Fréttablaðið - 22.06.2011, Qupperneq 4
22. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR4
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
27°
26°
20°
25°
25°
20°
20°
28°
19°
30°
26°
34°
18°
22°
25°
19°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
víðast hvar.
FÖSTUDAGUR
3-10 m/s.
48 7
7 34
6
8
8
8
11
8
5
4
5
3
6
3
4
3
6 3
8
10 10
8
7
8
8
7
10
11
SVIPAÐ NÆSTU
DAGA Fremur hæg
N-læg átt, en hæg
breytileg átt S-
lands næstu daga.
Líkur á síðdegis-
skúrum, einkum
SV- og S-lands. Hiti
5-15 stig, hlýjast á
S- og V-landi.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
GENGIÐ 21.06.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
219,8712
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,84 115,38
185,99 186,89
164,73 165,65
22,082 22,212
20,795 20,917
17,964 18,070
1,4312 1,4396
183,36 184,46
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
KJARAMÁL Félag íslenskra atvinnu-
flugmanna og Icelandair funduðu
hjá ríkissáttasemjara í gær um
gerð kjarasamninga án þess að
niðurstaða næðist. Fundur hefur
verið boðaður í dag en flugmenn
hafa boðað yfirvinnubann frá og
með miðnætti á föstudag, náist
samningar ekki.
Icelandair hefur boðið samn-
ing sem er sambærilegur við aðra
kjarasamninga, en flugmenn
segja málið snúast um vinnu-
fyrirkomulag. - þj
Deila Icelandair og flugmanna:
Koma saman til
fundar í dag
ENN ÓSAMIÐ Flugmenn Icelandair fara
í yfirvinnubann á föstudag náist ekki
samningar fyrir þann tíma.
EFNAHAGSMÁL Ísland er hægt og
rólega að leysa hagrænu vanda-
málin sem bankakreppan orsak-
aði. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu Efnahags- og framfara-
stofnunar Evrópu (OECD) um
íslenska hagkerfið. Þar segir að
vel hafi gengið að framfylgja áætl-
un íslenskra stjórnvalda og AGS
og samdrætti hafi verið snúið í
hagvöxt í lok síðasta árs. Þá sé
útlit fyrir þriggja prósenta hag-
vöxt á næsta ári, sem byggi helst
á fjárfestingum.
Starfsmenn OECD kynntu
skýrsluna fyrir blaðamönnum í
gær, en slík skýrsla hefur komið
út á tveggja ára fresti undanfarin
ár. Í henni er settur fram fjöldi til-
lagna um breytingar á hagstjórn
og lagasetningu með það fyrir
augum að koma hagkerfinu á fullt
fyrr en ella. Má þar nefna úrræði
til að flýta fyrir endurskipulagn-
ingu á skuldum einkaaðila, mennt-
unar- og þjálfunarúrræði fyrir
atvinnulausa og úrræði til að flýta
fyrir afnámi gjaldeyrishafta.
Í skýrslunni eru einnig lagðar
til breytingar sem stuðla eiga að
hagvexti til lengri tíma. Meðal
annars er varað eindregið við
breytingum á kvótakerfinu. Þá
er hvatt til þess að dregið verði
verulega úr opinberum stuðn-
ingi við landbúnað, stungið upp
á upptöku evru sem besta kosti
Íslands í gjaldmiðilsmálum, lagð-
ar til reglur um fjárlagahalla og
skuldastöðu ríkisins og mælt með
sameiningu Seðlabankans og Fjár-
málaeftirlitsins.
Þá er niðurstaða Icesave-
atkvæðagreiðslunnar sögð hafa
haft lítil áhrif á stöðu hagkerfis-
ins.
Að mati skýrsluhöfunda er
bankakerfið það sem helst stendur
hagvexti fyrir þrifum nú. „Ísland
þarf að varast að enda eins og
Japan eftir sína kreppu. Þar voru
bankar ófærir um að lána til arð-
bærra verkefna vegna þess að stór
hluti fjármagns þeirra var bund-
inn í gömlum lánum til fyrirtækja
sem áttu sér ekki viðreisnar von.
Það þarf að gera meira af því að
endurskipuleggja lán einkaaðila,“
sagði David Carey, starfsmaður
OECD, á blaðamannafundinum í
gær og bætti við að til lengri tíma
þyrfti að tryggja eðlilegan aðgang
Íslands að alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum og stuðla að sjálfbærri
skuldastöðu ríkisins.
Carey sagði einnig að gjald-
eyrishöftin hefðu verið gagn-
leg og nauðsynleg til að tryggja
stöðug leika frá hruni. Nú væri
hins vegar mikilvægt að losa
þrýstinginn á gengi krónunnar
frá aflandskrónum til að hægt sé
að afnema höftin sem fyrst. Til
lengri tíma valdi þau hagkerfinu
töluverðum skaða.
