Fréttablaðið - 04.06.2011, Síða 62
8 fjölskyldan
Grín og glens Mikið verður um
að vera í miðborginni í dag. Fyrir
utan Hátíð hafsins á Grandagarði
og árlegan Blómadag á Skóla-
vörðustíg verður dagskrá sniðin
fyrir börn í boði á Lækjartorgi og
víðar. Barnaleikhúsið sýnir
Ævintýri Lilla á Lækjartorgi
klukkan 13 og í kjölfarið mun Solla
stirða stíga á svið. Klukkan 14
skemmtir Solla síðan við Kjörgarð
á Laugavegi 59 og við útibú
Landsbankans að Laugavegi 77
klukkan 14.30. Á Hátíð hafsins
verður í boði margvísleg afþrey-
ing fyrir allar kynslóðir, leiktæki og
hægt að fræðast um menningar-
heim sjómannalífsins og alls kyns
góðgæti úr matar kistu hafsins.
Ísbíltúrinn
Upplagt er að
skella sér í
ísbíltúr um
helgina, enda ís
svalandi og dísætt
lostæti sem kætir alla
fjölskylduna. Um
land allt er að
finna úrvals
ísbúðir þar sem
úr nægu er að
velja og því ætti enginn
að vera svikinn af því að skella sér
af stað. Þeir sem eru svo lánsamir
að búa í nágrenni við eina slíka
gætu að auki sameinað tvennt,
góðan göngutúr og
umhverfisvernd, með því að skilja
bílinn eftir heima.
Ævintýraheimur Laundromat
Café í Austurstræti er
fjölskylduvænt kaffihús. Þar er að
finna stórt barnasvæði,
sannkallaðan ævintýraheim, þar
sem yngsta kynslóðin getur
dundað sér meðan þeir fullorðnu
hafa það gott og njóta veitinga.
Um helgar er líka boðið upp á
sérstakar sögustundir fyrir börn.
Laundromat Café er opið
mánudaga til fimmtudaga frá
klukkan 8 til 1, föstudaga til 3 og
laugardaga frá 10 til 3 og
sunnudaga frá 10 til 1.
GAGN&GAMAN
Safnaðu 5 toppum af Merrild eða Senseo-
pökkum og sendu til Merrild fyrir 16. júní.
Gullverðlaun að verðmæti 350.000 kr.
Tískuráðgjöf í heilan dag með Karli Berndsen, 100 þúsund kr.
úttekt í Debenhams, ársbirgðir af Merrild eða Senseo kaffi o.fl.
10 silfurverðlaun
Kaffivél frá Heimilistækjum og ársbirgðir af Merrild eða
Senseo kaffi.
20 bronsverðlaun
Ársbirgðir af Merrild eða Senseo kaffi.
1. vinningur
að verðmæti
350.000 kr.
Fjöldi aukavinninga,
m.a. kaffivélar frá
Heimilistækjum og
Merrild ársbirgðir af
kaffieða Senseo
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
6
9
17
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki