Fréttablaðið - 04.06.2011, Qupperneq 18
18 4. júní 2011 LAUGARDAGUR
„Norðurvíkingur“ og stórvelda-
ásælnin á norðurslóðum
Liðaskipt ing heimsvelda nútímans er ljós. USA og ESB
eru saman í liði þrátt fyrir sam-
keppni og átök þeirra á milli
(og innan ESB). Þau eru meg-
inbandamenn og mynda járn-
slegna blokk, sameinaða í NATO,
blokk sem stendur nær miðstýrð-
um heimsyfirráðum en nokkurt
stórveldi sögunnar. NATO var
breytt í hnattrænt, útrásarhneigt
bandalag um aldamótin. Blokkin
ógnar keppinautum sínum (Rúss-
ar og Kínverjar þar helstir) og
líður ekki mótþróa smáríkja sem
liggja á mikilvægum svæðum:
Afganistan, Írak, Líbýa. Þessi
stríð eru ekki „strákaleikir“, ekki
„gamaldags“ né byggja á „kalda-
stríðshugsun“. Þau eru nútíma-
stjórnmál í skýrustu mynd: hern-
aðarstefna sem grundvallaratriði
í heimsvaldastefnu.
Blokkin hefur um tíma beint
meginsókn sinni að Miðaustur-
löndum og þaðan beinist hún nú
að Afríku. Markmiðið er augljóst:
vestræn yfirráð, frjálst aðgengi
auðhringanna og að nokkru leyti
afturhvarf til nýlendukerfis.
Hnötturinn allur er undir. Eitt
fjölmargra svæða sem verða nú
fyrir ásókn er Norðuríshafið.
Stórveldaásælnin þar er sama
eðlis og í suðri, birtist einkum í
heræfingum og vopnaskaki.
Heræfingarnar hérlendis bera
nafnið „Norðurvíkingur“ og nú í
byrjun júní verður hér sú stærsta
eftir brotthvarf Bandaríkjahers
af Miðnesheiði, með 450 manns, 16
orustuflugvélum auk fleiri flug-
véla og herskipa. Heræfingin er
að vanda undir stjórn Evrópuher-
stjórnar Bandaríkjanna en sam-
keyrð við „loftrýmisgæslu“ NATO
á Keflavík og Akureyri. Halda
menn að varnarþörf Íslendinga
ráði þar för?
Í janúar 2009 hélt NATO þunga-
vigtarráðstefnu í Reykjavík
undir yfirskriftinni: „Öryggis-
horfur á norðurskautssvæðinu“.
Framkvæmdastjóri NATO mætti
þar auk þriggja úr æðstu her-
stjórn bandalagsins og ráðherra
nokkurra aðildarríkja.
Undanfarin ár hafa verið haldn-
ar miklar æfingar Bandaríkja-
hers norðan Alaska og tilsvarandi
æfingar Kanadahers á „norðvest-
urleiðinni“ út af norðausturströnd
Kanada. Í fyrra tóku fulltrúar
herja Danmerkur, auk Bandaríkj-
anna (tvö skip frá hvorum) þátt
í kanadísku æfingunni. Þessu
hafa fylgt herskáar yfirlýsingar
bandarískra og kanadískra ráða-
manna í garð Rússa.
Sumarið 2008 var meiri háttar
NATO-heræfing norður í sænska
Lapplandi, með þátttöku 12 þús-
und hermanna frá níu NATO-
þjóðum að viðbættum Svíum, og
önnur litlu minni NATO-æfing úti
fyrir norðurströnd Noregs. Stjórn-
stöðvar norska hersins voru árið
2009 fluttar til Reitan, þ.e. norð-
ur á heimskautssvæðið. Varnar-
málasamstarf Norðurlandanna og
Eystrasaltslanda hraðvex og stefn-
ir í myndun einhvers konar hlið-
ardeildar í NATO með aðild hinna
„hlutlausu“ Finna og Svía. Síðast-
liðið haust fór fram mesta flota-
æfing sem haldin hefur verið út
af ströndum Finnlands með þátt-
töku norrænu ríkjanna auk Bret-
lands, Frakklands og Þýskalands.
Wikileaks lak nýlega orðsend-
ingum James Cain, sendiherra
Bandaríkjanna í Danmörku, til
Bush-stjórnarinnar um að nú
lægi á að smíða vináttubönd við
Grænland vegna olíuhagsmuna.
Hann sagðist þegar hafa komið
grænlenskum framámönnum
í beint samband við stóra vest-
ræna olíuvinnsluhringa. Mæting
bæði utanríkisráðherra og innan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna á
fund Norðurskautsráðsins í Nuuk
í Grænlandi nú í maí sýnir áhersl-
una. Að Danir fimm dögum síðar
geri tilkall til sjálfs norðurpólsins
er varla tilviljun. Danska skjalið
talar um friðsamlegt samstarf
vegna nýrra siglingaleiða og olíu-
vinnslu á Íshafinu (talið er að um
25% vinnanlegrar olíu og gass í
heiminum sé á þeim hafsbotni).
En „hins vegar er einnig lagt til
að danski herinn beini starfi sínu
í auknum mæli að norðurslóðum.“
(Fréttablaðið 18. maí). Þarna
stendur Blokkin á bak við enda
beinist krafa Dana gegn Rússum.
Í beinu framhaldi býður frú
Clinton Össuri Skarphéðinssyni
heim til samræðna, m.a. um varn-
armál, þó einkum um norðurslóð-
ir. Þegar Össur túlkaði NATO-
fundinn í Lissabon sl. haust nefndi
hann sem helstu ógnun við Vest-
urlönd „framferði ofbeldisfullra
múslimskra öfgasamtaka“ og
svo 27 þjóðir sem búi yfir skot-
flaugum, og hann nefndi Íran og
Sýrland sem sérlega hættuleg,
en Rússar væru nú bandamenn
NATO (Fréttablaðið 23. nóvem-
ber). Það eru þá Íranar og Al-
Kaída sem réttlæta vígvæðingu
norðurslóða. Eða hvað, Össur?
ESB sýnir nú mjög vaxandi
áhuga á íslenskri aðild. Vegna
íslenskra fiskimiða og orku? Það
reynist ekki vera aðalatriðið.
Opinber vefsíða Evrópuþings-
ins fjallaði um umsókn Íslands
20. janúar undir yfirskriftinni:
„ESB má ekki missa af heim-
skautslestinni:“ „Möguleg ESB-
aðild Íslands, nýir möguleikar
á olíuvinnslu, mengun á heim-
skautssvæðum ásamt áhrifum
mengunarinnar á vatnabúskap
ESB-landanna mælir með því að
setja málefni Norðurskautsins í
forgang, enn fremur að ESB beiti
sér meira í Norðurskautsráðinu,
segir Evrópuþingið í ályktun á
fimmtudag… Þingið undirstrikar
kosti íslenskrar aðildar sem mun
gefa ESB samhangandi strand-
lengju á norðurskautssvæðinu
og styrkja aðkomu ESB að Norð-
urskautsráðinu (www.europarl.
europa.eu).“
„Norðurvíkingur“ er réttnefni,
víkingasveit sem Blokkin sendir
hingað til að tryggja yfirráðin á
Norður-Íshafinu.
Norðurslóðir
Þórarinn
Hjartarson
formaður Samtaka
hernaðarandstæðinga
á Norðurlandi
Heræfingarnar hérlendis bera nafnið
„Norðurvíkingur“ og nú í byrjun júní
verður hér sú stærsta eftir brotthvarf
Bandaríkjahers af Miðnesheiði, með 450 manns, 16
orustuflugvélum auk fleiri flugvéla og herskipa.
AF NETINU
Mannréttindi og einka-
eignaréttur
Nýlega leyfði ráðherra nokkur sér
þá ósvinnu að segja að í sumum
tilvikum yrði einkaeignaréttur að
víkja fyrir mannréttindum. Þetta
þótti frjálshyggjumönnum ekki
góð latína, að þeirra hyggju er
einkaeignarétturinn hryggjar-
stykkið í mannréttindunum.
Það töldu líka þrælaeigendur í
Suðurríkjunum amerísku. Þeir
sögðu að afnám þrælahaldsins
væri ekkert annað en afnám
einkaeignaréttar og því skýlaust
mannréttindabrot. Þrælarnir voru
ósammála, ótrúlegt en satt.
http://blog.eyjan.is/stefan/
Stefán Snævarr
Reynsla og
raunhyggja ráði
Samkvæmt rannsóknum á vegum
heilbrigðisstofnunar Sameinuðu
þjóðanna fer áfengisneysla
vaxandi við ákveðin mörk þess
hve auðvelt er að ná í það.
Þetta þekkja allir fíklar sem hafa
farið í meðferð. Því minni og fjær
sem freistingarnar eru, því betra.
En síðan er komið að þeim
mörkum að bann fer að hafa öfug
áhrif.
Ég hygg að svipað gildi um reyk-
ingar. Það sé vel hægt að íhuga
hvort gera eigi aðgengi að tóbaki
eitthvað erfiðara og sjálfsagt sé að
koma í veg fyrir óbeinar reykingar,
þar sem ágætur árangur hefur
náðst til að vernda það fólk sem
reykir ekki.
En fráleitt finnst mér að banna
alfarið að reykingar eða tóbaks-
notkun sjáist í kvikmyndum og
nógu mikið hafa læknar landsins
að gera þótt ekki bætist við að
auka við „læknadópið“ á þann
hátt að þeir ávísi á tóbak.
http://omarragnarsson.blog.is
Ómar Ragnarsson
Til hamingju
með daginn!
Íslenskur sjávarútvegur og framlag sjómanna skiptir
okkur öll máli. Við óskum sjómönnum og fjölskyldum
þeirra til hamingju með daginn.