Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 76
4. júní 2011 LAUGARDAGUR48 48 menning@frettabladid.is Ljósmyndasýning Svavars Jónatanssonar verður opnuð Skaftafelli í dag. Myndirnar eru unnar úr myndbandsverki sem hann lauk við í fyrra. Svavar Jónatansson ljósmyndari hefur síðan 2007 ferðast reglu- lega með flutningabílum og rútum um landið og tekið myndir út um hliðarrúðuna á nokkurra sekúndna fresti. Hann hefur komið sér upp myndabanka sem í eru um 200 þús- und myndir. Í fyrra kom út verkið Innland/Útland-Ísland, myndbands- verk sem samanstóð af 40 þúsund ljósmyndum og frumsaminni tón- list Daníels Ágústs Haraldssonar. Svavar heldur tvær sýningar með sérunnu efni frá svæðum Vatnajökulsþjóðgarðs og Snæfells- jökulsþjóðgarðs. Sú fyrri opnar í gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli í dag. „Upphaflega ætlaði ég að ferðast um landið á mótorhjóli og taka stakar myndir hér og þar,“ segir Svavar um verk- efnið. „En síðan þróaðist hugmynd- in út í það að fá far með flutninga- bílum og rútum og taka myndir á nokkurra sekúndna fresti.“ Svavari telst til að hann hafi farið fjóra heila hringi í kringum landið, auk ótal styttri skottúra. Hið mikla magn mynda sem hann hefur tekið býður upp á nær ótelj- andi möguleika til úrvinnslu, til dæmis að afmarka sýningar við ákveðin svæði og stækka ákveðnar myndir. „Ég komst að því að ég átti fleiri en eina mynd frá sumum stöð- um sem voru teknar frá svo til nákvæmlega sama sjónarhorni. Í kjölfarið fór ég að leita skipulega og hef fundið slíkar myndir frá um hundrað ólíkum stöðum. Í fyrstu réð tilviljun því að ég náði fleiri en einni mynd af sama stað en með árunum eru ákveðnir staðir sem ég þekki úr grunninum sem ég mynda alltaf þegar ég fer fram hjá þeim; það er næstum eins og ég sé með þá forritaða í hausnum. Ég held ég eigi til dæmis um fimmtán myndir af Svínafellsjökli.“ Gífurleg vinna fór í að vinna úr og skipulegga myndagrunninn, en Svavar segir umfangið aldrei hafa dregið úr honum móð. „Þvert á móti, þessi hugmynd hefur haldið mér hugföngnum frá því hún byrj- aði að gerjast 2007 og kveikt enn meira í mér eftir því sem á líður frekar en hitt.“ Sýning Svavars frá Snæfells- jökulsþjóðgarði opnar á Hellnum 22. júní næstkomandi. Spurður um framhaldið segist Svavar ætla að halda áfram að safna mynd- um í sarpinn og bæta við nýjum landshlutum. „Svo væri auðvitað frábært að fara út fyrir landstein- ana og vinna með annars konar landslag.“ Sýningin í Skaftafelli er í sam- starfi við Vatnajökulsþjóðgarð og styrkt af Vinum Vatnajökuls. Sýningin á Snæfellsnesi er í sam- starfi við Snæfellsjökulsþjóðgarð og styrkt af Menningarráði Vest- urlands. Báðar sýningarnar standa fram á haust. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á inlando- utland.com bergsteinn@frettabladid.is Ísland í gegnum HLIÐARGLUGGANN SVAVAR OG DANÍEL Sá síðarnefndi samdi tónlist við myndbandsverk Svavars. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Dans ★★★ Haze Beijing Dance Theatre Sýnt í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð Reykjavíkur Hreyfing í fyrirrúmi Eftir miðja 20. öld breiddist ballettinn út frá Vesturlöndum til landa eins og Tyrk- lands, Íran, Japans og Kína. Eftir að ballettinn hafði náð fótfestu í þessum löndum fylgdi vestrænn nútímadans á eftir, í fyrstu sem þáttur í þjálfun dansaranna en seinna sem sjálfstætt listform. Beijing Dance Theatre var stofnað 2008 og er fyrsti nútímadansflokkurinn í Kína samkvæmt heimasíðu flokksins. Þó að hann skil- greini sig sem nútímadansflokk byggir hann á færni í hefðbundnum ballett auk nútímadansins. Hann leggur einnig áherslu á að tengja hefðbundna kínverska menningu og dans inn í listsköpun sína þó að það sé lítt sýnilegt í þessu dansverki. Í sýningunni Haze var klassísk fagurfræði í hreyfiforða dansaranna áberandi. Langar beinar línur, strekktar ristar og ögun í hreyf- ingum báru ballettþjálfuninni vitni en einnig mátti merkja sterk áhrif frá móderndansi millistríðsáranna. Móderndansinn kom fram sem andsvar við ballettinum í upphafi 20. aldar og hafði öðlast sess sem viðurkennt þjálfunarform (t.d. Graham-, Horton- og Limon-tækni) upp úr miðri öldinni. Móderndansararnir