Fréttablaðið - 30.06.2011, Page 2

Fréttablaðið - 30.06.2011, Page 2
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR2 Ég lít á þetta sem pólitískan leik og hann hljóti að skipta um skoðun ef hann skoðar málið vandlega. JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR FORSÆTISRÁÐHERRA Haraldur, er landsmótið við hestaheilsu? „Eins og graðhestur að vori, lands- mótið hefur aldrei verið sprækara.“ Haraldur Örn Gunnarsson er fram- kvæmdastjóri Landsmóts 2011 sem nú stendur yfir á Vindheimamelum. Aldrei hafa fleiri hross verið á landsmóti en í ár. HOLLAND Í september næstkom- andi hyggst hollenska flugfélagið KLM fylla á eldsneytistanka sína með matarolíu sem notuð hefur verið til steikingar á frönskum kartöflum. Tilgangurinn er að draga úr losun koldíoxíðs. Fljúga á 200 ferðir með elds- neyti unnu úr gamalli matarolíu á milli Amsterdam og Parísar. Matarolíueldsneytið er umhverf- isvænt og verður því blandað saman við venjulegt flugvéla- eldsneyti. KLM hefur áður flogið með slíkt eldsneyti í tilraunaskyni og hefur nú fengið samþykki fyrir því að nota það í farþegaflugi. - ibs Hollenska flugfélagið KLM: Með matarolíu í tönkunum NÁTTÚRA „Það voru einhver kvik- indi þarna sem maður sá ekki almennilega, eitthvað sem var eldsnöggt að forða sér þegar komið var nálægt því,“ segir Árni Kópsson kafari sem fór síðastlið- inn fimmtudag í skrímslarann- sóknarleiðangur í Geirþjófsfjörð í Arnarfirði. Hann segist nú ætla að horfa gaumgæfilega á myndskeið sem hann tók í leiðangrinum til að ráða fram úr gátunni. Árni sendi djúpsjávarmynda- vél niður í holu á sjávarbotni en nokkrar slíkar fundust fyrir nokkrum árum þegar Hafrann- sóknastofnun gerði geisla- mælingakort af fjarðarbotnin- um. Árni segir að einnig hafi verið krökkt af rækju og nokkuð af fiski í holunni. Hann telur að um tíu til fimmtán metrar séu frá opi stærstu holunn- ar og niður að botni hennar sem er tæpum hundrað metrum fyrir neðan yfirborð sjávar. Þorvaldur Friðriksson skrímsla- fræðingur, sem var með í ferðinni, segir að tilgangur hennar hafi verið að kanna fyrirbæri á Stapa- dýpi á fjarðarbotni Geirþjófsfjarð- ar. Hann hefur safnað skrímsla- sögum og segir að margar þeirra séu frá svæðinu í námunda við hol- urnar. Hann telur því líklegt að þar séu heimkynni skrímsla. Árni segir að afrakstur ferðar- innar renni stoðum undir þá kenn- ingu frekar en að afsanna hana. Meðal skrímslasagna sem til eru úr Arnarfirði er frásögn frá fyrri hluta síðustu aldar af skrímsli sem gekk á land og gerði árás á bæinn Krók sem var æskuheimili Árna Friðrikssonar snemma á síðustu öld. Árni varð síðar frumkvöð- ull í fiskifræðum á Íslandi og er skip Hafrannsóknastofnunar nefnt eftir honum. „En það eru ekki allar sögurnar svo gamlar, til dæmis er til tiltölulega nýleg frásögn af skrímsli með rautt fax sem sást þarna í Arnarfirðinum.“ Guðrún Helgadóttir, jarð- fræðingur á Hafrannsóknastofn- un, segir að víðar megi finna svona gíga eða holur við landið. „Almennt er talið að þessi fyrir- bæri hafi myndast við einhvers konar útstreymi vökva eða gass, sem getur verið af ýmsum toga,“ segir hún. „Ein líkleg skýring á holum innfjarðar er gasmyndun vegna rotnandi lífvera.“ Spurð um kenningu Þorvaldar segir hún: „það er auðvitað mjög skemmtileg skýr- ing.“ Það voru Skrímslasetrið á Bíldu- dal, Jón Þórðarsonar athafnamaður og Arnfirðingafélagið sem stóðu að leiðangrinum. jse@frettabladid.is Telur skrímsli búa í holum í Geirþjófsfirði Kafari segir óútskýranleg kvikindi finnast í holum á botni Geirsþjófsfjarðar í Arnarfirði. Holurnar eru á hundrað metra dýpi. Skrímslafræðingur telur að holurnar séu heimkynni skrímsla. Skemmtileg skýring, segir jarðfræðingur. SKRÍMSLAMYNDAVÉL Árni Kópsson kafari stendur við myndavélina sem send var niður í holu í Geirþjófsfirði í Arnarfirði. Nú ætlar Árni að rannsaka nánar myndskeiðið þar sem dularfullu fyrirbæri bregður fyrir. MYND/ÁSTA SIF FISKAR Í HOLUNNI Þessi mynd er tekin í holunni. MYND/ÁSTA SIF ÞORVALDUR FRIÐRIKSSON STJÓRNMÁL Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálfstæðis- flokksins, vill láta kalla Alþingi saman. Ástæðan er hugmyndir um bráðabirgðalög sem tryggja eiga framhald á greiðslu atvinnu- leysisbóta til þeirra sem eru í hlutastarfi. Bjarni segir bráða- birgðalög vera inngrip ríkis- stjórnarinnar í löggjafarvaldið. „Ég tel að þetta mál eitt og sér sé ekki þannig vaxið að það rétt- læti bráðabirgðalöggjöf heldur væri miklu nærtækara að kalla þing saman. Þingið getur þá nýtt tækifærið og kippt í liðinn klúðr- inu vegna útboðsins á Dreka- svæðinu. Svo er fullt tilefni til