Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 29
FIMMTUDAGUR 30. júní 2011 29
Hinn 19. maí síðastliðinn var samþykkt á Alþingi áætl-
un í jafnréttismálum sem tekur
til áranna 2011 til 2014. Í áætl-
uninni er meðal annars lögð
áhersla á áframhaldandi aðgerð-
ir til að berjast gegn kynbundnu
ofbeldi. Áætlun stjórnvalda ber
þess merki að Ísland hyggst vera
leiðandi afl þegar kemur að því að
sporna gegn kynbundnu ofbeldi
og þess má geta að Ísland varð
nýlega meðal fyrstu þrettán
aðildarríkja Evrópuráðsins til
þess að undirrita alþjóðasamn-
ing sem hefur það að markmiði
að koma í veg fyrir ofbeldi gegn
konum og heimilisofbeldi.
Samningur Evrópuráðsins var
til umræðu á ráðstefnunni Zero
tolerance against domestic vio-
lence: Towards a comprehensive
EU-wide policy sem undirritaðar
sóttu í Brussel hinn 14. júní síð-
astliðinn. Ríki sem hafa undir-
ritað samninginn eru skuldbund-
in til að hrinda af stað áætlun til
að koma í veg fyrir kynbundið
ofbeldi, sjá til þess að fórnarlömb
kynbundins ofbeldis hljóti nauð-
synlega umönnun og vernd og
sjá til þess að ofbeldismaðurinn
hljóti tilhlýðilega refsingu.
Á ráðstefnunni var einnig rætt
mikilvægi þess að grípa til sam-
ræmdra aðgerða til að sporna
gegn heimilisofbeldi í samfé-
laginu og að ólíkar stofnanir grípi
til aukinnar samvinnu.
Meðal aðgerða sem þarf að
samræma er hvernig ofbeldis-
mál eru skráð og hvernig skima
eigi fyrir ofbeldi meðal fagstétta
sem veita þjónustu til kvenna,
svo sem í heilbrigðis- og félags-
þjónustu. Þá þarf einnig að auka
þekkingu fagfólks á birtingar-
myndum ofbeldis og viðbrögðum
við ofbeldi. Einn af frummæl-
endum á ráðstefnunni, Anthony
Wills, sem veitir samtökunum
Standing together against domes-
tic violence forystu, greindi frá
því hversu erfitt er að samræma
skráningu innan bresku lögregl-
unnar, þar sem ólíkar verklags-
reglur eru hafðar uppi í hinum
fjölmörgu lögregluumdæmum í
Bretlandi.
Þá er menntun og þjálfun lög-
reglumanna þar í landi mjög mis-
jöfn og mismunandi hugmyndir
eru uppi um hvernig eigi að taka
á heimilisofbeldi.
Hér teljum við að vegna smæð-
ar sinnar hafi Ísland mikla sér-
stöðu, ekki síst þar sem allir
lögreglumenn ganga í sama lög-
regluskólann og fá þar viðeigandi
fræðslu og þjálfun í því hvernig
skuli takast á við heimilisofbeldi.
Það kom einnig fram í rannsókn
á vinnulagi og viðhorfi lögreglu-
manna sem Ingólfur V. Gíslason
vann fyrir Rannsóknastofnun
í barna- og fjölskylduvernd að
lögreglumenn landsins eru allir
menntaðir á sama stað og telja
sig ekki skorta frekari menntun
í því hvernig eigi að takast á við
ofbeldi gegn konum.
Þegar kemur að félags- og
heilbrigðisþjónustu er ljóst að
menntun fagstétta er sömuleið-
is að miklu leyti á sömu hendi.
Aðeins ein stofnun á Íslandi sér
um menntun félagsráðgjafa,
sálfræðinga og lækna og tvær
háskólastofnanir sjá um menntun
hjúkrunarfræðinga. Með aukinni
samvinnu geta þessar fagstéttir
gegnt lykilhlutverki þegar kemur
að skimun á ofbeldi.
Auk þess að auka samvinnu
ólíkra fagstétta er nauðsynlegt
að fagfólk öðlist þekkingu á því
hvernig eigi að opna á umræðu
um ofbeldi. Í nýlegum rann-
sóknum sem Rannsóknastofnun í
barna- og fjölskylduvernd fram-
kvæmdi fyrir félags- og trygg-
ingamálaráðuneytið kom í ljós
að starfsfólk í heilbrigðisþjón-
ustu, félagsþjónustu og skóla-
samfélaginu telur sig ekki hafa
nægilega þekkingu á því hvernig
skuli ræða um ofbeldi. Með auk-
inni fræðslu um ofbeldi og endur-
menntun fagstétta ætti Ísland að
geta verið í fararbroddi fyrir það
hvernig eigi að byggja upp þjón-
ustu svo árangur náist. Við getum
lært margt af reynslu Svía, en
stjórnvöld þar í landi hafa komið
á fót stofnun sem hefur það að
markmiði að auka vitund fólks
um kynbundið ofbeldi. Meðal
aðgerða sem stofnunin hefur
gripið til er að auka rannsóknir á
kynbundu ofbeldi, sjá til þess að
fræðsla um ofbeldi sé samtvinn-
uð námi í lögregluskóla og námi í
hjúkrun, lögfræði og læknisfræði
og þjálfa fagstéttir í því hvernig
eigi að spyrja konur að því hvort
þær hafi verið beittar ofbeldi.
Loks þarf að skoða betur hvern-
ig er hægt að auka líkur á því að
ofbeldismönnum sé refsað fyrir
brot sitt. Rannsóknir hafa sýnt
að konur veigra sér við að kæra
heimilisofbeldi af ótta við ofbeld-
ismanninn og vegna þess að þær
kenna sjálfri sér um ofbeldið. Ein
leið, sem hefur verið til umræðu,
er að taka ábyrgðina á því að
kæra frá konunni. Skoða ætti
af fullri alvöru hvort lögregla
ætti alltaf að kæra heimilisof-
beldi sem hún fær tilkynningu
um, án tillits til afstöðu konunn-
ar. Slík málsmeðferð gæti aukið
líkurnar á því að konan segði frá
því ofbeldi sem á sér stað innan
veggja heimilisins. Þá má ekki
gleyma mikilvægi þess að endur-
hæfa þessa menn til að draga úr
líkunum á frekara ofbeldi í nýju
sambandi.
Drögum tjöldin frá var heiti
á nýlegri ráðstefnu á vegum
velferðarráðuneytisins, Jafn-
réttisstofu, Rannsóknastofnun-
ar í barna- og fjölskylduvernd
og Rannsóknamiðstöðvar gegn
ofbeldi við HA.
Heiti ráðstefnunnar vísar til
þess hve mikilvægt er að tala
um ofbeldi til þess að unnt sé að
sporna gegn því. Drögum tjöldin
frá og fáum allt upp á borðið.
Líðum ekki ofbeldi í íslensku
samfélagi, nýtum okkur smæð
samfélagsins og verðum leið-
andi í því hvernig skuli útrýma
ofbeldi.
Tökum höndum saman – útrýmum ofbeldi gegn konum
Samfélagsmál
Elísabet Karlsdóttir
félagsráðgjafi
Ásdís A. Arnalds
félagsfræðingur
ÓTRÚLEGT VERÐ!
Núna klárum við sætin i júlí.
Athugið einnig önnur gisting í boði
á sérkjörum.
SÍÐUSTU SÆTIN Í JÚLÍ
Costa del Sol
& Tyrkland
Ath. verð getur hækkað án fyrirvara!
Kynntu þér gististaðina á
www.heimsferdir.is
í 14 nætur
Beint morgunflug
með Icelandair
Verð frá
79.600 kr.
Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Costa del Sol
Frá kr. 79.600 í 14 nætur
Frá kr. 129.900 í 14 nætur – allt innifalið
Tyrkland
Frá kr. 134.900 í 10 nætur – allt innifalið
Tyrkland
2. júlí – 2 sæti
16. júlí – laus sæti
26. júlí – 8 sæti
Costa del Sol
5. júlí – 14 sæti
19. júlí – laus sæti
30. júlí – laus sæti