Fréttablaðið - 04.06.2011, Side 8
4. júní 2011 LAUGARDAGUR8
1 Hvaða bandaríska flugfélag hóf
beint áætlunarflug til Íslands á
fimmtudag?
2 Hvaða Evrópuþjóð fagnar um
þessar mundir 150 ára afmæli sam-
einaðs ríkis?
3 Hvað heitir Íslendingurinn í
bresku rokkhljómsveitinni The
Vaccines?
SVÖR
1. Delta Air Lines 2. Ítalir 3. Árni Hjörvar
Árnason
ÞÝSKALAND, AP Víða í Evrópu hafa
skólar tekið allt grænmeti af mat-
seðli mötuneyta sinna. Gúrkur
hrúgast upp óseldar í verslunum
og bændur segjast verða fyrir
fjárhagslegu stórtjóni.
Allt þetta stafar af ótta við kólí-
gerilinn skeinuhætta, sem dregið
hefur 18 manns til bana í Þýska-
landi og Svíþjóð. Nærri tvö þús-
und manns hafa veikst af völdum
hans.
Neytendur láta því eiga sig að
leggja sér grænmeti til munns, í
öryggisskyni að minnsta kosti.
„Sjóðið það eða borðið það ekki,“
sagði nýrnasérfræðingurinn Rolf
Stahl á blaðamannafundi í Ham-
borg í gær. „Það er mín persónu-
lega ráðlegging.“
Flestir þeirra sem veiktust segj-
ast hafa snætt grænmeti stuttu
síðar. Ekki er vitað úr hvaða
grænmeti gerillinn barst í fólk,
en framan af var hann talinn hafa
borist með gúrkum frá Spáni.
Spænskir bændur eru æfir og
vilja bæði skýringar og skaðabætur
frá Þjóðverjum, sem töldu sig geta
fullyrt að gerillinn hafi borist frá
Spáni. Nú, þegar ljóst er að spænsku
gúrkurnar áttu ekki hlut að máli,
segist Angela Merkel Þýskalands-
kanslari ætla að kanna hvort Evr-
ópusambandið geti komið spænsk-
um bændum til hjálpar. - gb
Grænmetissala nánast að engu orðin víða í Evrópu:
Grænmetisóttinn
heltekur Evrópu
GRÆNMETISSALI Í BERLÍN Þýska stjórnin kannar nú möguleika á að Evrópusam-
bandið komi spænskum bændum til hjálpar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
eru látnir í Þýska-
landi og Svíþjóð
eftir matareitrun
sem rakin hefur verið til
kólígerilssmits á grænmeti.
Nær tvö þúsund manns hafa
veikst af völdum gerilsins.
18
STJÓRNSÝSLA Stjórn Kirkjugarða-
samband Íslands leggur til rúm-
lega 30 prósenta hækkun í fjár-
framlögum ríkisins á næstu tveim
árum. Einingaverð verði uppfært
samkvæmt samkomulagi frá árinu
2005 í tveimur áföngum með þeim
hætti að framlag ríkisins næsta ár
verði reiknað upp að fullu og síðan
skert um þrjú prósent, líkt og boðað
sé í fjárlögum þessa árs. Síðan tæki
upprunalegi samningurinn gildi án
skerðingar árið 2013.
Er þetta gert í ljósi bágrar fjár-
hagsstöðu kirkjugarða í landinu og
segir Þórsteinn Ragnarsson, for-
maður Kirkjugarðasambandsins,
ástandið farið að bitna á umhirðu
garðanna, viðhaldi fasteigna, véla-
kaupum og færri sumarráðningum
starfsfólks. Fjárþörf garðanna, sem
eru 356 talsins, er talin vera um 1,1
milljarður króna, en miðað við fjár-
lög þessa árs veitir ríkið um 845
milljónir til kirkjugarða landsins.
„Málum var komið á góðan rek-
spöl árið 2005. Svo skera stjórn-
völd alveg blindandi á framlög-
in eftir efnahagshrunið,“ segir
Þórsteinn. „Það er verið að skera
niður í starfsgrein sem var mjög
vængbrotin fyrir.“
Aðalfundur sambandsins var
haldinn á Húsavík um síðustu
helgi og segir Þórsteinn þungt
hljóð almennt hafa verið í fundar-
mönnum. Staðan sé þó misjöfn eftir
görðum landsins, en víða séu mál
orðin það slæm að erfitt sé að borga
prestum og iðnaðarmönnum.
Stjórn sambandsins hefur nú
sent bréf til iðnaðarráðuneytisins
þar sem farið er fram á að framlög
til garðanna verði hækkuð um 30
prósent á næstu tveim árum. Með
því myndi upphaflegt samkomu-
lag kirkjugarðanna og ríkisins
frá árinu 2005 standa, en framlög
hafa lækkað um rúm 10 prósent frá
árinu 2008. Aftur á móti hefur dán-
artala Íslendinga hækkað úr 1.987
árið 2008 í 2.017 í fyrra. - sv
Kirkjugarðar skera niður í umhirðu og viðhaldi fasteigna og ráða færra fólk vegna fjárhagsörðugleika:
Vilja að framlög ríkisins hækki um 30%
ÞÓRSTEINN RAGNARSSON Rétta verður
hallarekstur kirkjugarða af segir formaður
Kirkjugarðasambandsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hafðu samband við okkur í síma 444 7000, á arionbanki.is
eða komdu í næsta útibú. Við tökum vel á móti þér.
– nýjungar sem nýst geta þínu fyrirtæki.
Við vekjum athygli á ráðstefnu þar sem alþjóðlegir fyrir-
lesarar fjalla um allt það sem hæst ber í kortamálum
í Evrópu. Þessi ráðstefna á erindi við alla þá sem vilja
nýta sér þær nýjungar sem fólgnar eru í greiðslukortavið-
skiptum sem tækifæri í markaðssókn.
Ráðstefnan sem er á vegum CAC Conferences, verður
haldin 7. og 8. júní næstkomandi á Hilton Reykjavík
Nordica.
Arion banki býður 50% afslátt af ráðstefnugjaldi.
Dagskrá ráðstefnunnar og skráning
á arionbanki.is/radstefna.
Arion banki og CAC Conferences.
Ráðstefna
VITA er lífið
Korfu
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
49.900kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
7. - 18. júní.
Innifalið: Flug fram og til baka og skattar.
*Verð án Vildarpunkta 59.900 kr.
Ótrúlegt verð!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
V
IT
5
52
87
0
6/
11
VEISTU SVARIÐ?