Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 42
6 •
NIÐURSTAÐASPILUN GRAFÍK HLJÓÐ ENDING
3/5 1/5 2/5 2/5
NIÐURSTAÐASPILUN GRAFÍK HLJÓÐ ENDING
5/5 5/5 4/5 4/5
Allir sem hafa einhvern tíma
komið nálægt tölvuleikjum ættu
að þekkja Duke Nukem. Þessi
fyrrverandi konungur skotleikj-
anna er búinn að vera fjarri góðu
gamni í næstum 15 ár en hefur
nú loksins látið sjá sig á nýjan
leik. Þessi 15 ára bið hefur reynst
mörgum aðdáendum hans erfið,
en ekki tekur betra við þegar
menn byrja að spila Duke Nukem
Forever og sjá að leikurinn
stendur engan veginn undir þeim
væntingum sem gerðar voru til
hans.
Duke Nukem er hinn fullkomni
karlmaður, stafræn útgáfa af
Dolph Lundgren, fyrir utan há-
skólagráðuna í efnaverkfræði.
Eftir að hafa bjargað heiminum
frá grimmum, gellustelandi
geimverum hefur Duke notið lífs-
ins í Las Vegas umvafinn yngis-
meyjum, aðdáendum og áfengum
drykkjum. En nú hafa geimverurn-
ar snúið aftur og þarf Duke því að
draga fram frasana og byssurnar
á nýjan leik og bjarga heiminum
og öllum gellunum.
Undirritaður ætlar alveg að
láta það eiga sig að rífa í sundur
misgáfulegar hönnunarákvarðanir
framleiðenda leiksins, svo sem
vopnakerfið eða egómælinn. Hinn
alræmdi karlrembu- og klósett-
húmor leiksins fær sömuleiðis að
vera óáreittur, sérstaklega þar
sem undirritaður hefur lúmskt
gaman af honum. Það sem hins
vegar er ekki hægt að líta framhjá
er að leikurinn lítur skelfilega illa
út, borðin eru illa hönnuð og til-
finningin sem maður fær við að
spila leikinn er sú að hann sé bara
hálfkláraður. Sem er afrek fyrir
leik sem er búinn að vera í vinnslu
í nærri 15 ár, en ekki afrek sem
maður ætti að stæra sig af.
Það er í raun endalaust hægt
að vera að kroppa í þetta hræ
sem hinn fyrrverandi konungur
skotleikjanna er í dag. Gervi-
greind óvinanna er varla til staðar
og borðin virka sem samansafn
af hálfkláruðum hugmyndum sem
enginn virðist hafa nennt að eyða
meiri tíma í. Það er þó vissulega
gaman að fá að leika sér aftur
með klassísk Duke-vopn, svo sem
smækkunarbyssuna og frystigeisl-
ann, og það vegur aðeins á móti
öllu því slæma sem Duke Nukem
Forever dregur fram í sviðsljósið.
Duke Nukem Forever kemst langt
á nostalgíunni en fortíðarþráin
getur ekki breytt því að hér er á
ferðinni tölvuleikur sem hefði ekki
veitt af aðeins lengri þróunartíma.
Segjum 10 -15 ár í viðbót. - vij
POPPLEIKUR: DUKE NUKEM FOREVER
VARLA BIÐARINNAR VIRÐI
Það var einstaklega ánægjulegt
þegar InFamous kom út á sínum
tíma og sýndi það að ofur-
hetjuleiki væri hægt að gera á
sómasamlegan hátt. Nú hefur
framhaldið, InFamous 2, verið
gefið út og það er einstaklega
gaman að greina frá því að hann
er ekkert síðri en forverinn.
Í InFamous 2 er haldið áfram að
fylgjast með þolraunum Coles
McGrath sem er nú mættur til
borgarinnar New Marais þar sem
tilgangurinn er að öðlast meiri
krafta til að geta tekist á við höf-
uðóvininn, sem ber hið kjánalega
nafn Beast. Þegar þangað er
komið þarf Cole að takast á við
harðskeytta skæruliða, hrikaleg
fenjaskrímsli og hermenn með
ofurkrafta.
Spilun leiksins byggist á því
að þróa hæfileika Coles, en fyrir
þá sem misstu af fyrri leiknum
þá hefur hann þann hæfileika
að geta skotið og leitt rafmagn.
Nokkurs konar Skúli rafvirki á
sterum. Þetta gerir Cole með
því að bjarga íbúum borgarinnar
(eða hrella þá), sigra skúrkana
og safna rafmagnsflísum. Síðast-
nefndi þátturinn treystir mikið
á klifurkerfi leiksins, sem er
skemmtileg pæling en mætti
vera aðeins betur útfærð.
Karma spilar veigamikinn þátt
í spilun leiksins. Leikmenn hafa
alltaf val um hvort þeir vilji gera
Cole að bjargvætti eða skúrki.
Með því að bjarga saklausum
borgurum fá menn gott karma
en ákveði menn að skeyta lítið
um mannfall meðal óbreyttra
borgara hleðst upp illt karma.
Karmað hefur síðan áhrif á hvaða
krafta menn fá þegar líður á
leikinn.
Í InFamous 2 er einnig kynntur
til sögunnar möguleiki sem gerir
leikmönnum kleift að búa til sín
eigin borð. Þessum borðum er
síðan hægt að deila með öðrum
leikmönnum. Þetta er mjög snið-
ug pæling sem gæti mögulega
lengt líftíma leiksins töluvert, en
kerfið sem heldur utan um þetta
allt saman er í flóknari kantinum
og leikmenn fá ansi takmarkaða
kennslu áður en þeir þurfa að
standa á eigin fótum.
InFamous 2 er mjög flottur
leikur, með skemmtilegan sögu-
þráð sem heldur mönnum við
efnið allt til enda. Sú staðreynd
að menn geta spilað í gegn sem
annaðhvort hetjur eða skúrkar
tvöfaldar líftíma leiksins sem
er mjög jákvætt. Karmakerfið
hefur verið betrumbætt frá fyrri
leik en þó finnst manni eins og
það vanti meiri vigt. En hverjir
svo sem gallarnir á InFamous 2
kunna að vera þá er ekki hægt
að líta fram hjá því að hér er á
ferðinni einn af betri ofurhetju-
leikjum síðustu ára.
POPPLEIKUR: INFAMOUS 2
SKÚLI RAFVIRKI Á STERUM
Duke Nukem var fyrst
kynntur til sögunnar
fyrir 20 árum, 1. júlí 1991.!LEIKIR
FJÖLHÆFUR Það er margt
sem hægt er að gera af sér
með kröftum Coles.
15 ÁRA BIÐ Á ENDA Hvað þarf marga
menn til að bjarga heiminum frá innrás
geimvera? Bara einn. Duke Nukem!
572 3400
Sumarsprengja
Firði, Hafnarfirði • Sími 572 3400