Fréttablaðið - 04.06.2011, Síða 80
4. júní 2011 LAUGARDAGUR
Söngkonan Lily Allen hefur
ákveðið að taka upp eftirnafn
verðandi eiginmanns síns, Sam
Cooper, þegar þau ganga í það
heilaga hinn 11. júní. „Lily hefur
nú þegar sagt umboðsskrif-
stofunni og yfirmönnum plötu-
fyrirtækisins að héðan í frá
hljóðriti hún undir nafninu Lily
Cooper,“ sagði heimildarmaður
söngkonunnar.
Allen skiptir
um nafn
EKKI LENGUR ALLEN Söngkonan Lily
Allen ætlar að taka upp eftirnafnið
Cooper.
Joaquin Phoenix leikur hór-
mangara í kvikmyndinni Low
Life sem fer í tökur á næsta ári.
Þar leikur hann á móti Marion
Cottilard sem fer með hlutverk
pólskrar vændiskonu. Einnig
er talið að Jeremy Renner leiki
í myndinni. Um þessar mundir
leikur Phoenix í The Master í
leikstjórn Pauls Thomas Ander-
son og fjallar hún um sértrúar-
söfnuð. Phoenix hefur ekki leikið
í Hollyood-mynd í þrjú ár eða
síðan hann lék á móti Gwyneth
Paltrow í Two Lovers.
Hórmangari
í nýrri mynd
Rappararnir í Quarashi
ætla að sækja aftur í ræt-
urnar á endurkomutón-
leikum sínum í sumar. Gísli
Galdur og Opee stíga báðir
á svið með hljómsveitinni.
Í tilefni af endurkomu Quarashi
á Bestu útihátíðinni í júlí hefur
hljómsveitin ákveðið að sækja
aftur í ræturnar hvað útsetn-
ingar á tónlistinni varðar.
Þegar sveitin hóf störf um
1996 snerist allt um tromm-
ur, sömpl og tilburði plötu-
snúðarins. Gísli Galdur, sem
var plötusnúður hjá Quarashi
síðustu ár hennar, mun
aðstoða við að færa
eldri lög sveitarinn-
ar í hipphopplegri
búning og einhverj-
um lögum verður
skotið saman. „Við
ætlum að leika
okkur með „play-
backið“ og reyna
að keyra það dálítið
skemmtilega þann-
ig að þetta verði dálít-
ið þéttur pakki,“ segir
Gísli Galdur. „Þetta er
rosamikið af hitturum
og ég held að það verði
mjög skemmtilegt að
grufla aðeins í þessu.
Þarna verður líka góð
blanda af þessu gamla
og nýja.“
Hvorki bassa- né gítar-
leikari verður því með
Quarashi á tónleikunum
og því er ekk-
ert pláss fyrir
náunga á borð
við leikstjórann
Gauk Úlfarsson
og Smára „Tarf“
Jósepsson sem
spiluðu með sveit-
inni á sínum tíma.
Rapparinn Ólafur
Páll Torfason, betur
þekktur sem Opee,
var gestur í Quarashi
um stund og söng með
sveitinni lagið Mess It
Up. Hann tekur einn-
ig þátt í endurkomu
Quarashi og flýgur
hingað frá Danmörku.
Þar er hann að útskrif-
ast úr viðskiptanámi
hjá Handelshøjskolen i Køben-
havn. „Ég held að þetta verði mjög
skemmtilegt. Það er svo langt
síðan síðast og það er gaman að
allir séu með,“ segir Ólafur Páll.
„Það er langt síðan ég hef tekið
þetta lag en ég reikna með því að
það hafist.“
Eftir að Ólafur Páll hætti í Qua-
rashi starfaði hann með hljóm-
sveitinni O.N.E. Síðan hann flutti
til Danmerkur árið 2009 hefur
hann eitthvað gert af því að semja
og spila sem plötusnúður en lang-
mestur tími hefur þó farið í námið.
Engu að síður segist hann vera í
hörkuformi. „Ég stefni að því að
mæta á æfingar í byrjun júlí og
heilsa upp á mannskapinn. Það
verður gaman að rifja upp gamlar
stundir.“ freyr@frettabladid.is
Quarashi aftur í ræturnar
AÐSTOÐA QUARASHI Gísli Galdur og Ólafur Páll Torfason, eða
Opee, taka þátt í endurkomu Quarashi á Bestu útihátíðinni í júlí.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Knattspyrnugoðið David Beck-
ham íhugar að fá sér húðflúr á
sitt allra heilagasta. Beckham
mætti í viðtal til sjónvarpsfrétta-
mannsins Craig Ferguson á dög-
unum og spurði fréttamaðurinn
hann meðal annars út í húð-
flúrin, sem hafa löngum vakið
mikla athygli. Beckham kvaðst
vera með um þrjátíu húðflúr á
líkamanum, án þess þó að vita
nákvæma tölu. Ferguson spurði
hann þá hvort hann hefði ein-
hvern tímann fengið sér húðflúr
á typpið og Beckham svaraði ein-
faldlega: „Ekki enn, en ég var að
spá í það.“
Beckham til í
tattú á typpið
TATTÚSJÚKUR Knattspyrnukappinn
David Beckham ber um þrjátíu húðflúr
og sagðist í nýlegu sjónvarpsviðtali hafa
íhugað að fá sér tattú á typpið.
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
VÍ S I N D A - O G T Æ K N I R Á Ð
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
8. júní
kl. 8:30-10:30
Grand Hótel
Reykjavík
02
11 Dagskrá8:30 Setning Rannsóknaþings Svandís Svavarsdóttir, starfandi mennta- og menningarmálaráðherra.
8:45 Veðurfarsbreytingar á norðurslóðum
Halldór Björnsson, verkefnastjóri loftslagsrannsókna hjá Veðurstofu Íslands.
9:10 Hagræn áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum - áhrif á Íslandi
Daði Már Kristófersson, dósent í náttúruauðlindahagfræði við Háskóla Íslands.
9:30 Áhrif loftslagsbreytinga á gróðurfar á norðurslóðum
Brynhildur Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Skógrækt ríkisins.
9:50 Áhrif veðurfars á lífríki í hafi nu umhverfi s Ísland
Ólafur S. Ástþórsson, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar.
10:10 Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Áslaug Helgadóttir rannsóknastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands og formaður
dómnefndar Hvatningarverðlaunanna gerir grein fyrir starfi dómnefndar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs
afhendir verðlaunin.
Fundarstjóri: Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs.
Morgunverður í boði fyrir gesti Rannsóknaþings frá kl. 8:15.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á rannis@rannis.is
Rannsóknaþing 2011
Áskoranir á norðurslóðum
- loftslagsbreytingar, umhverfi og hagræn áhrif