gerð á forsetahölllina. Nokkrir fjölmennir og áhrifamiklir ættflokkar í landinu hafa skipað sér í sveit með mótmælendum, sem krefjast umbóta og afsagnar forsetans. - gb Forseti Jemens særðist í flugskeytaárás á forsetahöllina í Sanaa: Helstu ráðamenn illa særðir MÓTMÆLI Í SANAA Alda mótmæla gegn forseta Jemens hefur verið óstöðvandi vikum saman. NORDICPHOTOS/AFP Stefán, eruð þið byrjaðir að manna skansinn? „Já, og flotinn er klár.“ Stefán B. Friðriksson er formaður Útvegs- bændafélags Vestmannaeyja. Hann líkti kvótafrumvarpi ríkisstjórnarinnar við árás á Vestmannaeyjar í gær. Skansinn var virki sem byggt var í Heimaey á 16. öld til að verja eyjuna. ASUS FARTÖLVA (INTEL PENTIUM DUAL CORE 2.13 GHZ) Ótrúlegt verð fyrir frábæra fartölvu, tilvalin fyrir námsmenn. Tölvan kemur uppsett með Windows. HÓPKAUP.IS Í DAG í krafti fjöldans hópkaup.is 77.940 kr. GILDIR Í 24 TÍMA 129.900 kr. Verð 40% Afsláttur 51.960 kr. Afsláttur í kr. ORKUMÁL „Það er augljóst að það er eitthvað að í lagaumhverfinu ef þeir telja sig knúna til að kom- ast að þessari niðurstöðu,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð- herra um veitingu rannsóknarleyf- is í Grændal í Ölfusi. Orkustofnun veitti leyfi til rannsókna á jarð- hita, grunnvatni, yfirborðsvatni og efnisnámum á rannsóknarsvæðinu. Ráðherra hefur óskað eftir munnlegum rökstuðningi frá Orkustofnun og mun eiga fund um málið eftir helgi. Katrín segir mikilvægt að komast að því hvað knýi stofnunina til að komast að þessari niðurstöðu og boðar breyt- ingar á lögum, komi í ljós að lögin kalli á úrskurðinn. Katrín bendir á að Grændalur sé eitt þeirra svæða sem verði líklega skilgreind sem verndar- svæði í rammaáætlun og því skjóti skökku við að gefa út rannsóknar- leyfi svo skömmu áður en áætlunin taki gildi. Lög um rammaáætlun voru samþykkt á yfirstandandi þingi og þingsályktunartillaga mun líta dagsins ljós á næstu vikum, að sögn Katrínar. Ekki hefur ríkt full sátt um tillöguna meðal stjórnar- flokkanna en ráðherra von- ast til að sam- staða ríki um tillöguna þegar hú n kemu r fram. Katrín bend- ir einnig á að sveitarfélagið Ölfus hafi ekki sett rannsókn- arboranir á skipulag og ólíklegt sé að það gerist, þar sem andstaða sé við röskun á svæðinu innan sveitarfélagsins. „Allir aðilar verða að stíga var- lega til jarðar þar til rammaáætlun er tilbúin. Þess vegna vil ég kanna hvort eitthvað er í lögum sem kall- ar á þennan úrskurð og mun grípa til ráðstafana ef svo er.“ Katrín telur þó óljóst að hún nái að leggja fram lagabreytingar áður en rammaáætlun taki gildi. „Aðal- atriðið er að við erum að koma okkur úr vondu kerfi á þessu sviði. Úr vondu lagaumhverfi sem hefur verið götótt og inn í lagaumhverfi rammaáætlunar þar sem tekið er mið af náttúrunni frá upphafi ferlisins.“ - kóp Iðnaðarráðherra er ósáttur við úrskurð Orkustofnunar um rannsóknarleyfi í Grændal og boðar lagabreytingu: Ráðherra vill rökstuðning vegna boranaleyfis KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR FERÐALÖG Í dag birtist í blaðinu kort af Suðurnesjum þar sem bent er á nokkra áhugaverða staði til að skoða. Kortið er það fyrsta í röð korta sem verða fastur liður í Fréttablaðinu í sumar. Landshlutar eru valdir í tengslum við hátíðir sem eru á svæðinu og Bylgjan útvarpar beint frá en nú um helgina er hátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík. Kortin gagnast vonandi les- endum á ferð um landið í sumar. Um næstu helgi verður kort af nágrenni Selfoss og helgina þar á eftir verður haldið í Arnarfjörðinn. - sbt / sjá síðu 34 Fréttablaðið á ferð um landið: Landshlutakort í hverri viku SAKAMÁL „Þetta mál snýst ekki um sekt, sakleysi eða líf heldur pen- inga. Ef ég gæti farið út til Taí- lands og greitt til að leysa Brynj- ar út myndi ég gera það. En ég á ekki neitt,“ segir Borghildur Antonsdóttir, móðir Brynjars Mett- inissonar sem handtekinn var úti á götu í Bangkok í Taílandi á mánu- dag og úrskurðaður í þriggja mán- aða gæsluvarðhald. Brynjar varði 25 ára afmælisdeginum innan fangelsismúranna í gær. Ræðismaður Íslands í Taílandi fékk í gær lögfræðing í mál Brynj- ars og mun hann heimsækja skjól- stæðing sinn í fangelsið snemma í næstu viku. Lögfræðikostnaður fellur á móður Brynjars. Greint var frá því í fyrradag að Brynjar og unnusta hans hefðu verið á heimleið frá veitingastað í Bangkok þegar þau hittu mann frá Ástralíu sem þau könnuðust við. Skömmu síðar bar lögreglu að sem leitaði á mönnunum. Fíkniefni fundust á Ástralanum en ekkert á Brynjari. Þeir voru báðir hand- teknir og eiga að dúsa í fangelsi í borginni þar til mál þeirra verður tekið fyrir eftir þrjá mánuði. Í Taílandi eru hörð viðurlög gegn fíkniefnabrotum og gæti Brynjar átt yfir höfði sér þrjátíu ára dóm. