Fréttablaðið - 30.06.2011, Page 10
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR
Nú hefur þú aðgang að enn fleiri
sjónvarpsstöðvum í Grímsnesinu.
Kynntu þér Vodafone Sjónvarp
gegnum Digital Ísland í 1414 eða
á vodafone.is.
Komdu í næstu verslun
Vodafone og fáðu þér myndlykil
Ertu með
sumarhús í
Grímsnesinu?
vodafone.is
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært rúmlega tvítugan karl-
mann fyrir Héraðsdómi Reykja-
ness fyrir tilraun til stórfellds
fíkniefnalagabrots.
Manninum er gefið að sök að
hafa tekið að sér að taka á móti
pakkningu sem innihélt rúmlega
1,2 kíló af amfetamíni. Efnin hafi
verið ætluð til dreifingar í ágóða-
skyni hér á landi.
Fíkniefnunum, sem voru flutt
inn til Íslands sunnudaginn 24.
maí 2009 með flugvél Icelandair
frá Kaupmannahöfn, hafði verið
komið fyrir af óþekktum manni í
ruslakörfu salernis flugvélarinn-
ar og fundust þau við leit tollgæslu
sama dag.
Manninum sem ákærður er nú
er gefið að sök að hafa ætlað að
nota sér aðstöðu sína sem starfs-
maður Ræstingaþjónustu IGS á
Keflavíkurflugvelli, þar sem hann
vann við hreinsun flugvélarinnar.
Hann hafi tekið að sér að sjá um
fíkniefnin áður en þeim var komið
fyrir og hafi hann ætlað sér að
sækja þau í ruslakörfuna í flugvél-
inni og afhenda þau síðan óþekkt-
um manni hér á landi án afskipta
yfirvalda. - jss
Starfsmaður ræstingaþjónustu á Keflavíkurflugvelli ákærður:
Dóp falið í ruslakörfu í flugvél
AMFETAMÍN Pakkinn var falinn í rusla-
körfu á salerni flugvélar frá Icelandair.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Suður-
lands kvað á föstudag upp dóm
í máli Íslandsbanka gegn hjón-
um sem tóku gengistryggt lán
hjá bankanum snemma árs 2008.
Dómurinn er sá fyrsti sem fellur
síðan Alþingi samþykkti lög um
uppgjör gengislána og var því um
prófmál að ræða.
Tekist var á um endurútreikn-
ing lánsins, í kjölfar ógildingar á
gengistryggðum lánum bankans,
og féll dómurinn Íslandsbanka
í hag. Íslandsbanki hafði reikn-
að vexti lánsins, með hliðsjón
af lægstu óverðtryggðu vöxtum
Seðlabankans, frá útborgunardegi
til dagsins í dag.
Hjónunum sem
bankinn stefndi
þótti hins vegar
óeðlilegt að upp-
gerðir gjald-
d aga r vær u
endurreiknað-
ir. Gerðu þau
því kröfu um að
endurútreikn-
ingar giltu frá
dómsuppsögu en ekki útborgun-
ardegi. Til vara vildu þau láta
útreikninga gilda frá útgáfudegi
síðustu greiðslukvittunar og til
þrautavara frá yfirtökudegi stefn-
anda á kröfunni.
„Úrskurðurinn er gríðarleg
vonbrigði. Ekki bara fyrir þetta
fólk heldur alla þá sem hafa trúað
því og treyst að fullnaðarkvitt-
anir hefðu raunverulegt gildi á
Íslandi,“ segir Björn Þorri Vikt-
orsson, lögmaður hjónanna, og
bætir við: „Maður veltir því fyrir
sér hvaða reglur er verið að móta
í einkaréttarlegum viðskiptum
þegar Alþingi kemur og ógildir
með almennum lögum viðskipti
sem eru löngu frágengin og jafn-
vel tíu ára gömul. Þetta er mjög
umhugsunarvert og maður veltir
því fyrir sér hvað sé næst.“ - mþl
Vextir lána reiknaðir frá útborgunardegi og fyrri gjalddagar gerðir upp á ný:
Gengislánadómur féll bönkum í hag
BJÖRN ÞORRI
VIKTORSSON
GRIKKLAND Gríska þingið samþykkti
í gær hið óvinsæla aðhaldsfrumvarp
ríkisstjórnarinnar, sem tryggir að
Grikkland fái næstu greiðslu frá
Evrópusambandinu og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum.
Þar með eru Grikkir sloppnir
fyrir horn í bili og geta greitt næstu
afborganir af himinháum lánum
ríkissjóðs.
Einungis einn þingmaður
stjórnar flokksins PASOK hljópst
undan merkjum og greiddi atkvæði
gegn frumvarpinu, en á móti kom að
ein þingkona stærsta flokks stjórn-
arandstöðunnar greiddi atkvæði
með frumvarpinu.
Meðan þingmenn greiddu
atkvæði um málið logaði allt í óeirð-
um á Stjórnarskrártorginu fyrir
utan þinghúsið í Aþenu. Allsherj-
arverkfall hafði einnig að nokkru
lamað þjóðlífið í landinu.
„Við verðum að koma með öllum
ráðum í veg fyrir hrun landsins,“
sagði Giorgios Papandreú forsætis-
ráðherra í ræðu sinni á þingi í gær.
„Fyrir utan eru margir að mót-
mæla. Sumir þeirra eiga sannar-
lega um sárt að binda, aðrir eru að
missa forréttindi sín. Það er lýðræð-
islegur réttur þeirra, en hvorki þeir
né nokkur annar á nokkru sinni að
þurfa að þola afleiðingar af hruni.“
Seinni hluti aðhaldspakkans verð-
ur afgreiddur á þinginu í dag og er
almennt reiknað með að hann verði
samþykktur.
Æðstu embættismenn Evrópu-
sambandsins og leiðtogar helstu
aðildarríkja þess fögnuðu niður-
stöðu gríska þingsins.
Óánægjan kraumar hins vegar
með grísku þjóðinni.
„Þetta er slæmt,“ sagði Dimitris
Kostopoulos tryggingasali, sem tók
þátt í mótmælunum. „Stjórnin hefur
enn einu sinni svikið okkur.“
Í maí á síðasta ári samþykktu
Evrópusambandið og Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn 110 milljarða evra
aðstoð til Grikklands, sem sá ekki
fram á að geta greitt afborganir af
ríkisskuldum.
Grikkir hafa nú þegar fengið 48
milljarða greidda og eiga að fá 12
milljarða fljótlega eftir mánaða-
mótin, verði aðhaldsaðgerðirnar
samþykktar.
Á síðustu vikum hefur hins vegar
komið í ljós að 110 milljarða aðstoðin
dugar ekki, þannig að Evrópusam-
bandið og Alþjóðagjaldeyrissjóður-
inn hafa nú í hyggju að samþykkja
annan aðstoðarpakka, líklega upp á
120 milljarða evra. Gríska stjórnin
segist vonast til þess að sá pakki
verði tilbúinn í haust.
gudsteinn@frettabladid.is / sjá síðu 18
Gríska þingið féllst
á aðhaldspakkann
Grikkir fá væntanlega aðstoð frá ESB og AGS til að greiða afborganir af himin-
háum skuldum. Papandreú forsætisráðherra sagði þingmönnum að hrun
myndi blasa við Grikklandi ef þeir samþykktu ekki niðurskurð ríkisútgjalda.
Á TRÖPPUM ÞINGHÚSSINS Allt logaði í óeirðum fyrir utan þinghúsið meðan þingmenn gengu til atkvæða. NORDICPHOTOS/AFP