Fréttablaðið - 22.06.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 22.06.2011, Blaðsíða 10
22. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR 500.000.000 200.000.000 +300.000.000 ÞÚ TALDIR RÉTT: 500 MILLJÓNIR ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM! MIÐINN GILDIR 22. JÚNÍ 2011 A. 12 14 17 21 41 48 B. 05 16 23 36 37 38 C. 07 09 13 22 34 38 D. 03 06 19 24 25 31 E. 11 19 21 25 38 42 F. 01 25 35 36 39 46 G. 18 19 20 23 28 46 H. 22 27 29 39 40 42 Tvöfal dur 1. vinn ingur F í t o n / S Í A SU M AR OP NU N SÖ LU LÝ KU R KL . 1 6 Tvöfaldur fyrsti vinningur efnir í 200 milljónir og furpotturinn stefnir í 300 milljónir. Ekki gleyma að ð, fáðu þér miða fyrir fjögur í dag á næsta ð eða á lotto.is Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 www.ils.is 110% leiðin – átt þú rétt? · Ef skuldir eru umfram 110% af verðmæti fasteignar er hægt að sækja um að skuldirnar verði færðar niður að 110% af verðmæti eignarinnar. · Á við um lán til kaupa á íbúð til eigin nota sem áttu sér stað fyrir árið 2009. · Ef veðrými er á öðrum eignum umsækjanda lækkar niðurfærsla skulda sem því nemur. · Kannaðu málið fyrir 1. júlí nk., en þá rennur út frestur til að sækja um þessa niðurfærslu. · Sækja skal um rafrænt á www.ils.is. · Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2011. Au gl ýs ing as ím i DANMÖRK Öllum erlendum borgur- um í Danmörku sem gerast sekir um glæpi verður vísað úr landi, verði frumvarp stjórnarflokkanna samþykkt á föstudag. Frumvarp Sörens Pind, ráð- herra innflytjendamála, nýtur stuðnings tveggja stærstu stjórnar andstöðuflokkanna, en samkvæmt því verður erlendum brotamönnum sem dæmdir eru til fangavistar sjálfkrafa vísað úr landi. Þó eru gerðar undan- tekningar ef dómstólar fallast á að sýnt hafi verið fram á að brott- vísunin brjóti sannarlega í bág við alþjóðasamninga. Með því er sönnunarbyrði komið yfir á þá dæmdu, en samkvæmt núgildandi lögum verður ákæru- valdið að krefjast brottvísunar. Í samtali við danska blaðið Information segir Eva Smith, lögfræðiprófessor við Kaup- mannahafnarháskóla, að nýja lög- gjöfin muni leiða til þess að oftar verði farið á svig við samninga og það sé áhyggjuefni. Formaður Mannréttinda- stofnunar tekur undir það og segir að eftir því sem fleiri vafa- tilvik komi upp, verði líklegra að farið verði yfir mörk sem alþjóða- samningar setja. - þj Samstaða um brottvísun erlendra brotamanna: Verður vísað úr landi HERT LÖG Erlendum afbrotamönnum verður sjálfkrafa vísað úr landi samþykki danska þingið ný lög innflytjendaráðherrans Sörens Pind. NORDICPHOTOS/AFP NOREGUR Talsmenn norska olíu- risans Statoil blása á bölspár þrátt fyrir að framleiðsla hafi dregist saman jafnt og þétt síðustu átta ár og segja stórsókn í vændum. Fréttablaðið sagði nýlega frá málinu, en í tilkynningu frá fyrir tækinu, sem norskir fjöl- miðlar fjalla um, segir að stefnt sé að því að auka framleiðsluna úr 1,9 milljón tunnum á dag árið 2010 upp í 2,5 milljónir tunna árið 2020. Til þess að svo megi verða hefur Statoil lagt mikla áherslu á rannsóknir og mun meðal annars verja þrettán milljörðum Banda- ríkjadala til rannsókna í ár og öðru eins á næsta ári. - þj Talsmenn olíurisans Statoil leggja mikla áherslu á rannsóknir: Stórsókn í vændum FULL FERÐ ÁFRAM Statoil hefur boðað stóraukna olíuframleiðslu í kjölfar frétta um samdrátt.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.