Fréttablaðið - 04.06.2011, Qupperneq 94
4. júní 2011 LAUGARDAGUR66PERSÓNAN
„Við vorum eitthvað að hlæja að
því fyrr í vetur að kannski mund-
um við útskrifast öll á sama tíma
en vorum ekki viss um að það
mundi takast,“ segir Eva Ýr Gunn-
laugsdóttir, hjúkrunarfræðingur
og master í mannauðsstjórnun,
sem útskrifast laugardaginn 11.
júní frá Háskóla Íslands. Dagur-
inn verður viðburðaríkur í fjöl-
skyldunni þar sem móðir hennar
og bróðir eru einnig að útskrifast
úr sama skóla.
Móðir hennar, Jóhanna Löv-
dahl er að klára master í náms-
og starfsráðgjöf og bróðir hennar,
Sigfús Kristinn Gunnlaugsson, er
að útskrifast sem læknir. Yngsti
bróðir hennar, Einar, var síðan að
útskrifast úr Menntaskólanum í
Reykjavík í lok maí.
„Þetta er ekkert smá skemmti-
legt að við náðum þessum áfanga
öll saman,“ segir Eva Ýr og viður-
kennir að próftímabilið hafi verið
undarlegt í þetta skiptið enda ekki
vanalegt að heil fjölskylda sé sam-
ferða í skólagöngunni með þessum
hætti
„Mamma kallaði heimili sitt
fyrir „studyhall“ þar sem öll borð
voru undirlögð af tölvum og skóla-
bókum. Ég átti það til að flýja til
mömmu á próftímabilinu í vor en
ég gat verið viss að andrúmsloftið
þar væri vel lærdómshæft,“ segir
Eva Ýr og undirstrikar að móðir
sín hafi staðið sig sérstaklega vel
í að hvetja systkinin áfram í lestr-
inum þrátt fyrir að vera sjálf með
nefið í bókunum.
Eva Ýr segir að þau séu að skipu-
leggja sameiginlega útskriftar-
veislu. „Við ætlum að slá upp helj-
arinnar veislu hjá mömmu enda
er þetta gott tilefni til að fagna
saman.“ - áp
Fjölskyldan útskrifast saman
„Þetta er þáttur sem fjallar um
yngri hljómsveitir og eldri tón-
listarmenn. Smá samanburður
á kynslóðunum,“ segir tónlistar-
maðurinn Sigtryggur Baldursson.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá fyrir skömmu vinnur RÚV
að nýjum sjónvarpsþáttum sem
fjalla um tónlist. Sigtryggur Bald-
ursson og Guðmundur Kristinn
Jónsson, upptökustjóri og með-
limur Hjálma, verða umsjónar-
menn þáttanna og þeim til halds
og trausts verður Baggalúturinn
Bragi Valdimar Skúlason ásamt
fleirum.
Sigtryggur segir þá félaga
ætla að fylgjast með tónlistar-
fólki að störfum, kíkja í hljóðver,
í æfingahúsnæði og jafnvel út
fyrir landsteinanna. „Við ætlum
að fá að sjá ferðalögin með eigin
augum,“ segir hann. „Fólk þarf að
taka restina af flögunum úr bún-
ingsherberginu til að fá hádeg-
ismat daginn eftir. Það hljómar
ekkert mjög glamúrus. Það eru
alls konar skemmtilegar rang-
hugmyndir í gangi um meikið.“
Þættirnir hefja göngu sína í
sumar en samningurinn við þá
félaga var handsalaður á mið-
vikudagsmorgun og vinnan
hófst strax í kjölfarið. Sigtrygg-
ur segir eðlilegt að RÚV sinni
þeirri skyldu að fjalla á vitrænan
hátt um menningu í landinu. „Það
má orða það þannig,“ segir hann.
„Þessar tilraunir RÚV til að búa
til menningarlega skemmtiþætti
finnst mér ekki hafa risið hátt.“
Hann gagnrýnir að fagfólk hafi
ekki verið fengið til að fjalla um
menningu. „Hluti af vandamálinu
er sá að það var ekki verið að láta
SIGTRYGGUR BALDURSSON: TILRAUNIR RÚV HAFA EKKI RISIÐ HÁTT
Það þarf fagmenn í faginu
til að fara ekki út af laginu
HEIMILIÐ UNDIRLAGT Í PRÓFLESTRINUM Eva Ýr Gunnlaugsdóttir útskrifast frá
Háskóla Íslands ásamt móður sinni Jóhönnu Lövdahl og bróður sínum, Sigfúsi, en
yngsti bróðirinn Einar var að útskrifast frá MR.
tónlistarmenn fjalla um tónlistar-
menn og myndlistarmenn fjalla
um myndlistarmenn og svo fram-
vegis,“ segir hann. „Það má gefa
sér tíma til að fjalla um listirnar
með aðeins meiri dýpt í staðinn
fyrir að fleyta kerlingar. Og ég
trúi því að það þurfi að hafa fag-
mann í faginu til að fara ekki út
af laginu.“ atlifannar@frettabladid.is
FRÍÐUR HÓPUR
Sigtryggur Baldursson, Kiddi
í Hjálmum og Bragi Valdimar
eru á bak við nýja tónlistarþætti
á RÚV.
