Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 29

Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 29
FIMMTUDAGUR 30. júní 2011 29 Hinn 19. maí síðastliðinn var samþykkt á Alþingi áætl- un í jafnréttismálum sem tekur til áranna 2011 til 2014. Í áætl- uninni er meðal annars lögð áhersla á áframhaldandi aðgerð- ir til að berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Áætlun stjórnvalda ber þess merki að Ísland hyggst vera leiðandi afl þegar kemur að því að sporna gegn kynbundnu ofbeldi og þess má geta að Ísland varð nýlega meðal fyrstu þrettán aðildarríkja Evrópuráðsins til þess að undirrita alþjóðasamn- ing sem hefur það að markmiði að koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Samningur Evrópuráðsins var til umræðu á ráðstefnunni Zero tolerance against domestic vio- lence: Towards a comprehensive EU-wide policy sem undirritaðar sóttu í Brussel hinn 14. júní síð- astliðinn. Ríki sem hafa undir- ritað samninginn eru skuldbund- in til að hrinda af stað áætlun til að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi, sjá til þess að fórnarlömb kynbundins ofbeldis hljóti nauð- synlega umönnun og vernd og sjá til þess að ofbeldismaðurinn hljóti tilhlýðilega refsingu. Á ráðstefnunni var einnig rætt mikilvægi þess að grípa til sam- ræmdra aðgerða til að sporna gegn heimilisofbeldi í samfé- laginu og að ólíkar stofnanir grípi til aukinnar samvinnu. Meðal aðgerða sem þarf að samræma er hvernig ofbeldis- mál eru skráð og hvernig skima eigi fyrir ofbeldi meðal fagstétta sem veita þjónustu til kvenna, svo sem í heilbrigðis- og félags- þjónustu. Þá þarf einnig að auka þekkingu fagfólks á birtingar- myndum ofbeldis og viðbrögðum við ofbeldi. Einn af frummæl- endum á ráðstefnunni, Anthony Wills, sem veitir samtökunum Standing together against domes- tic violence forystu, greindi frá því hversu erfitt er að samræma skráningu innan bresku lögregl- unnar, þar sem ólíkar verklags- reglur eru hafðar uppi í hinum fjölmörgu lögregluumdæmum í Bretlandi. Þá er menntun og þjálfun lög- reglumanna þar í landi mjög mis- jöfn og mismunandi hugmyndir eru uppi um hvernig eigi að taka á heimilisofbeldi. Hér teljum við að vegna smæð- ar sinnar hafi Ísland mikla sér- stöðu, ekki síst þar sem allir lögreglumenn ganga í sama lög- regluskólann og fá þar viðeigandi fræðslu og þjálfun í því hvernig skuli takast á við heimilisofbeldi. Það kom einnig fram í rannsókn á vinnulagi og viðhorfi lögreglu- manna sem Ingólfur V. Gíslason vann fyrir Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd að lögreglumenn landsins eru allir menntaðir á sama stað og telja sig ekki skorta frekari menntun í því hvernig eigi að takast á við ofbeldi gegn konum. Þegar kemur að félags- og heilbrigðisþjónustu er ljóst að menntun fagstétta er sömuleið- is að miklu leyti á sömu hendi. Aðeins ein stofnun á Íslandi sér um menntun félagsráðgjafa, sálfræðinga og lækna og tvær háskólastofnanir sjá um menntun hjúkrunarfræðinga. Með aukinni samvinnu geta þessar fagstéttir gegnt lykilhlutverki þegar kemur að skimun á ofbeldi. Auk þess að auka samvinnu ólíkra fagstétta er nauðsynlegt að fagfólk öðlist þekkingu á því hvernig eigi að opna á umræðu um ofbeldi. Í nýlegum rann- sóknum sem Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd fram- kvæmdi fyrir félags- og trygg- ingamálaráðuneytið kom í ljós að starfsfólk í heilbrigðisþjón- ustu, félagsþjónustu og skóla- samfélaginu telur sig ekki hafa nægilega þekkingu á því hvernig skuli ræða um ofbeldi. Með auk- inni fræðslu um ofbeldi og endur- menntun fagstétta ætti Ísland að geta verið í fararbroddi fyrir það hvernig eigi að byggja upp þjón- ustu svo árangur náist. Við getum lært margt af reynslu Svía, en stjórnvöld þar í landi hafa komið á fót stofnun sem hefur það að markmiði að auka vitund fólks um kynbundið ofbeldi. Meðal aðgerða sem stofnunin hefur gripið til er að auka rannsóknir á kynbundu ofbeldi, sjá til þess að fræðsla um ofbeldi sé samtvinn- uð námi í lögregluskóla og námi í hjúkrun, lögfræði og læknisfræði og þjálfa fagstéttir í því hvernig eigi að spyrja konur að því hvort þær hafi verið beittar ofbeldi. Loks þarf að skoða betur hvern- ig er hægt að auka líkur á því að ofbeldismönnum sé refsað fyrir brot sitt. Rannsóknir hafa sýnt að konur veigra sér við að kæra heimilisofbeldi af ótta við ofbeld- ismanninn og vegna þess að þær kenna sjálfri sér um ofbeldið. Ein leið, sem hefur verið til umræðu, er að taka ábyrgðina á því að kæra frá konunni. Skoða ætti af fullri alvöru hvort lögregla ætti alltaf að kæra heimilisof- beldi sem hún fær tilkynningu um, án tillits til afstöðu konunn- ar. Slík málsmeðferð gæti aukið líkurnar á því að konan segði frá því ofbeldi sem á sér stað innan veggja heimilisins. Þá má ekki gleyma mikilvægi þess að endur- hæfa þessa menn til að draga úr líkunum á frekara ofbeldi í nýju sambandi. Drögum tjöldin frá var heiti á nýlegri ráðstefnu á vegum velferðarráðuneytisins, Jafn- réttisstofu, Rannsóknastofnun- ar í barna- og fjölskylduvernd og Rannsóknamiðstöðvar gegn ofbeldi við HA. Heiti ráðstefnunnar vísar til þess hve mikilvægt er að tala um ofbeldi til þess að unnt sé að sporna gegn því. Drögum tjöldin frá og fáum allt upp á borðið. Líðum ekki ofbeldi í íslensku samfélagi, nýtum okkur smæð samfélagsins og verðum leið- andi í því hvernig skuli útrýma ofbeldi. Tökum höndum saman – útrýmum ofbeldi gegn konum Samfélagsmál Elísabet Karlsdóttir félagsráðgjafi Ásdís A. Arnalds félagsfræðingur ÓTRÚLEGT VERÐ! Núna klárum við sætin i júlí. Athugið einnig önnur gisting í boði á sérkjörum. SÍÐUSTU SÆTIN Í JÚLÍ Costa del Sol & Tyrkland Ath. verð getur hækkað án fyrirvara! Kynntu þér gististaðina á www.heimsferdir.is í 14 nætur Beint morgunflug með Icelandair Verð frá 79.600 kr. Fyrstur kemur, fyrstur fær! Costa del Sol Frá kr. 79.600 í 14 nætur Frá kr. 129.900 í 14 nætur – allt innifalið Tyrkland Frá kr. 134.900 í 10 nætur – allt innifalið Tyrkland 2. júlí – 2 sæti 16. júlí – laus sæti 26. júlí – 8 sæti Costa del Sol 5. júlí – 14 sæti 19. júlí – laus sæti 30. júlí – laus sæti

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.