Loks er það mat skýrslu höfunda
að framtíðarhorfur Íslands séu
góðar. Óvissa sé til staðar um
tímasetningar og stærð boðaðra
stórframkvæmda en til lengri
tíma sé staða landsins góð vegna
dýrmætra náttúruauðlinda og
sterks laga- og stofnanaumhverfis.
magnusl@frettabladid.is
Íslenska hagkerfið á upp-
leið en enn ljón í veginum
OECD mælir með því að endurskipulagningu á skuldum einkaaðila verði flýtt og frekari menntunar-
úrræðum komið á fyrir atvinnulausa. Þá varar stofnunin við breytingum á kvótakerfinu og telur upptöku
evru góðan kost fyrir landið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um íslenska hagkerfið.
FRAMKVÆMDIR Uppbygging orkufreks iðnaðar verður einn helsti aflvaki hagvaxtar
á Íslandi næstu árin, að mati OECD. Þá mælir stofnunin með því að slík uppbygging
fari áfram fram að teknu tilliti til umhverfissjónarmiða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í skýrslu OECD er að finna kafla um sjávarútveg á Íslandi. Þar er mikill og
góður árangur sagður hafa náðst við stjórn fiskveiða og auðlindin sögð
nýtt á hagkvæman hátt. Óskynsamlegt sé hins vegar að gera breytingar á
kvótakerfinu sem grafi undan hagkvæmni í greininni, og ekki skuli stýra
fiskveiðum með félagsleg sjónarmið að leiðarljósi. Þá er ekki sagt mögulegt
að koma til móts við sjónarmið um meint óréttlæti kerfisins með því að
fyrna aflaheimildir, þar sem stærstur hluti eigenda þeirra hafi keypt þær
á markaði. Hins vegar sé hægt að koma til móts við slík sjónarmið með
hóflegri hækkun auðlindagjalds. Á fundi þar sem skýrslan var kynnt kom
fram að Gunnar Haraldsson, starfsmaður OECD, skrifaði umræddan kafla
en aðspurður sagði hann kaflann ekki fjalla beint um þær tillögur sem ríkis-
stjórnin hefði sett fram um breytingar á kvótakerfinu heldur almennt um þá
umræðu sem staðið hefði á Íslandi um kvótakerfið um langt árabil.
Vara við breytingum á kvótakerfinu
DÓMSMÁL Karlmaður hefur í
Héraðs dómi Reykjaness verið
dæmdur í níu mánaða fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn pilti
sem þá var sextán ára. Maðurinn
var einnig dæmdur til að greiða
fórnarlambinu hálfa milljón króna
í miskabætur. Loks var hann
dæmdur fyrir að veita piltinum
og félaga hans á svipuðum aldri
áfengi, áður en hann braut gegn
fórnarlambinu.
Maðurinn hitti piltana tvo
og bauð þeim heim til sín. Þar
veitti hann þeim bjór og vodka.
Annar piltanna varð veikur af
drykkjunni og fór heim. Hinum
piltinum sagði maðurinn að leggja
sig í rúmi hans. Þegar pilturinn
vaknaði var maðurinn að fremja
ýmiss konar kynferðislegt athæfi
gagnvart honum.
Dómurinn leit meðal annars til
þess að maðurinn hefði veitt pilt-
inum ótæpilega áfengi, sem hefði
valdið því að hann hefði orðið
mjög drukkinn. Þá hefði piltur-
inn skömmu áður trúað mannin-
um fyrir því hversu illa sér liði og
hvaða erfiðleika hann hefði gengið
í gegnum í lífi sínu. Maður inn
hefði því brotið gegn trúnaði pilts-
ins, kynfrelsi hans og æru. Brot
mannsins hefði verið alvarlegt
og beinst að mikilvægum hags-
munum. - jss
Dæmdur í níu mánaða fangelsi og til að greiða hálfa milljón í miskabætur:
Fyllti pilt og braut gegn honum
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Dæmdi
manninn í níu mánaða fangelsi.
VIÐSKIPTI Síminn mun eftirleiðis
sjá um þjónustu og rekstur upplýs-
ingatæknikerfis Eimskips. Samn-
ingur var undirritaður í febrúar
og hefur yfirfærsla á kerfi Eim-
skips yfir til Símans staðið yfir.
Þetta er með umfangsmeiri
samningum Símans en um er að
ræða heildarrekstur og hýsingu
á öllum tölvubúnaði Eimskips,
símkerfum og netkerfum ásamt
vettvangsþjónustu og útstöðvar-
þjónustu. Eimskip er með um eitt
þúsund tölvutengdar vinnustöðvar
hér og erlendis tengdar tölvuneti
sínu sem Síminn mun hýsa. - jab
Eimskip semur við Símann:
Öllu tölvukerfi
sinnt héðan
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest tveggja ára fangelsisdóm
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
karlmanni á sextugsaldri fyrir að
kveikja í húsi við Tryggvagötu í
Reykjavík í janúar 2009.
Maðurinn hellti bensíni úr
plastbrúsa inn í stigagang hússins
og kveikti síðan í.
Hann kvaðst hafa komist að því
að fyrrverandi eiginkona hans,
sem þarna átti heima, hefði verið
í tygjum við tvo aðra karlmenn.
Sjálfur hefði hann verið búinn
að vera ölvaður dögum saman
og hefði í reiði tekið „þá skyndi-
ákvörðun að loka þessu greni“
með því að kveikja í því. - jss
Tveggja ára fangelsi staðfest:
Kveikti í „greni“
til að loka því