Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 6
4. júní 2011 LAUGARDAGUR6 HOLLAND, AP „Ég er Ratko Mladic og allur heimurinn veit hver ég er,“ sagði fyrrverandi yfirmaður herliðs Bosníu-Serba og vildi engu svara ákærum, sem hann sagði við- bjóðslegar. Hann var í fyrsta sinn leiddur fyrir stríðsglæpadómstól Sam- einuðu þjóðanna í Haag í gær, þar sem hann er ákærður fyrir verstu stríðsglæpi í sögu Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Hann virtist eiga erfitt með að nota hægri höndina. Réttarverðir studdu hann þegar hann stóð upp og hjálpuðu honum að setja á sig heyrnartól svo hann gæti heyrt serbneskan túlk þýða jafnóðum það sem sagt var í réttarsalnum. Mladic sagðist vera alvarlega veikur en vildi ekki ræða veikindi sín nema fyrir luktum dyrum. Ættingjar hans hafa sagt að hann hafi tvisvar fengið heilablóð- fall á síðustu árum. Lögfræðing- ur Mladics í Serbíu hefur einnig sagt að hann hafi verið með eitla- krabbamein og bæði gengist undir uppskurð og fengið lyfjameðferð vegna þess árið 2009. Alphons Orie, aðaldómari í mál- inu, boðaði framhald réttarhald- anna 4. júlí næstkomandi. Ef Mla- dic neitar aftur að svara ákærum, þá verður litið svo á að hann telji sig saklausan svo réttarhöldin geta þá hafist fyrir alvöru. Búast má við að þau taki allmörg ár. Ákæran á hendur honum er í ell- efu liðum. Hann er ákærður fyrir fjöldamorðin í Srebrenica í júlí árið 1995, þegar hermenn undir hans stjórn myrtu um átta þúsund karlmenn og drengi. Hann er einn- ig ákærður fyrir að hafa stjórnað svonefndum þjóðernishreinsunum, þegar hermenn undir hans stjórn hröktu fólk frá þorpum og bæjum með grófu ofbeldi í Bosníustríð- inu á árunum 1992-95. Þá er hann ákærður fyrir að hafa staðið fyrir ofsóknum, kúgun, pyntingum, nauðgunum á múslimum og Kró- ötum í Bosníu, auk þess sem hann er ákærður fyrir að hafa tekið friðargæsluliða og hernaðareftir- litsmenn Sameinuðu þjóðanna í gíslingu. gudsteinn@frettabladid.is Ratko Mladic neitar að svara ákærunum Mladic telur sig aðeins hafa verið að verja land sitt og þjóð. Segist vera alvarlega veikur, en vildi ekki ræða veikindi sín nema fyrir luktum dyrum. Búast má við að réttarhöldin hjá stríðsglæpadómstólnum í Haag standi yfir árum saman. Árið 1993 var stofnaður í Haag í Hollandi alþjóðlegur stríðsglæpadómstóll, sem fjallar um stríðsglæpamál frá ríkjum fyrrverandi Júgóslavíu í tengslum við Balkanskagastríðin á síðasta áratug síðustu aldar. Alls hafa ákærur verið gefnar út á hendur 161 sakborningi. Flestir þeirra eru Serbar en einnig eru meðal þeirra bæði Króatar og múslimar. Til þessa hafa 64 verið sakfelldir, 13 sýknaðir, 16 mál eru enn í áfrýjunarferli, 14 eru fyrir dómi, 13 hafa verið færð yfirvöldum í Serbíu til meðferðar, en ákærur á hendur 34 hafa verið felldar niður. Fjórir sakborningar bíða enn réttarhalda og einn gengur laus. Sá er Goran Hadzic, fyrrverandi leiðtogi uppreisnarsveita Serba í Króatíu. Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn RATKO MLADIC Sagði ákærurnar við- bjóðslegar og vildi ekki að þær yrðu lesnar upp, hvað þá að hann vildi lýsa sig sekan eða saklausan. NORDICPHOTOS/AFP FYLGST MEÐ Konur, sem misstu eiginmenn sína, feður eða syni í fjöldamorðunum í Srebrenica, fylgdust í gær með beinni sjónvarpsútsendingu frá dómstólnum í Haag. Veggir herbergisins eru þaktir myndum af fórnarlömbum fjöldamorðanna. NORDICPHOTOS/AFP Sanngirnisbætur Innköllun Í samræmi við ákvæði laga nr. 47/2010 um sanngirnisbætur bfyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 og tóku gildi hinn 28. maí 2010, hefur sýslumanninum á Siglufirði verið falið að gefa út innköllun, fara yfir kröfur og gera þeim sem eiga rétt á bótum skrifleg sáttaboð. Skal sýslumaður eftir því sem kostur er fjalla samtímis um allar kröfur er lúta að sama heimilinu. Á grundvelli þessa er nú kallað eftir kröfum frá þeim sem dvöldu á: skólaheimilinu Bjargi og vistheimilinu Reykjahlíð Hér með er skorað á alla þá sem voru vistaðir á skólaheimilinu Bjargi einhvern tíma á árabilinu 1965-1967 eða á vistheimilinu Reykjahlíð einhvern tíma á árabilinu 1956-1972 og urðu þar fyrir illri meðferð eða ofbeldi sem olli varanlegum skaða, að lýsa kröfu um skaðabætur fyrir undirritaðri fyrir 20. september 2011. Kröfu má lýsa á eyðublaði sem er að finna á vefnum www.sanngirnisbætur.is og hjá tengiliði vegna vistheimila. Allar kröfur skulu sendar sýslumanninum á Siglufirði, Gránugötu 4-6, 580 Siglufirði. Verði kröfu ekki lýst fyrir 20. september 2011 fellur hún niður. Bent er á að unnt er að leita aðstoðar tengiliðar vegna vistheimila við framsetningu og skil á bótakröfu. Aðstoð tengiliðar er að kostnaðar- lausu. Skrifstofa tengiliðar er að Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík. Sími tengiliðar er 545 9045. Siglufirði 3. júní 2011 Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður FASTEIGNIR Áttatíu og sjö kaup- samningum um fasteignir var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu frá 27. maí til og með 2. júní. Á vef Þjóðskrár Íslands kemur fram að 71 þessara samninga hafi verið um eignir í fjölbýli, 13 um sérbýli og þrír um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.896 millj- ónir króna. Þetta eru talsvert meiri umsvif en á síðasta ári, en dagana 28. maí til 3. júní í fyrra var 51 samningi þinglýst á höfuð- borgarsvæðinu og heildarveltan var 1.324 milljónir króna. - þj Veltan tæpir þrír milljarðar: Aukin umsvif frá síðasta ári Í UPPSVEIFLU Fleiri fasteignasamningum var þinglýst síðustu daga en á sam- svarandi tíma á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ORKUMÁL Orka sem unnin verður úr jarðvarma í Þingeyjarsýslum verður notuð til umfangsmikillar atvinnuuppbyggingar á Norðaust- urlandi samkvæmt viljayfirlýs- ingu sem fulltrúar ríkisstjórnar- innar og sveitarfélaga á Norðausturlandi hafa undirritað. Skipuð verður verkefnisstjórn sem greina á innviði og meta þörf fyrir eflingu á opinberri þjón- ustu, auk þess að huga að vexti atvinnulífs og fjölbreytni þess, að því er segir í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. - bj Skrifa undir viljayfirlýsingu: Jarðvarmi verði nýttur í héraði Ræddu málefni Líbíu Málefni Líbíu og aðgerðir alþjóða- samfélagsins þar voru til umræðu á fundi Össurar Skarphéðinssonar utan- ríkisráðherra og Guma El-Gamaty, sérstaks fulltrúa Líbíska þjóðarráðsins, í gær. Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að El-Gamaty sé fulltrúi ráðsins gagnvart breskum stjórnvöld- um, auk þess að sinna samskiptum við önnur ríki Evrópu. Á fundinum áréttaði Össur stuðning Íslands við ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. UTANRÍKISMÁL Tekið á stöðubrotum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim vinsamlegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Í kvöld fer fram í Laugardal landsleikur Íslendinga og Dana í knattspyrnu. Þeir sem leggja ólöglega geta búist við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5.000 krónur, rennur í Bílastæðasjóð. Hraðakstur í Hvassahrauni Heldur færri óku of hratt í norður í Hvassahrauni á Reykjanesbraut þegar lögregla var þar í vikunni við mælingar en að jafnaði gerist. Yfirleitt fara 14 til 17 prósent ökumanna of hratt en nú var hlutfallið 13 prósent. Mynduð voru brot 35 ökumanna af 277 á þeirri klukkustund sem mælingin stóð yfir. Meðalhraði þeirra brotlegu var 104 kílómetrar á klukkustund. Sá sem greiðast ók fór á 117 kílómetra hraða. LÖGREGLUMÁL MANNLÍF Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um allt land í dag og er víða skipulögð dagskrá þar sem sjósókn og sjávarútvegur eru í fyrrúmi. Til dæmis er Hátíð hafsins haldin á Grandagarði þar sem sjá má fjöldann allan af sjávardýrum. Í Hafnarfirði eru hefðbundin hátíðarhöld með skemmtisiglingu, kappróðri og heiðrun sjómanna. Í Grindavík fer fram hátíðin Sjóarinn síkáti og verður dagskrá alla helgina líkt og á Akureyri, þar sem Einn á báti hefst í dag. Þá hófust hátíðarhöld í Fjarðabyggð á miðvikudag og verður dagskrá í öllum byggðar- kjörnum sveitarfélagsins. Loks má geta þess að vegleg dagskrá verður í Vestmannaeyjum, þar sem í dag verður keppt í greinum eins og koddaslag og kappróðri. Á morgun verður síðan sjómannamessa og sjómenn heiðraðir á hátíðardagskrá á Stakkagerðistúni. - þj Sjómannadagshelgin er nú haldin hátíðleg um allt land og uppákomur víða: Hefðbundin hátíðarstemning SJÓSTAKKAHLAUP Margvíslegar uppákomur og keppnir fara fram í sjávarbyggðum í tilefni af sjómannadeginum. FRÉTTABLAÐIÐ/BERGSTEINN Finnst þér Ásmundur Einar Daðason passa frekar inn í Framsókn en VG? Já 67,8% Nei 32,2% SPURNING DAGSINS Í DAG Telur þú nauðsynlegt að halda úti sérstakri vefsíðu um lands- dómsmálið? Segðu skoðun þína á visir.is EFNAHAGSMÁL Mikilvægt er að sýna sjálfsaga til að halda utan um ríkis- fjármálin þegar áætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) rennur sitt skeið í ágúst og sýna að hægt sé að taka á strúktúrveikleik- um í íslensku efnahagslífi, að sögn Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra. Stjórn AGS samþykkti í gær fimmtu endurskoðun efnahags- áætlunar sjóðsins og stjórnvalda á fundi sínum í Washington. Með samþykktinni geta stjórnvöld fengið aðgang að 25,7 milljarða króna láni sjóðsins og 73 milljarða króna lánalínu frá Norðurlönd- unum. Í endurnýj- aðri viljayfirlýs- ingu sem stjórn- völd sendu AGS kemur fram að hagkerfið sé að taka við sér og að hagvöxt- ur verði í ár, sá fyrsti frá hruni. Í fyrri viljayfir- lýsingum hefur verið gert ráð fyrir allt að þriggja prósenta hagvexti. Árni Páll segir spár hljóða upp á tveggja prósenta hagvöxt í ár en þrjú prósent á næsta ári. „Efnahagsáætlun okkar næstu árin verður að miða að því að ná upp hagvexti til að vinna bug á atvinnuleysi,“ segir Árni Páll og leggur áherslu á að draga verði úr einhæfni, fákeppni og skorti á samkeppni auk þess að greiða fyrir fjárfestingu og nýsköpun til að efla útflutningsdrifinn hagvöxt. „Hvert ár sem líður án þess að dragi verulega úr atvinnuleysi er mjög dýrt. Við þurfum fjögurra til fimm prósenta hagvöxt til að höggva í það að ráði.“ - jab Verðum að taka á veikleikum í íslensku efnahagslífi, segir Árni Páll Árnason: Fimmta endurskoðun í höfn ÁRNI PÁLL ÁRNASON KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.