Fréttablaðið - 04.06.2011, Qupperneq 49
LAUGARDAGUR 4. júní 2011 7
Aðeins reyklausir einstaklingar koma til greina í starfið.
Vegna ört stækkandi hóps viðskiptavina Vöku
óskum við eftir starfsmanni við þjónustu á
bifreiðaverkstæði.
Hæfniskröfur:
· Vanur bifreiðaviðgerðum.
· Gott viðmót og áhugi að bæta sig í starfi.
· Stundvísi og snyrtimennska.
· Góð mannleg samskipti.
· Öguð vinnubrögð.
Áhugasamir geta sótt um starfið með því að senda umsókn
á starf@vakahf.is
VAKA er eitt fjölhæfasta bílaþjónustufyrirtæki landsins og
er í örum vexti. Félagið rekur öflugt dekkjaverkstæði,
viðgerðaverkstæði, bílapartasölu, dráttarbílaþjónustu og
úrvinnslu bíla auk þess að vera með uppboð á vegum
sýslumanna. VAKA er nýflutt í glæsilega aðstöðu að
Skútuvogi 8 þar sem öll starfsemi félagsins fer fram.
Starfsmaður á
bifreiðaverkstæði
Sérkennari
Við Menntaskólann í Kópavogi eru laus til
umsóknar ein staða sérkennara á starfsbraut
fyrir einhverfa nema við skólann. Um
afleysingu er að ræða næsta skólaár.
Launakjör fara eftir kjarasamningi framhaldsskóla-
kennara og stofnanasamningi MK. Nauðsynlegt
er að hafa háskólapróf í sérkennslufræðum og
kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Reynsla af
starfi með einhverfum einstaklingum er æskileg.
Umsóknarfrestur er til 15. júní. Ekki þarf að sækja
um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn
þarf að fylgja afrit af prófskírteini auk yfirlits um
fyrri störf. Umsókn skal senda til skólameistara.
Senda má umsókn í tölvupósti á netfangið
margret.fridriksdottir@mk.is.
Upplýsingar um skólann eru á heimasíðu
www.mk.is . Frekari upplýsingar um starfið
veita skólameistari, Margrét Friðriksdóttir og
aðstoðarskólameistari Helgi Kristjánsson í síma
594 4000.
Skólameistari
Starf sérfræðings á fjárreiðu- og eignaskrifstofu
Fjármálaráðuneytið
Sérfræðingurinn
Hæfniskröfur
Nauðsynlegt
Um er að ræða
Umsóknarfrestur
Guðný Harðardóttir hjá STRÁ MRI
óskar eftir að ráða starfsmann á fjárreiðu- og eignaskrifstofu
ráðuneytisins. Helstu verkefni skrifstofunnar lúta að framkvæmd fjárlaga, starfsháttum í
ríkisrekstri og ýmsum þáttum í fjármálastjórn ríkisins.
mun sinna verkefnum á sviði opinberra innkaupa og samskipta ríkis
og einkamarkaðar. Í því felst m.a. stefnumótun, innleiðing og eftirfylgni verkefna á því
sviði. Þá fellur meðferð eignarhluta ríksins í fyrirtækjum undir þetta starfssvið, s.s.
stefnumótun um eigendahlutverk ríkisins í fyrirtækjum og framkvæmd þeirra mála.
eru að umsækjendur hafi háskólapróf í viðskiptafræði, lögfræði eða
stjórnsýslu eða sambærilega menntun og er meistarapróf kostur. Gott er að viðkomandi
hafi reynslu af opinberri stjórnsýslu, verkefnastjórnun, stefnumótun og viðskiptum.
Æskilegt er að umsækjendur búi yfir þekkingu á umhverfi fyrirtækjarekstrar.
er að umsækjendur eigi gott með að miðla hugmyndum í mæltu og rituðu
máli, séu árangursmiðaðir, skipulagðir, sjálfstæðir í vinnubrögðum, eigi gott með
samstarf og sýni frumkvæði.
fullt starf. Kjör eru samkvæmt kjarasamningum Félags
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Starfið hentar bæði konum og körlum.
er til og með 20. júní nk. Ath. fyrirspurnum verður eingöngu svarað
hjá STRÁ MRI.
veitir nánari upplýsingar. Vinsamlega sendið
umsóknir og meðfylgjandi prófgögn til stra@stra.is. Viðtalstími er alla virka daga frá
kl.13-15 meðan á umsóknarferlinu stendur. Sjá nánar www.stra.is.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Samkaup Strax Laugarvatni leitar að öflugum verslunarstjóra
VILTU BÚA Í HJARTA
ÍSLENSKRAR NÁTTÚRU?
STARFSSVIÐ:
– ber ábyrgð á rekstri verslunarinnar
– annast samskipti við viðskiptavini
– hefur umsjón með ráðningum starfsmanna
og almennri starfsmannastjórnun í verslun
– ber ábyrgð á birgðahaldi í verslun
– önnur tilfallandi störf
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá sendist
á umsokn@samkaup.is
Allar nánari upplýsingar veitir
Falur J. Harðarson, starfsmannastjóri
í síma 421 5400.
Umsóknarfrestur er til og með 12. júní nk.
Litríkt mannlíf og nálægð við Reykjavík.
Stutt í stórbrotnar náttúruperlur.
LAUGARVATN:
m
ar
kh
o
nn
un
.is