Fréttablaðið - 04.06.2011, Page 19

Fréttablaðið - 04.06.2011, Page 19
LAUGARDAGUR 4. júní 2011 Sjálfstætt líf Flest viljum við vera þátt-takendur og tilheyra sam- félagi. Samfélag getur þýtt margt, hverfið sem við búum í, skólinn er samfélag nemenda, starfsfólks og foreldra skólans og kirkjan er samfélag þeirra sem hana sækja. Okkur þykir sjálfsagt að tilheyra samfélagi og hafa rétt á að taka þátt í því. Flestir hugsa sjaldnast um það hvert samfélag okkar er og á hvaða þátt við búum í því. Við erum bara hluti af samfélaginu án þess að spá neitt meira í það. Þegar fólk er fatlað horfir þetta öðruvísi við. Fatlað fólk er minnt á það á hverjum degi að samfélagið er ekki fyrir alla. Þetta er gert með því að hefta aðgengi að bygg- ingum, hefta aðgengi að upp- lýsingum samfélagsins, hefta aðgengi að vinnustöðum þess, hefta aðgengi að menntastofn- unum og umfram allt að hefta aðgengi að þjónustu sem er for- senda þess að geta lifað sjálf- stæðu lífi í því samfélagi sem ófötluðum stendur til boða. Margt fatlað fólk þekkir ekki þau réttindi sem það hefur eins og t.d. réttinn til að ákveða hvar það býr og með hverjum. Árið 2007 undirritaði Ísland samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. 19. grein samningsins er okkur tveimur mjög hugleikin en í henni segir að aðildarríkin skuldbindi sig til að tryggja „fötluðu fólki tækifæri til þess að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra, og að því sé ekki gert að eiga heima þar sem til- tekið búsetuform ríkir“. Til þess að þetta verði kleift verðum við að hætta að áætla fjármagn fyrir þjónustu til ákveðinna bygginga eins og gert er með sambýli og fara að skilgreina þjónustu og fjár- magn fyrir fatlað fólk sjálft óháð því hvar það býr eða með hverjum. Fólk hefur rétt til að ákveða hvernig þjónustu það vill og hvar það vill eiga heima. Ég, Gísli, er í dag stoltur íbúðareigandi í hverfinu sem ég ólst upp í. Ég er með not- endastýrða persónulega aðstoð sem gerir mér kleift að lifa sjálfstæðu lífi. Notendastýrð aðstoð þýðir að ég stýri þjón- ustunni með aðstoð fólks sem ég ræð sjálfur, líkt og Auði sem aðstoðar mig við að halda utan um þjónustuna mína og annað sem ég þarf, líkt og að skrifa þessa grein. Nú er ég þátttak- andi í öllu er varðar mitt líf. Ég nýt réttinda í samræmi við það sem segir í 19. grein samnings Sameinuðu þjóð- anna en ekki má gleyma því að þetta þjónustuform gerir fólki kleift að rækja skyldur sínar sem starfsmenn, nágrannar og borgarar í samfélaginu. Það hafa allir, sama hversu mikið fatlað fólk er, sínar leið- ir til að tjá óskir og vilja, við verðum bara að læra að hlusta og taka mark á því. Þannig gerum við fötluðu fólki kleift að vera hluti af samfélaginu. Réttindi fatlaðra Gísli Björnsson sendiherra samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, með aðstoð frá Auði Finnbogadóttur J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Kletthálsi Rvk Akureyri Reykjanesbæ Húsavík Vestmannaeyjum Stigar og tröppur til allra verka Áltrappa 5 þrep 5.990 Ath. margar stærðir Áltrappa 4 þrep 4.990 Ath. margar stærðir Álstigi 12 þrep 3.67 m 6.990 Álstigi 3x8 þrep 2.27-5.05 m 16.990 Álstigi/trappa 2x11 þrep 3.11-5.34 m 15.990 Multi-Function trappa 11.990

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.