Fréttablaðið - 04.06.2011, Síða 35
fjölskyldan
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ]
júní 2011
FRAMHALD Á SÍÐU 4
Vorið er tími ungviðisins í sveitum
landsins. Óvíða er þó jafn líflegt og á
Grjóteyri í Kjós því fyrir utan nýfædd
lömb, kálfa, kiðlinga, kettlinga, hvolpa,
hænuunga og folöld streyma þangað
börn af höfuðborgarsvæðinu.
Upplifa vorið í sveitinni
Anna Sigríður Ólafsdóttir og Anna Katrín Hilmarsdóttir með dúnmjúka kettlinga í fanginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Við höfum tekið á móti um sjö þúsund manns á hverju vori síðustu árin og tímum ekki að
hætta. Það er svo gaman að
sjá hvað börnin njóta þess að
umgangast húsdýrin, þefa af
þeim og gæla við þau,“ segir
Hildur Axelsdóttir, húsfreyja
á Grjóteyri í Kjós, sem ásamt
manni sínum, Kristjáni Finns-
syni, hefur tekið á móti leik-
skólabörnum í maí frá árinu
1967. Framan af komu börn-
in með starfsfólki leikskól-
anna en á seinni árum hafa
foreldrar bæst við og jafnvel
afar og ömmur. Aðstaðan til
að taka á móti hópum á Grjót-
eyri er þannig að öll dýrin eru
undir sama þaki, grillaðstaða
og leiksvæði er úti við og hægt
er að snæða inni við ef þannig
viðrar.
Fréttablaðið fylgdist með
hópi frá leikskólanum Dverga-
steini en leikskólastjórinn þar,
Elín Mjöll Jónasdóttir, var í
sinni 27. heimsókn að Grjót-
eyri. - gun
OKKAR Framtíð er ný og
kærkomin trygging sem
snýst um „efin” í lífi barna
okkar og ungmenna og
fjárhag þeirra á fullorðins-
árum. Allar upplýsingar
eru á vefsetrinu okkar.is
og þar er unnt að ganga
frá tryggingarkaupum með
einföldum hætti.
Er þitt barn
barn?
„efin
”
Framtíð
o
g
fjá
rhag fullor
ði
n
s
á
ra
n
n
afyrir
í lífin
u
ze
br
a
VIKUTILBOÐ Á LCD SKJÁ24”
1920x1080p
UPPLAUSN
Philips 241E1SB
24" LCD flatskjár með Full H D 1920x1080 punkta
upplausn, 25.000:1 í dýnamískri skerpu, 16.7 milljónir
lita, 5ms viðbragðstíma, VGA, DVI, ofl.
BETRA
ALLTAF
VERÐ
REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR
SEX VERSLANIR29.990
Gaman að hjálpa til
Ólöf Gunnlaugsdóttir nýtur lífsins í
sveitinni hjá ömmu og afa á sumrin.
SÍÐA 2
Farið hægar
og skoðið
meira
Góð ráð fyrir fjölskyld-
ur í fjallgöngum.
SÍÐA 6