Fréttablaðið - 04.06.2011, Qupperneq 40
blaðamaður grennslast fyrir um
þennan kafla í lífi hans.
Getuna til að takast á við ólík
og krefjandi verkefni þakkar
glyspopparinn reynslunni af sjó-
mennskunni á sumrin, enda hafi
ekki síður þurft kjark og þor til
að takast á við sjálfa áhöfnina
en óblíðnáttúruöflin. „Þetta var
þroskandi tími, þarna fullorðnað-
ist ég mjög hratt. Ég fékk meiri
ábyrgð og vinnu eftir því sem
árin liðu og ávann mér þannig
virðingu hinna, sem er ekkert
lítið mál enda sjómenn mikil
hörkutól,“ segir Haffi, sem lenti í
ýmsum ævintýrum á hafi úti.
„Eitt eftirminnilegasta atvikið
og reyndar skelfilegasta líka var
þegar við rákumst á annað skip.
Algjört neyðarástand ríkti um
tíma þar sem við bjuggumst allt
eins við að skipið sykki þá og
þegar. Sem betur fer slapp kjölur-
inn en tjónið var heilmikið.“
Þótt sjómannslífið hafi átt
vel við Haffa stefndi hugurinn
snemma annað. „Eiginlega gerð-
ist það á þessum tíma á túrunum
að mig fór að dreyma um að
verða hönnuður. Langaði ekkert
að verða frægur en var ákveðinn
í að ná langt hvert svo sem leiðin
lægi, en sjómennskan styrkti mig
og kenndi mér sjálfstjórn og aga
sem ég hef haft síðan. Hún veitti
mér líka frelsi, ég fékk tíma til að
átta mig á því hver ég er og hvað
ég vildi, ég blómstraði alveg í
þessu umhverfi. Þannig að ég tel
þessa reynslu hafa verið jákvæða
í alla staði og veitt mér ákveðið
forskot í lífinu.“
Að endingu fór þó svo að tón-
listin varð ofan á og um þessar
mundir er Haffi að leggja loka-
hönd á nýtt efni. „Ég er á kafi að
útsetja en er ekki alveg klár á því
hvernig það kemur út, hvort það
verður á diski eða með öðru sniði.
Svo ætla ég að gefa mér góðan
tíma í þetta, enda fullkomnunar-
sinni,“ segir hann.
Þig langar ekkert aftur á
sjóinn? „Ég gæti vel hugsað mér
það. Ég var að spá í að fara á sjó
hér en komst að þeirri niðurstöðu
að ég vildi frekar skella mér með
pabba við tækifæri og verja með
honum góðum tíma.“
Sjóaraeðlið segir þó alltaf til
sín og á morgun ætlar Haffi að
leggja leið sína niður á Reykja-
víkurhöfn þar sem Sjómanna-
dagurinn verður haldinn hátíð-
legur. „Yfirleitt eru helgarnar
mínar pakkaðar en þessi er til-
tölulega róleg svo ég ætla að gera
mér glaðan dag og rölta niður á
bryggju. Njóta lífsins og sam-
fagna með hinum sjóurunum,“
segir hann og glottir.
roald@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
„Sjómennskan styrkti mig og kenndi mér sjálfstjórn og aga,” segir Haffi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fyrirlestur um sjósókn kvenna á 18. öld , harmóníkutónar og ratleikur verða á dagskrá Sjóminja-
safnsins á Eyrarbakka á morgun. Ragnhildur Bragadóttir fjallar meðal annars um aðstæður íslenskra
sjókvenna, aðbúð, samfélagsstöðu, launakjör og afköst og hefst fyrirlesturinn klukkan 16.
Prúðbúin sjóræningjaáhöfn tekur
á móti gestum við Bótabryggj-
una á Grandagarði í dag í tilefni
Hátíðar hafsins. Hilmar Snorra-
son, skipstjóri á Sæbjörginni, skipi
Slysavarnafélagsins Landsbjarg-
ar, verður þar fremstur í flokki
klæddur í anda Jacks Sparrow. „Við
munum draga sjóræningjafána að
húni og líklega munu einhver sjó-
ræningjalög hljóma í hátalara-
kerfinu,“ upplýsir hann og hvetur
sem flesta til að draga fram sjó-
ræningjaklæðnað í tilefni dagsins.
Sæbjörgin fer þrjár ferðir með
farþega í dag, klukkan 13, 14 og
15 og komast um 500 gestir með
í hvert sinn. Ferðin tekur rúman
hálftíma og geta gestir virt fyrir
sér útsýnið um sundin blá fyrir
utan Reykjavíkurhöfn auk þess
sem hægt er að gæða sér á ljúf-
fengum kaffiveitingum sem
kvennadeild Landsbjargar verður
með til sölu.
En hvernig vaknaði hugmyndin
að sjóræningjaþemanu? „Við fórum
að velta því fyrir okkur í vetur
hvað við gætum gert til að brydda
upp á nýjung í tengslum við Hátíð
hafsins. Þá skaut þessi hugmynd
upp kollinum og öllum leist vel á
enda skemmtilegt fyrir krakk-
ana,“ svarar Hilmar en búning-
ar áhafnarinnar koma úr ýmsum
áttum. „Sumt var til í skápum,
annað keyptum við hérlendis eða
erlendis,“ segir hann glaðlega.
Hilmar tekur sérstaklega fram
að sjóræningjar Sæbjargarinnar
séu hvorki þjófóttir né svikulir.
„Við erum þessir góðu sjóræn-
ingjar sem vilja vekja börnin til
umhugsunar um öryggismál,“
segir hann.
Sæbjörgin fer einnig þrjár ferð-
ir á morgun. „Þá leggjum við hins
vegar sjóræningjalarfana á hill-
una og drögum fram spariföt Sjó-
mannadagsins,“ segir Hilmar.
Margt annað er í boði á Hátíð hafs-
ins en dagskrána má kynna sér á
vefsíðunni www.hatidhafsins.is
solveig@frettabladid.is
Góðlegir sjóræningjar
herja á Faxaflóamið
Hilmar Snorrason bregður sér í hlutverk sjóræningjaskipstjóra í dag þegar hann siglir Sæbjörginni, skipi
Slysavarnafélagsins Landsbjargar, undir sjóræningjafána. Hann hvetur fólk til að mæta í búningum.
Vígreif sjóræningjaáhöfn Sæbjargarinnar sem býður gestum í siglingu í dag klukkan 13, 14 og 15. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjöllistamaðurinn
Jay Gilligan frá
Bandaríkjunum,
meðlimur í sirkusnum
Shoebox, sýnir listir
sínar í Kvikunni í
Grindavík á morgun
klukkan 16. Jay er
fjöllistamaður á
heimsmælikvarða
og hefur leikið listir
sínar um allan heim.
Sýningin, sem ætluð
er öllum aldurshópum,
er hluti af hátíðinni
Sjóarinn síkáti.
www.grindavik.
is/sjoarinnsikati
Laugavegi 53 • s. 552 3737
Opið mánudag til föstudag 10-18,
laugardag 10-17
20% afsláttur
af öllum vörum lau. og mán.
www.facebook.com/IanaReykjavik
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt.
Nánari upplýsingar á
visir.is/dreifing