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við um Brynjar, þar á meðal systk- ini hans, segja hann dagfarsprúðan. Ólíklegt sé að hann hafi verið við- riðinn fíkniefnamisferli eins og lög- regla í Taílandi gruni hann um. Borghildur hefur ekki fengið að ræða við son sinn en fær daglega upplýsingar um líðan hans frá kær- ustunni, sem fer í fangelsið dag- lega. Þar eru aðstæður slæmar. „Hún segir mér að Brynjar hafi verið fluttur til í fangelsinu, í klefa sem ansi margir eru í. Þar er skít- ugt og ömurlegt, Brynjari líður hræðilega og hann sefur illa. En nú má hún ekki koma með mat til hans nema einu sinni í viku, á þriðjudög- um. Einu sinni á dag kemur súpu- karl og Brynjar þarf að kaupa súpu af honum. Þarna þarf að kaupa allt, mat og klósettpappír … allt,“ segir Borghildur. „Ef hann hefði ekki kærustuna til að láta sig fá peninga þá fengi hann ekkert.“ Borghildur hefur eftir kærustu Brynjars að Ástralinn sé í sama fangelsi. Brynjar hafi heyrt að bróðir mannsins sé væntanlegur og ætli sá að greiða fyrir lausn hans, jafnvirði einnar milljónar króna. „Ég á ekki þessa peninga,“ segir Borghildur, sem í síðustu viku flutti til dóttur sinnar og tveggja barna hennar í Svíþjóð. Þar dvelur hún með yngsta ömmubarninu sem fæddist fyrir mánuði. jonab@frettabladid.is Frelsið kostar eina milljón í Taílandi Brynjar Mettinisson varði 25 ára afmælisdeginum í fangaklefa í Bangkok. Móð- ir hans segir sekt og sakleysi merkingarlaus. Peningar opni dyr úr steininum. Bróðir manns sem var tekinn með fíkniefni er sagður ætla að greiða mútur. Aðstandendur Brynjars hafa efnt til söfnunar til að greiða fyrir lögfræði- kostnað og ferð móður hans til Taílands. Reikningsnúmerið er 0537-26- 494949. Kennitala er 060549-4949. Safna fyrir lögfræðikostnaði ERFIÐAR AÐSTÆÐUR Brynjar Mettinisson hefur verið færður í klefa með mörgum föngum. Þar líður honum illa, að sögn Borghildar Antonsdóttur, móður hans. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND SAMGÖNGUR Umferðin í maí 2011 á sextán völdum talningarstöðum á Hringveginum var tíu prósentum minni en í sama mánuði í fyrra. Frá áramótum nemur samdráttur- inn tæpum níu prósentum. Þetta er gífurlega mikill samdráttur í sögulegu samhengi, að sögn Vegagerðarinnar. Miðað við spá Vegagerðarinnar stefnir á þessu ári í metsamdrátt síðan 1975, þrisvar sinnum meiri en hann hefur orðið mestur milli ára. Mest dregur úr umferð á Suðurlandi, um tæplega 20 pró- sent, en minnst á Hringveginum í grennd við og um höfuðborgar- svæðið, um 4,5 prósent. - shá Umferð dregst saman: Spá mesta sam- drætti í 35 ár Í UMFERÐINNI Mest dregur úr umferð á Suðurlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON NEYTENDAMÁL Verð á bensíni og dísilolíu lækkaði í gær hjá Atlantsolíu, Orkunni og ÓB. Öll félögin reka ómannaðar bensín- stöðvar. Samkvæmt vefsíðunni gsmbensin.is í gærkvöldi var verð á bensíni 232,10 krónur hjá Orkunni og 0,10 krónum dýrara hjá hinum félögunum tveimur. Dísilolía kostaði 231,10 krónur hjá öllum stöðvunum. Verð á eldsneyti hjá þjónustu- stöðvum N1, Shell og Olís var um fimm krónum hærra. - shá Verði án þjónustu breytt: Eldsneytisverð lækkað um fimm krónur VIÐ DÆLUNA Mikil lækkun hjá þremur olíufélögum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FJÁRMÁL Skattrannsóknarstjóri rannsakar tvö mál þar sem grun- ur leikur á um að tugmilljóna króna fjármagnstekjuskatti hafi verið skotið undan. Krafist hefur verið kyrrsetningar eigna meðan á rannsókn málsins stendur. Fréttastofa RÚV sagði frá í gær. Rannsóknin snýr að stórfelld- um skattsvikum þar sem nokkur hundruð milljóna króna fjár- magnstekjur voru ekki gefnar upp til skatts. Farið var fram á kyrrsetningu eigna hjá þeim sem til rannsóknar eru en ekki er gefið upp hverjir eigi í hlut. - shá Tugmilljónum skotið undan: Tvö skattsvika- mál rannsökuð SPURNING DAGSINS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.