Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 34
Sarah Burton, hönnuður Alexander McQueen, hefur á skömmum tíma
orðið aðalhönnuður Kate Middleton. Hófst þetta allt með brúðarkjólnum fræga
en Middleton klæddist nýlega hvítri kápu frá McQueen í afmæli drottningar-
innar og sérsaumuðum kjól í hermannastíl um síðustu helgi.
Armenski tískuhönnuður-
inn Eduard Howhannisjan
hélt tískusýningu í Berlín 22.
júní síðastliðinn. Umgjörðin
var heldur óvenjuleg en sýn-
ingin var haldin á sýningunni
„Body Worlds & The Story of
the Heart,“ eftir Gunther von
Hagens. Á sýningunni eru yfir
200 gripir gerðir úr líkömum
manna en von Hagen varð
heimsþekktur þegar hann fann
upp aðferð til að dæla plast-
efni í líkamsvef. Sýningar hans
á líkömum manna og dýra eru afar umdeildar en mjög vinsælar. Sýningin á
Postbahnhof am Ostbahnhof í Berlín stendur til 14. ágúst.
Ógnvekjandi umgjörð
TÍSKUHÖNNUÐIR REYNA OFTAR EN EKKI AÐ VELJA ÁHUGAVERÐA STAÐI FYRIR
TÍSKUSÝNINGAR SÍNAR.
„Það er alltaf gaman að fólk geti keypt föt með verkunum mínum,“ segir
grafíski hönnuðurinn Sigurður Eggertsson sem þekktur er undir nafn-
inu Siggi Eggertsson. Siggi var beðinn um að búa til mynd á bol fyrir
bresku verslunina Asos.com sem er stærsta sjálfstæða tísku- og snyrti-
vöruverslun Bretlands á netinu.
Siggi er fyrsti íslenski hönnuðurinn
sem unnið hefur í samstarfi við versl-
unina. „Það er gott að vinna með honum
Sigga,“ segir Adrian Currie, fjölmiðla-
fulltrúi hjá Asos. „Siggi gerði eina
mynd á bol fyrir okkur sem framleidd-
ur verður í takmörkuðu upplagi, 120 ein-
tökum,“ upplýsir Adrian og bætir við að
byrjað verði að selja bolina þriðju vik-
una í júlí.
Siggi og Adrian eru inntir eftir
því hvernig samstarf þeirra kom
til. Adrian byrjar á að útskýra:
„Við erum í samstarfi við hóp
sem kallar sig It‘s Nice That og
gefur meðal annars út tímarit. Í
samvinnu við hópinn völdum við
fimm alþjóðlega listamenn til að
hanna mynd fyrir bol hjá okkur,“
segir Adrian og Siggi tekur við:
„Kunningjar mínir hjá It’s Nice
That höfðu samband við mig
og fengu mig til þess að búa til
mynstur. Svo verða líka búnir
til límmiðar með mynstrinu sem
hægt verður að líma á hjól. Þetta
var eiginlega bara hversdags-
vinna hjá mér.“
Asos er þó ekki fyrsta tísku-
vöruverslunin sem Siggi hannar
fyrir. „Ég bjó til litla línu fyrir
H&M Divided fyrir nokkrum
árum. Svo hef ég gert fullt af bolum fyrir Nike. Ég hef unnið smávegis
við föt,“ segir Siggi og er í framhaldinu spurður hvort hann sjái fyrir
sér að halda áfram í hönnun mynda og mynstra fyrir föt: „Ég er þannig
séð ekkert að eltast við það en ef verkefnið er áhugavert þá geri ég það
auðvitað. Ég stefni samt ekki beint að því,“ segir Siggi sem hefur vakið
athygli víða um heim undanfarin ár fyrir hönnun sína og myndskreyt-
ingar. martaf@frettabladid.is
Hannar mynd á
breskan bol
Mynd eftir íslenska hönnuðinn Sigga Eggertsson birtist á bolum Asos
í júlí. Asos er stærsta sjálfstæða tísku- og snyrtivöruverslun Bret-
lands á netinu. Siggi er fyrsti Íslendingurinn sem vinnur með Asos.
Siggi Eggertsson hefur vakið athygli víða um heim fyrir hönnun sína og myndskreyt-
ingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég lét prentaða öryggisborða vefjast í
kringum bolinn,“ segir Siggi um bolinn sem
hann hannaði. MYND/ASOS
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing
Útsala Útsala
20-80% afsláttur
Við erum á
Ótrúlegt
úrval af
sumarkjólum
fyrir
brúðkaupið
og
sumarveislurnar
borðapantanir í síma: 5800 101 101hotel@101hotel.is www.101hotel.is
101 brunch
laugardaga og sunnudaga frá 11 til 15
101 brunch – hollustu brunch – beikon og egg brunch