vildu vinna með þyngdar- lögmálinu en ekki reyna sífellt að yfirvinna það eins og í ballettinum, og gólfvinna varð hluti af dansinum. Dansarar Beijing Dance Theatre eru allir ungir og vel þjálfaðir. Búningarnir, þröng æfingaföt, gerðu dönsurunum auðvelt fyrir að nýta hreyfifærni sína og gáfu áhorfendum tækifæri til að njóta hverrar hreyfingar. Lítill sem enginn munur var á hlutverkum kynjanna í dansverkinu. Það eina sem skildi þau að var að stelpurn- ar voru í æfingabol og þröngum dansbuxum en strákarnir í sams konar buxum en berir að ofan. Hreyfingin og framsetning á líkamlegri færni dansaranna var í forgrunni í sýningunni. Dýnan á gólfinu, risastór og mjúk, undirstrikaði þetta því vegna hennar gátu dansararnir leyft sér að stökkva, detta og kasta sér af fullum krafti án þess að vera hræddir um meiðsli. Dýnan gerði dansinn þannig leikandi og skemmtilegan á að líta en á sama tíma gerði hún danssköpunina stundum ónákvæma, sérstaklega í upphafi verksins. Það var greinilega ekki alltaf auðvelt að stoppa sig á réttum tíma eða á réttum stað á svona mjúku undirlagi. Óreiðan gaf verkinu þó hlýjan blæ og kom í veg fyrir að sýningin líktist æfingatíma eða fim- leikasýningu í stað listræns dansverks. Dansverkið Haze er einfalt og fallegt verk. Sviðsmyndin og ekki síst lýsing voru vel gerð og þegar ég áttaði mig á því að reykurinn sem lagðist yfir sviðið og salinn var tákn misturs og mengunar tók ég hann fullkomlega í sátt. Í huganum þakkaði ég fyrir tært sveitaloftið sem hafði umlukið mig fyrr um daginn. Tónlistin var flott, eilítið eintóna og þunglyndisleg á köflum, en í fullu samræmi við það sem gerðist á sviðinu. Verkið er ólíkt því sem íslenskir dansáhorfendur hafa undanfarið fengið að sjá á sviði hér heima. Dansleikhúsformið hefur verið sterkt hér, auk þess sem ögrandi framsetning hugmynda og afbygging hvers konar hefur verið vinsæl. List- dansinn hefur mörg andlit, sem hvert og eitt býr yfir sinni sérstöku „fegurð“. Mikið og fjölbreytt úrval dans og danstengdra sýninga, eins og Listahátíð hefur boðið upp á nú í vor, gerir starf dansgagnrýnandans skemmtilegt. Sesselja G. Magnúsdóttir Niðurstaða: Áhugaverð sýning þar sem áhorfendur fengu að sjá unga og vel þjálfaða dansara sýna getu sína í fallegu hreyfilistaverki. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 04. júní 2011 ➜ Tónleikar 15.00 Hljómsveitin Lame Dudes fagn- ar sumarkomu og nýútgefnum geisla- disk í Cintamani búðinni, Bankastræti 7. 17.00 Söngsveitin Fílharmónía heldur tónleika í Ísafjarðarkirkju. Yfir- skrift tónleikanna er sótt í ljóð Tómasar Guðmundssonar. 17.00 Schola Cantorum, Mótettukór Hallgrímskirkju og Kammersveit Reykjavíkur frumflytja verkið Fléttu eftir Hauk Tómasson í Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. 17.30 Tónleikar með Camerarctica verða haldnir kl. 17.30 í Hafnarborg í tilefni Bjartra daga í Hafnarfirði. 20.00 Raftónleikar verða á Bakkusi í kvöld í samstarfi við TodaysArt í Hol- landi. Tónleikunum verður streymt beint yfir í Korzo theatre í Haag. 23.00 Bang Gang, Ourlives og Cliff Clavin halda tónleika á Nasa. ➜ Opnanir 14.00 Listmálararnir Ásta R. Ólafs- dóttir og Bjarni Sigurbjörnsson opna sýningar sínar í húsakynnum Reykjavík Art Gallery í dag kl. 14. Yfirskrift sýning- anna beggja er Fegurðin og fíflið. 16.00 Grafíksýningin Ísland – abstrakt á abstrakt ofan opnar í dag kl. 16 í Hafnarhúsinu. Aðgangur ókeypis. ➜ Uppákomur 10.00 Sumarpartý verður í versluninni Spúútnik á Laugavegi alla helgina. Haffi Haff mun einnig frumflytja sumarsmelli. 14.00 Hitt húsið heldur svokallaðan All-but-clothes markað í dag. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is BARBARA ÁRNASON FRAMLENGD Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að framlengja yfirlitssýningu Barböru Árnason til og með 15. júní. Á morgun verður Guðbjörg Kristjánsdóttir sýningarstjóri með leiðsögn kl. 15.00. Yfir 250 verk eftir listakonuna eru til sýnis auk fjölda myndskreyttra bóka, jóla- og tækifæriskorta, jólamerkja og fleira sem Barbara hefur skreytt. Mörg verkanna á sýningunni eru í einkaeigu og hafa aldrei áður komið fyrir almenningssjónir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.