Fréttablaðið - 04.06.2011, Side 78
4. júní 2011 LAUGARDAGUR50
folk@frettabladid.is
Tónlist ★★★★
Don‘t Want to Sleep
FM Belfast
Og allir að hoppa svo!
FM Belfast sló í gegn svo um munaði með
fyrstu plötunni sinni How to Make Friends sem
kom út haustið 2008. Það getur verið erfitt að fylgja eftir svo vel heppnaðri
frumsmíð, en meðlimir FM Belfast hafa greinilega ákveðið að flana ekki
að neinu og nú, tæpum þremur árum seinna, er plata númer tvö loksins
komin út.
How to Make Friends var elektrópopp partíplata sem einkenndist af
flottum töktum, grípandi melódíum og ýktum falsettu-viðlögum sem
maður gat ekki annað en sungið með. Sama lýsing gæti að miklu leyti átt
við um Don‘t want to Sleep. Stuðið er enn til staðar og viðlögin eru enn
jafn grípandi. Hins vegar hafa þau Árni Rúnar, Lóa, Árni Vilhjálms og Örvar
unnið mikið í hljómnum. Nýja platan er mun fjölbreyttari tónlistarlega.
Það er fullt af flottum lögum hér. I Don‘t Want to go to Sleep Either er
smellur og það sama er hægt að segja um upphafslagið Stripes, hið rokk-
aða Noise og lögin American, Believe, We Fall, Vertigo og hið skemmtilega
gerviefnalega Mondays. Það eru ellefu lög á Don‘t Want to Sleep og þau
eru flest góð þó að platan detti aðeins niður á endasprettinum.
Don‘t Want to Sleep er á heildina litið fínt framhald af How to Make
Friends. Tónlistin hefur þróast töluvert, en gleðin er enn þá til staðar. Mann
langar að dansa, eða allavega hoppa og baða út öllum öngum þegar maður
hlustar á hana. Gaman.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Þó að tónlistin hafi þróast er stuðið á sínum stað á FM Belfast
plötu númer tvö.
Ef marka má helstu hönnuði og tískuspek-
inga eru stuttir bolir og fatnaður sem
sýnir beran maga ein af tískubólum
sumarsins. Tíska tíunda áratugar-
ins hefur verið að koma aftur í
litlum skömmtum undanfarið og
magabolirnir eru hluti af þeirri
þróun. Hönnuðirnir vinsælu
Alexander Wang og Vivienne
Westwood eru meðal þeirra
hönnuða sem eru með stutta
boli og skyrtur í fatalínum
sínum.
Stjörnurnar í Hollywood eru oftar en ekki
fljótar að taka við nýjum tískustefnum
og hafa þær Rihanna, Jennifer Lopez, Leig-
hton Meester og töffarinn Robyn allar sést
skarta stuttum bolum undanfarið. Það er því
ljóst að magabolirnir eru komnir aftur á
tískuradarinn í bili.
MAGABOLIR AFTUR Í TÍSKU
LITRÍK Sænski söngfuglinn Robyn
er þekkt fyrir að hafa mikið dálæti
á tísku tíunda áratugarins og kemur
það því ekki á óvart að hún skuli
klæðast magabolum í sumar.
SVART Hönnuðurinn Alex-
ander Wang sýndi margar
útgáfur af magabolum í
línu sinni en hann hefur
notið mikilla vinsælda í
tískuheiminum síðustu ár.
MAGAPEYSA Leikkonan
Leighton Meester er hér
með bert á milli á tísku-
vikunni í New York og ber
það vel. NORDICPHOTOS/GETTY
ÓHRÆDD Söngkonan Rihanna er
óhrædd að prófa nýjar tískubólur og
ekki lengi að koma sér í magabol.
PEYSA Þessi peysa frá Vivienne Westwood hylur ekki
mikið. NORDICPHOTOS/AFP
HRESSANDI Jennifer
Lopez skapaði
fjölmiðlafár þegar
hún mætti á rauða
dregilinn og sýndi
beran magann
enda þykir hún í
ansi góðu formi.
Poppsöngkonan Pink eignaðist sitt
fyrsta barn í fyrrinótt og greindi
sjálf frá því á samskiptavefsíð-
unni Twitter skömmu síðar. „Við
erum í skýjunum yfir fæðingu litlu
fallegu stúlkunnar okkar, Willow
Sage Hart. Hún er gullfalleg eins
og pabbi hennar.“
Barnsfaðir og eiginmaður Pink
er mótorkross-atvinnumaðurinn
Carey Hart, en þau hafa verið par
síðan árið 2001. Pink vissi ekki
kynið á barninu fyrir fæðingu og
talaði opinskátt um það í viðtals-
þætti Ellen DeGeneres á síðasta
ári að henni þætti óþægilegt að
almenningur væri að fylgjast með
óléttunni. „Ég er mjög stressuð en
vona að ég eigi eftir að standa mig
í foreldrahlutverkinu.“
Eignaðist stúlku
NÝBÖKUÐ MÓÐIR Söngkonan Pink
eignaðist stúlkuna Willow Sage Hart
aðfaranótt föstudags. NORDICPHOTO/GETTY
Hljómsveitin Bang Gang með
Barða Jóhannsson í farar-
broddi spilar á Nasa í kvöld.
Þetta verða fyrstu tónleikar
sveitarinnar í Reykjavík síðan
í Þjóðleikhúsinu í nóvember en
einnig þeir síðustu í nokkurn
tíma. „Ég ætla að spila nýtt
lag sem ég gerði með Bjarna í
Cliff Clavin. Við ætlum að taka
það saman,“ segir Barði og á
þar við lagið Bloodshot Eyes.
Gömul og góð Bang Gang lög
verða einnig á efnisskránni.
Sveitin spilar á tónlistarhátíð í
París 10. júlí. Ný plata er síðan
væntanleg í október ef allt
gengur að óskum.
Spilar nýtt
lag í kvöld
MÁNUÐIR er tíminn sem samband leikkonunnar Cameron Diaz við hafnaboltakapp-
ann Alex Rodriguez entist en því lauk í vikunni. Diaz er því enn á ný á lausu og segir
vefsíðan showbizspy.com leikkonuna vera í mikilli ástarsorg. Hún hefur áður verið í sam-
bandi með frægum mönnum á borð við Justin Timberlake, Matt Dillon og Jared Leto.
12
Nýtt!
Hvað ætlar þú
að hafa í matinn?
Óska eftir að kaupa enska
linguaphone námskeiðið
English course námskeiðið upplýsingar 865 7013
S
IG
IL
LU
M SCH
O
L
Æ
R
E
Y
K
J A V I C E
N
S
I
S
Opið hús í Menntaskólanum í Reykjavík
fyrir 10. bekkinga og forráðamenn þeirra verður
sunnudaginn 5. júní kl 14 - 16.
Allir eru hjartanlega velkomnir