þess í leiðinni að taka upp fyrstu skrefin í hinu nýhafna aðildar- ferli að Evrópusambandinu,“ segir Bjarni. „Ég veit ekki hvort Bjarni Benediktsson veit það að frá 1991, þegar lögum þar um var breytt, hafa bráðabirgðalög verið sett ellefu sinnum hér á landi og öll í tíð Sjálfstæðisflokksins,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Hún segir engan ágreining um málin. Búið sé að auglýsa útboð á Drekasvæðinu og tilkynna áhugasömum þannig að óráð sé að hringla meira með það. Þá sé einungis verið að framlengja hlutabætur. Hægt verði að greiða út um næstu mánaðamót, en vandamál gæti skapast í kring- um 1. ágúst. Á því verði að taka. „Ég lít á þetta sem pólitískan leik og að hann hljóti að skipta um skoðun ef hann skoðar málið vandlega,“ segir Jóhanna. - kóp Forsætisráðherra segir kröfu Bjarna Benediktssonar vera pólitískan leik: Bjarni vill að þing komi saman BJARNI BENEDIKTSSON JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR FJÁRMÁL Frestur til að komast í greiðsluskjól við umsókn um greiðsluaðlögun rennur út á mið- nætti. Eftir daginn í dag kemst fólk ekki í greiðsluskjól fyrr en umsókn viðkomandi hefur verið samþykkt hjá umboðsmanni skuldara. Svanborg Sigmarsdóttir, upp- lýsingafulltrúi umboðsmanns, segir að þeir sem skulda meira en þeir ráða við eigi rétt á að sækja um greiðsluaðlögun hjá embætt- inu. Tæplega 80 skuldarar sóttu um greiðsluaðlögun hjá umboðs- manni skuldara á þriðjudag, fleiri en alla síðustu viku. - shá Greiðsluskjól við umsókn: Frestur rennur út á miðnætti MANNLÍF Frestur rennur út í dag. Mynd úr safni. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suður- lands yfir meintum barnaníðingi í Vestmanna- eyjum sem er sakaður um að hafa misnotað átta ára gamla stjúpdóttur sína. Hann skal sitja í varðhaldi til 22. júlí næstkomandi. Maðurinn er grunaður um að hafa misnotað þrjár stúlkur. Eins og komið hefur fram gekk maður- inn laus í eitt ár eftir að lögreglu var ljóst að um alvarlegt kynferðisbrotamál var að ræða. Gæsluvarðhalds var fyrst krafist á laugardag- inn en lögregla hafði undir höndum mikið magn myndefnis sem sýndi manninn misnota stúlk- una. Misnotkunin er talin hafa staðið yfir svo mánuðum skipti. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, hefur verið gagnrýndur hart fyrir að hafa ekki farið fram á gæsluvarðhald um leið og málið kom upp. Settur saksóknari í málinu, Hulda Elsa Björgvinsdóttir, er á meðal gagn- rýnenda. Ólafur hefur varið ákvörðun sína og fagnaði í gær úrskurði Hæstaréttar. Ólafur Helgi hefur ekki íhugað afsögn vegna málsins. Á heimili mannsins fundust myndir sem sýna hann misnota stjúpdóttur sína. Einnig fannst ógrynni myndefnis sem sýnir börn á kynferðis- legan og klámfenginn hátt. Maðurinn á yfir höfði sér allt 16 ára fangelsi. - shá Barnaníðingsmálið í Vestmannaeyjum vekur upp harðar deilur innan réttargæslukerfisins: Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð FRÁ VESTMANNAEYJUM Barnaverndaryfirvöld í Vest- mannaeyjum sóttu fast að maðurinn yrði hnepptur í varðhald þegar málið kom upp. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BANDARÍKIN Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði á blaða- mannafundi í Hvíta húsinu í gær að hann vænti þess að sam- komulag náist um ríkisfjár- mál á næstu vikum. Glímt er um hvernig ná skal niður skuldum ríkis- sjóðs sem nálg- ast 14,3 trillj- óna dala þak sem sett hefur verið. Eftir 2. ágúst segist fjármálaráðuneyt- ið ekki fært um að standa við skuldbindingar. Leiðtogar beggja flokka á þingi eru sammála um þörfina á að minnka fjárlagahallann en eru ósammála um aðferðir. For- setinn vill fella niður skatta- afslátt til stórra fyrirtækja, til dæmis í olíuiðnaði. Repúblik- anar vilja hins vegar ekki heyra minnst á skattahækkanir. - shá Skuldir í sögulegum hæðum: Halli ríkissjóðs veldur titringi BARACK OBAMAKJARAMÁL Maraþonfundur í kjara- deilu flugmanna og Icelandair stóð enn yfir í gærkvöldi þegar Fréttablaðið fór í prentun. Menn sátu í Karphúsinu í ríflega fjór- tán tíma á þriðjudag en fund- urinn stóð fram á nótt áður en honum var frestað. Forsvarsmenn deiluaðila gefa lítið út um framgang viðræðn- anna. Icelandair hefur fellt niður flugferðir félagsins til og frá París í dag, sökum yfirvinnu- banns flugmanna. - shá Flugmenn og Icelandair: Langar setur tvo daga í röð SPURNING DAGSINS lax með strengjabaunum, tómötum og kryddjurtasósu Muna að kreista sítrónuna yfir laxinn Farðu inn á gottimatinn.is til að fá alla uppskriftina og hugmyndir að fleiri girnilegum réttum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.