Alþingismaðurinn Guðmundur
Steingrímsson gengur að eiga
unnustu sína, leikkonuna Alexíu
Björgu Jóhannesdóttur, í næsta
mánuði. Formleg upphitun fyrir
brúðkaupið hófst í gær þegar vinir
Guðmundar steggjuðu hann. Guð-
mundur var sóttur niður á Alþingi
og ferjaður út fyrir borgarmörkin.
Þar var hann látinn troða upp í
kjördæminu sínu og spila fyrir
peninga áður en hann sleppti dúfu
til staðfestingar því að
nú kveddi hann gamla
lífið og hæfi nýtt.
Að síðustu var svo
ráðgert að skála fyrir
brúðgumanum til-
vonandi í sumar-
bústað.
Vesturporti og Borgarleikhúsinu,
aðstandendum leikritsins Faust,
hefur verið boðið að sýna verkið
á hinni virtu BAM-leiklistarhátíð
í New York. Þetta verður í þriðja
sinn sem Gísli Örn Garðarsson
og félagar hans í Vesturporti fara
til Ameríku því áður hafa þau sett
upp bæði Woyzeck og Hamskiptin.
Síðari uppfærslan fékk
frábæra dóma í New
York Times og varð
til þess að hinn
virti leikhúsfröm-
uður Robin de Levita
ákvað að semja
við leikhúsfólkið og
opna því leið inn
í risavaxinn
leikhúsheim
Banda-
ríkjanna.
- hdm, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Af þessum myndum að dæma virðist Egill
hafa rangt fyrir sér. Því miður,“ segir ljós-
myndarinn Árni Torfason.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu á mið-
vikudaginn virðist mynd af Agli Einarssyni,
á forsíðu símaskráarinnar, vera mikið unnin í
myndvinnsluforritinu Photoshop. Þegar mynd-
inni er stillt upp við hlið skjáskots úr sjón-
varpsauglýsingu símaskráarinnar kemur í ljós
að mitti Egils hefur verið minnkað ásamt því
að skerpt hefur verið á öðrum vöðvum. Egill
þvertekur fyrir það og segir hlutföllum hafa
verið breytt þannig að hann virki breiðari í
sjónvarpsauglýsingunni.
Árni er ljósmyndari og með góða þekkingu á
Photoshop. Hann telur að Egill sé að skýla sér
á bak við tóma vitleysu. „Mér finnst ólíklegt að
kvikmyndatökumenn séu að taka upp í þessu
gamla 4:3 sniði og teygja upp í 16:9,“ segir Árni.
„Það meikar ekkert sens að það eigi bara við
mittið á honum en ekki andlit og annað.“
Árni ítrekar þó að erfitt geti reynst að sanna
það nema upprunalega myndin verði birt.
„Egill er kannski tilbúinn að leyfa okkur að sjá
hana. Það væri gaman,“ segir hann.
Alþekkt er í auglýsingabransanum að mynd-
ir séu mikið unnar, enda gilda önnur lögmál
um þær en til dæmis um fréttaljósmyndir.
Árni furðar sig á því að Egill neiti því að hafa
verið tekinn í gegn í myndvinnsluforriti, enda
eðlilegt að slíkt sé gert. „Gillz er auðvitað
hrikalega flottur eins og hann er,“ segir Árni.
„Kannski þurfti hann ekki á þessu að halda.“
- afb
Málflutningur Gillzeneggers á villigötum
ÞYKKI Egill er þykkur í sjónvarpsauglýsingum fyrir
símaskránna, en fyrir töfra hefur mitti hans minnkað á
forsíðunni.
Solla soulful
Aldur: 26 ára
Starf: Stuðnings-
fulltrúi á frístunda-
heimilinu Selinu
við Melaskóla og
tónlistarkona.
Fjölskylda: Pabbi
heitir Þórður Jóhann-
esson og mamma
heitir Jóhanna Björk
Bjarnadóttir. Systur mínar heita
Þóra Björk og Svava María. Elstur er
bróðir minn, Bjarni Jóhann.
Búseta: Vesturbærinn.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Sólveig Þórðardóttir hefur gefið út
plötuna Open a Window.
REIÐSKÓLINN
GELDINGAHOLTI
5 DAGA REIÐNÁMSKEIÐ Í JÚLÍ OG ÁGÚST.
Upplýsingar í síma 4866055 og 8617013