Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 4. júní 2011 3
Hjá Yoyo er boðið upp á tólf mismunandi tegundir af ís
á dag. Alla daga er hægt að fá vanillu- og súkkulaðiís en
öðrum tegundum er skipt út en í heildina eru tegundirnar
fimmtíu til sextíu. Sem dæmi um nokkrar ístegundir sem í
boði hafa verið eru:
Á hverjum degi stendur valið á milli tólf
ístegunda auk meðlætis úr ávaxta- og
nammibar. MYND/ÚR EINKASAFNI
Á meðal tegunda sem boðið hefur verið
upp á eru tíramísú, lakkrís og mangó.
MYND/ÚR EINKASAFNI
„Við erum að fara að opna aðra
ísbúð hjá Domus Medica. Við
reiknum með að hún verði opnuð
um miðjan júní,“ segir Ásgeir
Einars son, einn af eigendum
Yoyo ísbúðarinnar. Á síðasta ári
var fyrsta Yoyo ísbúðin opnuð
við Nýbýlaveg 18 í Kópavogi og
að sögn Ásgeirs hefur hún notið
mikilla vinsælda. „Íslendingar
hafa tekið okkur mjög vel.“
Nýja ísbúðin hjá Domus Medica
verður með svipuðu sniði og sú
fyrri. „Við verðum líka með sjálfs-
afgreiðslu með sex ísvélum. Það
verður sami nammi- og ávaxta-
bar,“ segir Ásgeir en Yoyo ís búðin
var sú fyrsta sinnar tegundar á
Íslandi þar sem sjálfsafgreiðsla er
á ís og meðlæti. „Afgreiðslan hjá
okkur er mjög hröð. Við bjóðum
upp á ís í boxi. Það er ein stærð af
boxum og fólk fer í ís vélarnar og
skammtar sér sjálft. Svo er hægt
að velja á milli tuttugu tegunda af
nammi og ávöxtum af ávaxtabar
og nammibar, ef fólk hefur áhuga“
segir Ásgeir og heldur áfram: „Að
lokum er hægt að toppa ísinn með
fjórum tegundum af sósum. Þegar
ísinn er tilbúinn er hann vigtaður.
Hundrað grömm hjá okkur eru á
169 krónur sem ég tel vera ódýrt.
Meðal ísboxið er í kringum 450
krónur. Ég held að við séum mjög
sanngjarnir hvað verðlagningu
varðar.“
Ísinn er jógúrtís sem búinn er
til á staðnum. „Ísinn er gerður hjá
okkur daglega þannig að hann er
alltaf ferskur,“ segir Ásgeir og
bætir við að jógúrtís sé hollari
en klassíski rjómaísinn. „Þetta er
fituminni ís. Í dag er hann í kring-
um þrjú prósent fita.“
Ásgeir segir að á hverjum degi
sé boðið upp á tólf mismunandi
tegundir af ís. Súkkulaði- og
vanilluís er alltaf á boð-
stólum en stöðugar
breytingar eru á
öðrum tegund-
um. „Við sjáum
samt að fólk
v i l l h a fa
fleiri teg-
undir fast-
ar. Það er
leiðinlegt
að fara í
ísbúðina
og ísinn
þinn er
ekki á boð-
stólum,“
segir Ásgeir
og bætir við
að stefnt sé
að því að festa
fleiri vinsælar
tegundir. „Eins og
banana- og jarðarberja-
ís. Þetta eru tegundir
sem klárlega verða að vera
fastar. Það má ekki rótera of
miklu,“ upplýsir Ásgeir, sem
segir að fimmtíu til sextíu tegund-
ir séu í boði í heildina.
KYNNING
Yoyo ísbúðin var sú fyrsta sinnar
tegundar á Íslandi, þar sem
sjálfsafgreiðsla er á ís og með-
læti. Afgreiðslan er mjög hröð að
sögn Ásgeirs.
New York ostakaka
Kíví og lime
Bananar og ber
Pina colada
Havaíísk kókoshneta
Grænt te
Sykurpúðar
Villt kirsuber
Bláber
Pistasíur
Hvítt súkkulaði
Mandarína
Sítróna
Apríkósa og mangó
Grænt epli
Hvítt súkkulaði og jarðarber
Fimmtíu tegundir
Ný Yoyo jógúrtísbúð
opnuð í sumar
Yoyo ísbúðin við Nýbýlaveg í Kópavogi hefur notið mikilla vinsælda frá því hún var opnuð í lok síðasta
sumars. Til að fylgja eftir velgengninni verður opnuð ný Yoyo ísbúð hjá Domus Medica um miðjan júní.
Ísinn er jógúrtís
sem búinn er til
á staðnum. „Ísinn
er gerður hjá okkur
daglega þannig að
hann er alltaf ferskur,“
segir Ásgeir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA