Fréttablaðið - 22.06.2011, Side 34
22. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
ERNIR HRAFN ARNARSON leikur
ekki með Val næsta vetur í handboltanum því
hann er búinn að semja við þýska 2. deildar-
liðið Düsseldorf og leikur með því næsta vetur.
VILTU VINNA MIÐA?
SENDU SMS ESL BAD
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
Fullt af aukavinningum:
Tölvuleikir · DVD myndir
og fleira!
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
9. HVER
VINNUR!
Venjulega kostar dagurinn
aðeins 25 kr./5 MB.
Netið í
símanum
er ódýrara en
þú heldur
Notkun á Ísl
andi
, 10
0 M
B i
nn
an
d
ag
si
ns
. G
re
id
d
er
u
m
án
.g
jö
ld
s
kv
. v
er
ðs
kr
á.Prófaðu
í dag á 0 kr.
ef þú ert
viðskiptavinur
Símans.
FÓTBOLTI ÍBV kann vel við sig á
Vodafone-vellinum og lagði Val þar
öðru sinni í sumar er liðin mættust
í bikarkeppninni í gær. ÍBV hrein-
lega yfirspilaði Val í fyrri hálfleik
en Valsmenn komu til baka í þeim
seinni og voru ekki fjarri því að
tryggja sér framlengingu.
Yfirburðir Eyjamanna í fyrri
hálfleik voru með ólíkindum. Þeir
skoruðu þrjú góð mörk á rúmum
hálftíma og hefði getað skorað
fleiri í hálfleiknum. Valsmenn fóru
þó til búningsklefa með smá vonar-
glætu eftir að arfaslakur dómari
leiksins, Örvar Sær Gíslason, virt-
ist gefa liðinu sumargjöf undir lok
hálfleiksins í formi vítaspyrnu.
Valsmenn skoruðu síðan
snemma í síðari hálfleik og voru
allt í einu komnir inn í leik sem
þeir höfðu vart tekið þátt í. Þeir
voru sterkari það sem eftir lifði og
geta engum nema sjálfum sér um
kennt að hafa ekki jafnað. Færin
voru til staðar og Hörður Sveins-
son klúðraði algjöru dauðafæri í
uppbótartíma.
„Ég skammast mín ekkert fyrir
að viðurkenna að það fór um mig
í síðari hálfleik. Valsmenn komu
sprækir inn í hann en við vorum
algjört yfirburðalið í þeim fyrri,“
sagði Heimir Hallgrímsson, þjálf-
ari ÍBV, eftir leik. „Við áttum ekki
að fara með 1-3 stöðu í hálfleik-
inn heldur áttum við að hafa klár-
að leikinn. Mér fannst vítið vera
vafasamt en þetta var erfiður leik-
ur að dæma fyrir Örvar. Við fórum
síðan úr takti í stöðunni 2-3 og
hættum að gera það sem við gerð-
um svo vel í þeim fyrri.“
Tryggvi Guðmundsson nýtti
sér kæruleysi Valsmanna í botn í
upphafi og skoraði tvö mörk með
grímuna góðu. „Hún er nú ekki
komin til að vera. Mér líður betur
án hennar en gengur vel með
hana,“ sagði Tryggvi brosmildur.
Kristján Guðmundsson, þjálf-
ari Vals, var að vonum svekkt-
ur með sitt lið. „Það var eitthvað
sem gerði það að verkum að menn
mættu ekki til leiks en ég tek ekk-
ert af Eyjamönnum, sem spiluðu
frábærlega og létu okkur líta
mjög illa út,“ sagði Kristján hrein-
skilinn.
„Það er erfitt að útskýra það
hvernig við mætum til leiks og
það eina sem mér dettur í hug er
hvernig undirbúningur hvers og
eins leikmanns var. Við undir-
bjuggum leikinn eins og venjulega.
Í upphafi erum við lengi að átta
okkur á hvernig við eigum að elta
Eyjamenn, sem voru mjög hreyfan-
legir. Við fengum svo sannarlega
færin til þess að jafna og einhvern
tímann hefðum við gert það. Ég
er svekktastur með byrjunina og
að við skyldum ekki hafa hlaupið
meira þegar það lá á okkur.“
Heimir Hallgrímsson var stolt-
ur af sínu liði og sagði ljóst að því
liði vel á Vodafone-vellinum, sem
er heimavöllur liðsins í Evrópu-
keppninni.
„Hér er gott að vera og flottur
völlur. Okkar leikáætlun gekk full-
komlega framan af. Við ætluðum
að sækja í ákveðin svæði og gerð-
um það frábærlega. Það segir sína
sögu að við settum þrjú mörk á lið
á hálftíma sem var búið að fá á sig
þrjú mörk í sumar.“
henry@frettabladid.is
Gleymdu að mæta í leikinn
Valsmenn voru enn í EM-fríi þegar ÍBV kom í heimsókn á Vodafone-völlinn.
Þeir byrjuðu ekki að spila fótbolta fyrr en þeir lentu þrem mörkum undir. Það
kostaði liðið leikinn og ÍBV er komið í átta liða úrslit Valitor-bikarsins.
MAÐURINN MEÐ GRÍMUNA Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö góð mörk gegn Val í
gær. Honum hefur gengið vel með grímuna. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG