Fréttablaðið - 14.06.2011, Side 48
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Dilluðu sér á Lauper
Það voru ánægðir tónleikagestir
sem yfirgáfu Hörpuna á sunnudags-
kvöld eftir vel heppnaða tónleika
söngdívunnar Cindy Lauper. Lauper
var í góðu stuði og söng meðal
annars gamla góða slagara á borð
við True Colors og Girls Just Want to
Have Fun. Meðal þeirra sem dilluðu
sér í sætum Eldborgarsalsins var
útvarpsfólk Rásar tvö, þau Lísa Páls-
dóttir, Andrea Jónsdóttir og Guðni
Már Henningson með yfirmanninn
Ólaf Pál Gunnarsson í broddi
fylkingar. Arngrímur Fannar Haralds-
son, verkefnastjóri
tónlistarviðburða
Hörpunnar, lét sig
heldur ekki vanta
og mætti með konu
sína Yesmine Olsson.
Ívar Guðmundsson,
sem eflaust hefur
spilað lög Cyndi
Lauper í ófá skipti
á Bylgjunni,
kom til að berja
dívuna augum.
Á uppleið í Hollywood
Leikarinn Darri Ingólfsson, sem
búsettur er í Los Angeles, og hefur
verið að reyna fyrir sér í Borg
englanna, landaði nýverið hlutverki
í stuttmynd. Mótleikkona hans er
engin önnur en Mickey Sumner,
dóttir tónlistarmannsins þekkta,
Sting. Sumner þessi lauk nýverið
tökum á kvikmyndinni The Bourges
með Jeremy Irons í aðalhlutverki
og flaug alla leið frá
New York til að leika
á móti Darra. Þetta
er annað bitastætt
hlutverk leikarans á
skömmum tíma en
Fréttablaðið
greindi frá
því fyrir
þegar hann
lék aðal-
hlutverkið
í Samsung-
farsímaaug-
lýsingu.
- áp, sm
1 Ólafur Gaukur er látinn
2 Sýrlensk stúlka reyndist vera
bandarískur karlmaður
3 Segir breytingar ógna
fjárhagslegri stöðu
Sjálfstæðisflokksins
4 Handteknir á Reykjanesbraut
eftir að hafa kveikt í bíl