Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 6
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR6
SJÁVARÚTVEGUR Íslenska kalkþör-
ungafélagið, sem hefur verksmiðju
sína á Bíldudal, hefur kært Fiski-
stofu til sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytisins vegna þess að
þeir veittu fyrirtækinu Fjarðar-
laxi leyfi til að setja niður eldiskví-
ar framan við kalkþörunganámu
sem kalkþörungafélagið hefur sér-
leyfi á.
„Þeir hafa plantað kvíum fyrir
framan svæðið þannig að það er
ekki hægt að komast að því nema
valda skemmdum á kvíum, anker-
um og fóðurlögnum frá Fjarðar-
laxi,“ segir Sigurður Helgason,
stjórnarformaður Íslenska kalk-
þörungafélagsins. „Í raun er þessi
leyfisveiting Fiskistofu hreinn
dónaskapur og yfirgangur í okkar
garð. Arnarfjörðurinn er nú gríðar-
lega stór svo það ætti að vera hægt
að veita þessi leyfi án þess að menn
séu látnir kássast upp á annarra
manna jússur. Þetta er bara eins
og í villta vestrinu í gamla daga,“
segir hann.
Hann segir enn fremur að algjört
stjórnleysi ríki í þessum málum.
„Það virðist enginn hafa neina
heildarsýn þannig að ein stofnun
veitir leyfi ofan á leyfi frá annarri
stofnun,“ bætir hann við.
Sjávar- og landbúnaðarráðu-
neytið tekur við stjórnsýslukær-
um af þessum toga og í framhald-
inu biður það stofnunina sem kærð
er um umsögn. Eyþór Björnsson
fiskistofustjóri segir að enn hafi
engin slík beiðni borist til Fiski-
stofu. Hann tekur hins vegar undir
með Sigurði að úrbóta sé þörf í
stjórnsýslunni í þessum efnum.
„Það vantar hreinlega heildstæða
strandsvæðastjórnun á Íslandi,“
segir hann. „Stofnanir eru að reyna
að gera sitt besta í þessu til að mæta
aukinni ásókn í nýtingu strand-
svæðanna.“
Ekkert samráð var haft við
Íslenska kalkþörungafélagið áður
en leyfið var veitt. Hrefna Gísladótt-
ir, forstöðumaður fiskveiðistjórnun-
arsviðs Fiskistofu, segir að ávallt sé
óskað eftir umsögnum frá lögbundn-
um umsagnaraðilum og þeim sem
augljóslega eigi hagsmuna að gæta
áður en rekstrarleyfi sé veitt.
Aðspurð hvort ekki hafi verið
eðlilegra að leita til Íslenska kalk-
þörungafélagsins segir hún að Fiski-
stofu hafi ekki verið kunnugt um
að félagið hafi verið með umsvif
á þessu svæði. Sigurður segir að
þessar námur séu ekki nýttar nú.
„En við stólum á þær í framtíðinni,“
segir hann.
Það er iðnaðarráðuneytið sem
veitti sérleyfi á kalkþörunganám-
unni. Íslenska kalkþörungafélag-
ið sendi kæruna inn í þar síðustu
viku. jse@frettabladid.is
Kærir Fiskistofu fyrir
átroðning í Arnarfirði
Stjórnarformaður Íslenska kalkþörungafélagsins sakar Fiskistofu um yfirgang
og dónaskap. Stofnunin veitti leyfi fyrir kvíum við kalkþörunganámur fyrir-
tækisins. Vantar heildstæða strandsvæðastjórnun segir fiskistofustjóri.
ÚR ARNARFIRÐI Arnarfjörðurinn er stór svo að menn eiga ekki að þurfa að „kássast
upp á annarra manna jússur“ segir stjórnarformaður Íslenska kalkþörungafélagsins.
Í raun er þessi
leyfisveiting Fiskistofu
hreinn dónaskapur og yfir-
gangur í okkar garð.
SIGURÐUR HELGASON
STJÓRNARFORMAÐUR
ÍSLENSKA KALKÞÖRUNGAFÉLAGSINS
SAMGÖNGUR Mikið vatn er nú á
Sprengisandsvegi í Nýjadal og
tálmar umferð. Gunnar Njálsson,
landvörður Vatnajökulsþjóðgarðs
segir í samtali við Fréttablaðið að
vatnið hafi myndast þar sem stór
skafl stíflar allt frárennsli.
Hann segir vatnið afar víð-
feðmt, allt að 50 metra á breidd,
200 til 300 metra á lengd og allt að
tveggja metra djúpt.
Gunnar segir ástandið afar sér-
stakt. „Þetta er allt öðruvísi en
áður og hlutirnir eru að gerast
mikið seinna á árinu.“
Veghefill mun fara upp að vatn-
inu í dag og freista þess að hleypa
úr því. Gunnar býst við að Sprengi-
sandsvegur verði opnaður fyrir
umferð í næstu viku.
Enn er ófærð á hálendinu og
Gunnar mælir með því að ferða-
fólk leiti upplýsinga á vef Vega-
gerðar áður en lagt er í hann. - þj
Erfiðar aðstæður til ferðalaga um hálendi Íslands:
Stöðuvatn á Sprengisandsvegi
ALLT Á FLOTI Gunnar sést hér úti í vatninu, sem nær allt að tveggja metra dýpt. Von-
ast er til þess að hægt verði að opna veginn í næstu viku. MYND/GUÐMUNDUR ÁRNASON
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært karlmann á fertugsaldri og
tvær konur, báðar á þrítugsaldri,
fyrir fíkniefnasmygl. Fólkinu er
gefið að sök að hafa í ágúst 2010
staðið saman að innflutningi á
tæplega hálfu kílói af kókaíni til
dreifingar og sölu hér á landi.
Önnur konan lagði á ráðin
um smyglið, þar með talið fjár-
mögnun og ferðatilhögun, og fékk
karlmanninn og hina konuna til
verksins. Efnin, sem unnt er að
framleiða rúmlega tvö kíló úr,
flutti fólkið innvortis og innan-
klæða til Íslands frá Alicante á
Spáni. Tollverðir fundu fíkniefn-
in við leit á þeim við komu þeirra
til Keflavíkurflugvallar. - jss
Maður og tvær konur ákærð:
Smygluðu hálfu
kílói af kókaíni
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir manni sem grunaður er um
að hafa brotist inn til annars
manns á Akranesi og misþyrmt
honum. Maðurinn skal sitja inni
til 1. júlí og vera í einangrun.
Þegar lögregla kom á staðinn
var fórnarlambið með mikinn
skurð á höfði. Sagði hann að
árásarmaðurinn hefði barið sig
í höfuðið með járnbarefli. Hann
hafði náð að yfirbuga ofbeldis-
manninn og hélt honum þegar
lögregla kom á vettvang.
Árásarmaðurinn var í mjög
mikilli vímu þegar hann var
handtekinn og kvaðst hann hafa
barið hinn í höfuðið. - jss
Gæsluvarðhald staðfest:
Var alblóðugur
eftir járnbarefli
ORCHY 500
Tilboð
65.995
69.995
34.995
Apollo500
Spirit 200+
ÚTIVIST Kuldinn sem varað hefur mestan part
sumars hefur gert það að verkum að mun færri
nýta sér tjaldsvæði landsins.
„Okkur finnst nú eins og að umferð tjald-
vagna og hjólhýsa sé bara ekki komin af stað,“
segir Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður á
Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Hún segir
nær enga umferð hafa verið um tjaldsvæðið og
að líklega skýrist það af kuldanum sem verið
hefur en hún er þó bjartsýn á framhaldið enda
hafi síðustu tveir dagar verið afar hlýir og sól-
ríkir.
Klara Jónsdóttir, ferðaþjónn á Bakka-
flöt í Skagafirði, segir að mun minni umferð
hafi verið á tjaldsvæðinu þar en á sama tíma
í fyrra. „Þetta fer mjög mikið eftir veðrinu,
þetta er bara svona í ferðaþjónustunni, það er
aldrei á vísan að róa,“ segir hún. Á Bakkaflöt
er einnig boðið upp á flúðasiglingu. „Það er
reyndar alveg furðulegt hvað fólk er duglegt
við að fara í siglingu en núna þessa daga, þegar
veðrið hefur verið hvað kaldast, þá hefur þó
varla verið neitt að gera í því,“ segir hún.
Frá Upplýsingamiðstöðinni í Skaftafelli feng-
ust þær upplýsingar að umferð þangað hafi
verið með besta móti en mun færri sæki á tjald-
svæðið en í fyrra. - jse
Verulega dregur úr umferð tjaldvagna og hjólhýsa í kuldakastinu:
Tjaldsvæði landsins lítið nýtt vegna kulda
Á LEIÐ Í FERÐALAG Veðráttan hefur heldur latt
ferðamenn til að nýta hjólhýsi sín undanfarið.
Sefur þú í gömlu rúmi?
JÁ 54,7%
NEI 45,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér eldislax góður mat-
fiskur?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN