Fréttablaðið - 22.06.2011, Síða 11

Fréttablaðið - 22.06.2011, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 22. júní 2011 11 EVRÓPUMÁL Makedónía gæti fallið úr hópi umsóknarríkja, eða ríkja sem eru næst því að komast í ESB. Þetta segir framkvæmda- stjóri stækkunarmála ESB, Stef- an Fule, í viðtali við makedónska fjölmiðla, sem síðan Euractiv greinir frá. Önnur umsóknarríki eru Ísland, Króatía, Svartfjalla- land og Tyrkland. Stjórnvöld í Makedóníu eru sögð nota dómskerfi og lögreglu landsins til að þagga niður í gagn- rýnisröddum og Fule vill bæta úr því áður en lengra er haldið í aðildarferlinu. Þá hafa deilur Grikkja og Makedóníumanna staðið í vegi fyrir framgangi aðildarviðræðnanna. - kóþ ESB vill umbætur í ferlinu: Makedónía gæti dottið út FASTEIGNAMARKAÐUR Velta á fast- eignamarkaðnum á höfuðborgar- svæðinu vikuna 10. júní til og með 16. júní tvöfaldaðist miðað við sama tíma í fyrra. Að því er fram kemur á vef Þjóðskrár var 70 kaupsamning- um þinglýst í síðustu viku. Heildarveltan var 1.840 milljónir króna og meðalupphæð á samn- ing var 26,3 milljónir króna. Í tölum Þjóðskrár kemur fram að í vikunni 11. júní til 17. júní í fyrra var 35 samningum þinglýst. Heildarvelta var 947 milljón ir og meðalupphæð samninga því rétt rúmar 27 milljónir. - þj Fasteignir á höfuðborgarsvæði: Veltan á mark- aði tvöfaldaðist FASTEIGNIR Sjötíu kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNTUN Alls hafa 178 nemendur útskrifast frá Keili á síðustu vikum. 140 nemendur útskrif- uðust hinn 16. júní, þar af 57 af háskólabrú skólans. Fimmtíu einkaþjálfarar voru útskrifaðir, ellefu íþróttaþjálfarar og 22 flug- þjónar. Þá útskrifuðust 38 nemar frá útibúi skólans á Akureyri viku fyrr. Tuttugu útskrifuðust þaðan sem einkaþjálfarar, tveir sem íþróttaþjálfarar og sextán af háskólabrú. Í sumar verður útskrifað af öðrum brautum. - þeb 178 útskrifaðir og fleiri eftir: Mikill fjöldi út- skrifast frá Keili Í matargerðarlínunni GOTT Í MATINN teflum við fram góðum grunnhráefnum sem tilheyra mörgum ólíkum áherslum í matargerð. Í sumarblaðinu í ár leggjum við áherslu á fjölskyldu- vænan mat sem hægt er að töfra fram við margvísleg tækifæri og njóta þess að borða hann í eldhúsinu heima, í sumarbústaðnum, á skjólgóðum svölum eða í gróskumiklum garði á mildum sumardegi. Uppskriftirnar í nýja sumarblaðinu eru fljótlegar og einfaldar og síðast en ekki síst einstaklega góðar. MEÐAL EFNIS Í SUMARBLAÐINU: frá MS, bíður þín í flestum matvöruverslunum landsin s. Njótið vel og verði ykkur a ð góðu! www.gottimatinn.is FA B R IK A N STJÓRNSÝSLA Einungis 32,3 pró- sent landsmanna bera frekar eða mjög mikið traust til Landlæknis- embættisins ef marka má nýja skoðanakönnun MMR. Alls sögðust 26,7 prósent treysta embættinu frekar lítið eða mjög lítið en 41,1 prósent tók ekki afstöðu í könnuninni, sem var gerð 9. til 15. júní. Nokkur munur var á afstöðu til embættisins eftir aldri, menntun, starfi og tekjum. Eldra fólk bar minna traust til embættisins en yngra fólk. Um 18,7 prósent sér- fræðinga kváðust bera lítið traust til embættisins borið saman við 38 prósent iðnaðarmanna. - mþl Skoðanakönnun MMR: Lítið traust á Landlæknis- embættinu VIÐSKIPTI „Það tekur langan tíma að búa til fyrsta ársreikninginn eftir svona mikil umskipti. Það er umfangsmeira verk en alla jafna,“ segir Jón Finnbogason, forstjóri Byrs. Uppgjör bankans fyrir síðasta ár átti lögum samkvæmt að liggja fyrir í mars en hefur enn ekki verið lagt fram. Að sögn Jóns skýrist töfin ekki síst af því að samhliða uppgjörinu þarf að birta stofn- efnahagsreikning fyrir nýja bank- ann sem reis á rústum þess gamla í apríl í fyrra. Til samanburðar liðu um þrettán mánuðir frá falli gamla Landsbankans og þar til fyrsta upp- gjör nýja bankans var birt. Óendurskoðað uppgjör hefur legið frammi í rafrænu gagnaher- bergi sem bjóðendur í bankann hafa fengið að sjá og segja þeir það ekki gefa skýra mynd af stöðunni. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við segja erfitt að átta sig á fjár- hagsstöðu Byrs. Þeir segja endur- mat á útlánasafni hans í kjöl- far nýlegra gengislánadóma hafa brennt gat í bækur bankans og útiloka ekki að afkoma hans hafi verið neikvæð í fyrra um fjóra til níu milljarða króna. - jab Ekki útilokað að afkoma Byrs sé neikvæð um allt að níu milljarða króna eftir endurmat á útlánasafni: Byr átti að skila ársuppgjöri í mars BYR BER VIÐ HIMIN Endurútreikningar á gengislánum Byrs eru taldir hafa sett skarð í afkomu bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Fyrri hluti tilboðs í nýtt hlutafé Byrs rann út á fimmtudag í síðustu viku og er talið víst að fjórir bankar hafi lagt fram tilboð í bankann; Arion banki, Íslandsbanki, Landsbankinn og MP banki. Á mánudag verður tilkynnt hverjir fá að halda áfram í tilboðsferlinu. Þeir fá ítarlegri fjár- hagsupplýsingar um Byr en liggja fyrir í rafræna gagnaherberginu. Gert er ráð fyrir að sölunni ljúki um miðjan næsta mánuð. Söluferlið á Byr

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.