Fréttablaðið - 04.06.2011, Page 64
4. júní 2011 LAUGARDAGUR36
FJÖR Í FJÖRUFERÐ Krakkar, foreldar og starfsfólk á leikskólanum Nóaborg skemmtu sér dável í fjöruferð
við Ægisíðu í vikunni. Þess var vel gætt að öll nauðsynleg tæki og tól væru við hendina, svo sem stígvél,
pollagallar og háfar til að veiða í skeljar, steina og aðra fjársjóði fjörunnar.
Sjónarhorn
Ljósmynd: Gunnar V. Andrésson
Aðfaranótt hins 4. júní árið 1989, fyrir réttum 22 árum, réðist kín-verski herinn til atlögu við mótmælendur á Tiananmen-torgi, Torgi
hins himneska friðar, í höfuðborginni Peking.
Áður en yfir lauk lágu hundruð manna í valnum, fleiri þúsund höfðu
verið handtekin og alda andófs, sem hafði fram að þessu náð áður óþekkt-
um hæðum, var barin niður af mikilli hörku. Þetta blóðbað hafði gríðarleg
áhrif á ímynd Kína út á við og fordæmdu helstu þjóðarleiðtogar heimsins
valdbeitingu kínverskra yfirvalda.
Forsaga þessa harmleiks var friðsamleg mótmæli milljóna ungmenna,
aðallega námsfólks, sem höfðu um sjö vikna skeið neitað að yfirgefa torgið
fyrr en kröfum þeirra um lýðræðislegar umbætur yrði mætt. Stjórnvöld
höfðu miklar áhyggjur af framvindu mála og skipuðu andófsfólkinu að
láta af aðgerðum og yfirgefa svæðið. Skriðdrekar voru sendir af stað og
hófu skotárás á torginu um klukkan 4 að nóttu.
Mikil ringulreið greip um sig þegar hermenn hleyptu af skotum í allar
áttir. Flestir hörfuðu en margir veittu mótspyrnu og svöruðu byssukúlum
með grjótkasti og bensínsprengjum.
Um morguninn hóf herinn aftur skothríð á torgið og létu þá tugir
manna í viðbót lífið.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa og hvöttu leiðtogar helstu ríkja heims,
þar á meðal Mikhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, kínversk stjórn-
völd til að feta braut í átt til umbóta eins og hann hafði sjálfur gert. Auk
þess fordæmdu Bretar og Bandaríkjamenn hörkuna sem mótmælendur
voru beittir og í kjölfarið settu Bandaríkin og Evrópusambandið vopna-
sölubann á Kína, sem stendur enn í dag.
Atburðirnir á Torgi hins himneska friðar höfðu þau áhrif að enn harðar
og fyrr var tekið á mótmælum en áður. Þó að efnahagsleg velmegun hafi
aukist hratt síðustu ár eru mannréttindamál þar í landi enn mikið deilu-
efni, sem sést á Nóbelsverðlaununum sem Liu Xiabo hlaut.
Margir þeirra sem handteknir voru í tengslum við mótmælin sitja enn
á bak við lás og slá og stjórnvöld í Kína vinna markvisst að því að þagga
niður umræðu um grimmdarverkin. Til dæmis hefur engin opinber tala
látinna eða handtekinna verið gefin út, en það gætu verið allt frá 300 upp
í fleiri þúsund. - þj
Heimildir: History.com, BBC, Reuters.
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1989
Blóðbaðið í Peking
Friðsamlegt andóf barið niður með harðri hendi
Hótel Hilton Nordica fimmtudaginn 9. júní nk. kl. 8:00 – 10:15.
Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins er kynnt niðurstaða rannsóknar um
fjárhagsstöðu og fjárhagslegar endurskipulagningar stærri fyrirtækja og
eignarhald þeirra. Þá er farið yfir sjónarmið um endurskipulagningu banka
á fyrirtækjum og kynntar leiðir til úrbóta.
HÚS OPNAR Kaffi og meðlæti - 8:00 - 8:30
FYRRI HLUTI
SKÝRSLA SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Vandi atvinnulífsins og samkeppninnar
Benedikt Árnason, hagfræðingur
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins
Sonja Bjarnadóttir, lögfræðingur
Eftirlit með yfirtökum banka á fyrirtækjum
SEINNI HLUTI
HVERT SKAL STEFNT?
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ
Borgartúni 26, 125 Reykjavík,
www.samkeppni.is
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS
Skráning á ráðstefnuna fer fram á
www.samkeppni.is
Fundarstjóri er Rögnvaldur J. Sæmundsson, formaður stjórnar SamkeppniseftirlitsinsDagskrá //