Fréttablaðið - 04.06.2011, Page 82

Fréttablaðið - 04.06.2011, Page 82
4. júní 2011 LAUGARDAGUR VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. WWW.SENA.IS/XMEN SENDU SMS SKEYTIÐ ESL XMC Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! FULLT AF VINNINGUM: BÍÓMIÐAR TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA! KOMIN Í BÍÓ! VILTU VINNA MIÐA? 9. HVER VINNUR! FJÖLDI AUKAVINNINGA UPPLIFÐU STUNDINA SEM Á EFTIR AÐ BREYTA HEIMINUM! Rokkararnir í Steelheart spila á Nasa á miðvikudag. Söngvarinn Mili passar vel upp á háa rödd sína, sem er alveg jafn kraftmikil og fyrir tuttugu árum. Bandaríska rokkhljómsveitin Steelheart sló í gegn í byrj- un tíunda áratugarins með kraftballöðunni She´s Gone þar sem rödd króatíska söngvarans Miljenko Matijevic, eða Mili, nær hæstu hæðum. Smáskífulagið I’ll Never Let You Go náði einnig miklum vinsældum og var annað mest umbeðna lagið á MTV. Síðan þá hefur sveitin hætt tvívegis en alltaf rifið sig upp á nýjan leik. Steelheart spilar á Nasa á mið- vikudagskvöldið. Mili er spenntur fyrir komunni til Íslands og ætlar að gefa sér tíma til að kynnast landinu áður en tónleikarnir hefj- ast. „Ég hlakka til skoða mig um og fá mér gott lambakjöt í leiðinni,“ segir hann, greinilega búinn að frétta af hinu bragðgóða íslenska kjöti. Steelhart er í hörkuformi að hans sögn og tilbúin í tónleikahald úti um allan heim í sumar, þar á meðal í Svíþjóð, Indónesíu, Púertó Ríkó og Suður-Kóreu. „Við höfum verið að vinna eins og brjálæðingar við að endurbyggja Steelheart. Tónlistin hefur breyst og þroskast, alveg eins og við sjálfir. Við tókum upp Black Dog [með Led Zeppelin] og ætlum að reyna að gefa út nýtt smáskífu- lag á þriggja mánaða fresti,“ grein- ir Milo frá. Aðspurður segir hann að Steelheart sé ekki lengur sú hár- metal hljómsveit sem hún var til að byrja með. „En þetta tíma- bil var frábært og við skemmtum okkur ótrúlega vel. En það er kom- inn tími til að breytast. Tónlistin okkar hefur þróast og í framtíðinni viljum við prófa öðruvísi hluti.“ Árið 1992 gaf Steelheart út plöt- una Tangled in Reins. Á tónleika- ferðalagi til að fylgja henni eftir lenti Mili í alvarlegu slysi þegar ljósamastur upp á hálft tonn féll á hann á miðjum tónleikum eftir að hann reyndi að klifra upp á það. Við tók löng sjúkrahúslega og hljóm- sveitin lagði upp laupana. „Þetta var mjög erfiður tími eftir slysið. Það var ekki fyrr en tveimur vikum eftir að ég kom heim sem ég byrjaði að finna fyrir miklum höfuðverkj- um. Ég var mörg ár að jafna mig,“ segir Mili. Fjórum árum eftir slysið endur- vakti Mili Steelhart en þá hafði tónlistarslandslagið breyst og hljómsveitin lagðist aftur í dvala. Það var svo 2001 að Mili fékk upp- reisn æru þegar hann var fenginn til að syngja fyrir leikarann Mark Wahlberg í kvikmyndinni Rock Star. Tónlistin í myndinni hitti í mark, þar á meðal lag Steelheart, We All Die Young, Mili er þekktur fyrir kraftmikla rödd sína sem kemst óvenju hátt. Aðspurður segir hann röddina enn þá vera í toppstandi en viðurkennir að hann þurfi að leggja mikið á sig til að halda henni góðri. „Ég stunda líkamsrækt, drekk ekki áfengi og nota engin eiturlyf. Maður verð- ur sífellt að vera vakandi, enda er röddin hljóðfærið mitt.“ Hann nýtur mikillar virðingar í bransanum og söng til að mynda með Ray Manzarek og Robby Krie- ger úr hljómsveitinni The Doors á síðasta ári. Gerð heimildarmynd- ar um ævi hans hefur einnig stað- ið yfir undanfarið tvö og hálft ár og fer hann til heimaborgar sinn- ar Zagreb í sumar þar sem tón- listarhátíð verður haldin í tilefni myndarinnar. Enn eru til miðar á tónleikana á Nasa á miðvikudaginn og fást þeir á Midi.is. Miðaverð er 3.500 krónur og munu hljómsveitirnar Dúndur- fréttir, Exizt og Atrum hita upp. freyr@frettabladid.is Röddin er hljóðfærið mitt ROKKA Á NASA Rokkararnir í Steelheart spila á Nasa á miðvikudagskvöld þar sem Mili (lengst til hægri) verður vafalítið í essinu sínu. MYND/SAMANTHA BAKER Sorgarsaga Cheryl Cole í bandaríska X-Factor tekur á sig nýja mynd á hverjum degi. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum var Cole rekin úr bandarísku raunveruleikaseríunni X-Factor. Hún á hins vegar inni laun upp á 226 milljónir íslenskra króna og hún hyggst ekki gefa tommu eftir til að fá þá summu greidda inn á launareikning sinn. Framleiðandi X-Factor, Frem- antle, ætlar að gera Cole lífið leitt og hefur nú farið fram á það við söng- konuna að hún útvegi sér atvinnu- leyfi í Ameríku svo hægt sé að borga henni. Cole hefur því ákveðið að leita á náðir bandaríska sendiráðs- ins í London í von um að sendiherr- ann leggi sitt á vogarskálarnar til að greiða úr flækjunni og útvegi henni tilskilin leyfi. „Þetta er refskák,“ hefur bandaríska blaðið Hollywood Reporter eftir heimildarmanni sínum. Ekki er enn vitað hvernig þessu undarlega máli lyktar. Samkvæmt sumum fjölmiðlum er ekki úti- lokað að Cole muni koma fram í þættinum og þá sem einhvers konar gestadómari. Aðrir fjöl- miðlar telja að öll dramatík- in í kringum brotthvarf Cole verði höfð inni í þáttaröð- inni, en söngkonan var rekin eftir aðeins fjórar upptökur og söngkona Pussycat Dolls, Nicole Scherzinger, ráðin í hennar stað. Cole er hins vegar enn sannfærð um að breski sjónvarpsmógúll- inn Simon Cowell standi á bak við brottrekstur- inn og af þeim sökum neitaði hún meðal ann- ars 2,8 milljóna punda tilboði um að taka að sér dómarasæti í breska X- Factor. „Cowell heldur að hann geti fært fólk til eins og taflmenn,“ hefur Hollywood Reporter eftir innanbúðarmanni. Þarf að berjast fyrir laununum SPARKAÐ Cheryl Cole hyggst ekki gefast upp þrautalaust og ætlar að fá það sem henni ber frá framleiðendum X- Factor. Nicole Scherzin- ger (t.v.) hefur verið ráðin í hennar stað. Þetta var mjög erfiður tími eftir slysið. MILI SÖNGVARI STEELHEART

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.