Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.06.2011, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 22.06.2011, Qupperneq 28
22. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR16 Innilegar þakkir færum við öllum er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs bróður okkar, Páls Gíslasonar Ásgeir Gíslason Alexía M. Gísladóttir Kolbeinn Gíslason Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Þórður Snæbjörnsson garðyrkjubóndi, Bjarkarheiði 21, Hveragerði, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 19. júní. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju föstudaginn 24. júní kl. 13.30. Ingibjörg J. Jónasdóttir Sturla Snæbjörn Þórðarson Herdís Þórðardóttir Sigurður Egilsson Jónas Þór Þórðarson Ingibjörg Erna Þórðardóttir Sveinn Guðmundsson afabörn og langafabörn Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Sveinn Sæmundsson löggiltur endurskoðandi, Sóltúni 10, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 19. júní. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður H. Jóhannsdóttir Gyða Þorgeirsdóttir Hallur Karlsson Ragnheiður Hallsdóttir Jóhann Karl Hallsson Hafdís Svava Ragnheiðardóttir Jón Sæmundsson Tómas Sæmundsson Sigrún Sæmundsdóttir Baldur Sæmundsson Einlægar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, Sigrúnar Hrefnu Guðmundsdóttur Dalbraut 23. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Guðfinna Sif Sveinbjörnsdóttir Kjartan Ó. Kjartansson Hrefna Sigríður Briem Bjarni Þór Þórólfsson Guðbjörg Forberg og barnabörn Ástkær dóttir mín og systir okkar, Sigríður Sigtryggsdóttir Vesturbrún 17, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 15. júní. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 22. júní kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Þroskahjálp. Elín Sigurðardóttir Sigurlaug Anna Sigtryggsdóttir Erla Sigtryggsdóttir og fjölskyldur Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ragnar Borg fyrrum ræðismaður og framkvæmdastjóri, lést á dvalarheimilinu Grund 15. júní. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 22. júní kl. 15.00. Ingigerður Þóranna Melsteð Borg Anna Elísabet Borg Rein Norberg Elín Borg Benedikt Hjartarson Óskar Borg Berglind Hilmarsdóttir Páll Borg Ingunn Ingimarsdóttir Eva, Rakel, Thelma, Inga, Hildur Emma og Elín Ósk. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Björg Jóhannsdóttir Bólstaðarhlíð 13, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 20. júní. Jóhann Ólafsson Jeanne Miller Sigrún Ólafsdóttir Helgi Bergþórsson ömmubörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, Svavar Davíðsson framkvæmdastjóri, sem lést á Hjartadeild Landspítalans við Hringbraut laugardaginn 18. júní, verður jarðsunginn frá Kristskirkju Landakoti þriðjudaginn 28. júní kl. 15.00. Birna Baldursdóttir Baldur Ó. Svavarsson Kristín E. Guðjónsdóttir Nína Björk Svavarsdóttir Bryndís Björk Svavarsdóttir Stefán Magnússon barnabörn og barnabarnabörn Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. STANGVEIÐI Veiðidagur fjölskyldunnar verður næsta sunnudag. „Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjöl mörgum vötnum víðs vegar um landið,“ segir í tilkynningu frá Landssam- bandi stangaveiðifélaga, sem ásamt veiðiréttarar- höfum hefur staðið fyrir Veiðidegi fjölskyldunnar í meira en tvo áratugi. Alls verða 27 vötn vítt og breitt um landið í boði. Meðal þeirra eru Elliða- vatn, Þingvallavatn, Eyrar vatn, Hítarvatn, Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði, Hópið, Vestmannsvatn, Ljósavatn, Kringluvatn, Urriðavatn, og Þveit. - gar Fjölskyldur frítt í veiði einn dag VIÐ ÞINGVALLAVATN Veiða má frítt fyrir landi þjóðgarðsins á sunnudag. Opnuð verður sýning á verk- um í eigu Listasafns Íslands í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Sýningin er fyrsti áfangi yfirgripsmikillar sýn- ingar sem ætlað er að veita sýn yfir þróun íslenskrar myndlistar frá miðöldum til samtímans. Sýningin er sett upp í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Fyrsti áfangi sýningar- innar verður settur upp í risi Þjóðmenningarhússins og gefur góða hugmynd um fjölbreytileika íslenskrar myndlistar frá nítjándu öld til samtímans. Sýnd verða valin landslagsmálverk nokkurra brautryðjenda, abstrakt málverk og skúlp- túrar frá miðri tuttugustu öld auk fjölbreytilegrar sam- tímalistar. Sýningin er aðeins fyrsta skrefið sem stigið verður í því skyni sýna íslenska list úr aldanna rás í Þjóðmenn- ingarhúsinu. Nú verða verk sýnd í risinu en árið 2012 verða fleiri herbergi tekin undir sýninguna. Að lokum mun fyrsta hæð hússins helguð lokaáfanga yfirlits- sýningar um list á Íslandi í aldanna rás þegar Stofn- un Árna Magnússonar flyst í nýtt húsnæði í námunda við Háskóla Íslands og Þjóð- minjasafnið. - mmf Frá miðöldum til samtímans LIST Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU Íslensk list í aldanna rás verður sýnd í Þjóðmenningarhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tónlistarhátíðin Við Djúpið er nú haldin í níunda sinn á Ísafirði og voru fyrstu tónleikarnir í gærkvöldi. Hátíðin er alltaf haldin í kringum lengsta tíma árs- ins og stendur nú frá 21. til 26. júní. Hátíðin er sambland nám- skeiðahalds og tónleika- dagskrár. Einn helsti styrk- leiki hátíðarinnar er nándin sem skapast á milli þátt- takenda, kennara og gesta hennar þar sem Ísafjörður myndar umgjörðina. Efnt var til leitar að nýjum tónskáldum í tengslum við hátíðina og er það í þriðja sinn sem það er gert. Að þessu sinni var verkefnið í tengslum við Rás 1 og sendiráð Banda- ríkjanna á Íslandi. Dóm- nefnd valdi þrjá þátttakend- ur til að semja verk fyrir óbókvartett og verða verk nýju tónskáldanna þriggja, Antons Svanbergs, Halldórs Smárasonar og Sebastians Ingvarssonar, frumflutt á tónleikum þann 25. júní. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má finna á www.viddjupid.is. - mmf Ný tónskáld spreyta sig við Djúpið UMGJÖRÐIN Tónleikar nýrra tón- skálda verða haldnir á laugardag- inn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.