Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 51
FIMMTUDAGUR 30. júní 2011 35
Á undanförnum áratugum hafa viðhorf til náttúru og dýralífs
tekið stórstígum framförum. Mað-
urinn gerir sér sífellt betur grein
fyrir áhrifum sínum í viðkvæmu
lífríki jarðar. Nokkuð ber á áhyggj-
um varðandi afkomu villtra dýra-
stofna, t.d. þeirra sem eiga allt sitt
undir viðkomu regnskóga Suður-
Ameríku eða þá hvítabjarna hér á
norðurhjara sem eiga í vök að verj-
ast vegna rýrnandi kjörlendis. Þrátt
fyrir þessa kærkomnu vakningu er
þó einn hópur dýra afskiptur þegar
fjallað er um verndun náttúru- og
dýralífs, en það eru eldisdýrin.
Þar skýtur eilítið skökku við, því
hvergi hefur altækur ráðstöfunar-
réttur manna yfir lífi og velferð
dýra meiri og verri afleiðingar en
einmitt í þeim geira. Hvað veldur
því að svo lítið fer fyrir umfjöllun
um þennan mikilvæga málaflokk?
Erum við neytendur dýraafurða
feimnir við umfjöllun um velferð
eldisdýra? Þykir okkur ef til vill
ósamrýmanlegt að berjast fyrir
hagsmunum þeirra á sama tíma og
við neytum afurða þeirra og þau
falli því hvort eð er í valinn í okkar
þágu? Halda fjölmiðlar sig til hlés í
umræðunni til að verða ekki af aug-
lýsingatekjum framleiðenda og selj-
enda dýraafurða?
Þegar horft er til þess alræðis-
valds sem mannskepnan tekur sér
yfir náttúru og dýralífi má gera ráð
fyrir að slíku fylgi mikil ábyrgð.
Eru viðhorf hvað þetta varðar
óumbreytanleg í okkar annars víð-
sýna samfélagi? Hvílir ekki sú sið-
ferðilega skylda á okkur að tryggja
bjargarlausum eldisdýrunum við-
hlítandi aðbúnað þann tíma sem þau
draga lífsandann?
Nýverið náðu áströlsk dýra-
verndarsamtök að beina kastljósi
fjölmiðla að svívirðilegri meðferð
sláturdýra í Indónesíu, en Ástralir
hafa um árabil flutt þangað eldis-
dýr á fæti. Í meira en áratug hefur
ábendingum um skelfilega meðferð
dýranna verið komið á framfæri við
áströlsk stjórnvöld án þess að nokk-
uð væri aðhafst af þeirra hálfu. Þau
hafa fram að þessu hunsað slíkar
upplýsingar og tekið efnahagslega
hagsmuni fram yfir siðferðislegar
skyldur og alþjóðlegar skuldbind-
ingar varðandi meðferð eldisdýra.
Það var ekki fyrr en átta dögum
eftir að mikil reiðialda reis í land-
inu í kjölfar birtingar myndskeiða
af meðferð sláturdýranna, að
stjórnvöld neyddust til að stöðva
útflutninginn. Þrátt fyrir að bann-
ið sé einungis tímabundið er hér
þó um merk tímamót að ræða því
það heyrir til undantekninga að
efnahagslegir hagsmunir ríkja eða
einkaaðila víki fyrir velferð dýra.
Þó að umrædd myndskeið séu
svo yfirgengilega hrottaleg að
öllu venjulegu fólki ofbjóði eru til
sannanir um sambærilega og jafn-
vel verri meðferð eldisdýra í okkar
heimshluta.
Í sjálfbirgingslegri einfeldni
gefum við Íslendingar okkur að
ástand dýraverndarmála sé annað
og betra hér á landi en í fjarlægum
heimshlutum – að svona nokkuð
gerist ekki hér í okkar góða landi.
Það var því verulegt áfall þegar
á liðnum vetri komu fram upplýs-
ingar um tannklippingar grísa og
geldingar unggalta í íslenskum
eldisbúum, aðgerðir sem fram-
kvæmdar voru á fyrirlitlegan hátt,
deyfingarlaust og án aðkomu dýra-
lækna. Þegar eftir var gengið voru
viðbrögð og skýringar þeirra sem
ábyrgð báru á þessum óhæfuverk-
um óásættanlegar og siðlausar með
öllu.
Að bera fyrir sig að um einfalt
reikningsdæmi hafi verið að ræða
og að höfð hafi verið að leiðarljósi
arðsemis- og hagnaðarsjónarmið
eru óboðleg rök í siðaðra manna
samfélagi. Að einu leyti hafa þess-
ir aðilar þó rétt fyrir sér. Þeir bera
fyrir sig að við neytendur krefj-
umst ódýrrar kjötvöru og að hana
viljum við fá burtséð frá velferð
þeirra dýra sem í hlut eiga. Er
sanngjarnt af framleiðendum að
gera okkur neytendur á þennan hátt
samseka skefjalausum níðingsskap
gagnvart varnarlausum málleys-
ingjunum? Já, því miður er það svo.
Við neytendur dýraafurða erum
svo sannarlega samsekir þegar
litið er til skelfilegs aðbúnaðar
dýra í verksmiðjubúskap og þar
sem stunduð er fjöldaframleiðsla í
landbúnaði. Síauknar kröfur okkar
um aðgengi að slíkum afurðum á
lágu verði eru helsta orsök þess að
eldisdýr búa við óviðunandi aðbún-
að og skerta velferð.
Mál er að linni og gera þarf
gangskör að því að breyta neyslu-
venjum á afgerandi hátt. Það er
ekkert sem mælir með því að
mannskepnan neyti kjöts eða ann-
arra dýraafurða í hvert mál, þvert
á móti.
Við neytendur þurfum að snúa
við blaðinu og gera þá kröfu til
framleiðenda og seljenda land-
búnaðarafurða að á boðstólum
séu afurðir sem vottað sé af þar
til bærum aðilum að séu afurðir
eldisdýra sem búið hafi við siðleg-
ar aðstæður þar sem eðlislægum
þörfum þeirra og velferð hafi verið
sinnt. Í því felst enginn tvískinn-
ungur eins og gagnrýnendur þeirra
sem krefjast aðgangs að lífrænt
ræktuðum landbúnaðar afurðum
hafa haldið fram. Séum við í vafa
um að dýrin skynji sársauka og
ótta eða lifi við þröngan kost og
langvarandi kvalræði ber okkur að
láta blessuð skinnin njóta vafans.
Það fer ágætlega saman að vera
neytandi en jafnframt að huga að
velferð og aðbúnaði þessara hrekk-
og saklausu samferðafélaga okkar
hér á jörðinni.
Náttúra og dýralíf
Dýravernd
Óskar H. Valtýsson
neytandi og félagi í
Dýraverndarsambandi
Íslands
»6. ágúst«
Jökulsárhlaup
33 km
»2. júlí «
Þorvaldsdalur
25 km
Grettir hlaupabuxur
8.800 kr.
Hlaupavesti
6.500 kr.
La Sportiva vatnsbelti
5.800 kr.
La Sportiva hlaupaskór
Raptor: 29.800 kr.
Crossover: 29.800 kr.
Power Stretch fylgihlutir
hanskar: 5.900 kr.
húfa/hálsvörn: 4.400 kr.
»30. júlí «
Barðsnes
27 km
Annað sumarið í röð býður 66°NORÐUR uppá skemmtileg en krefjandi hlaup um náttúru
Íslands. Hlaupið er um malarvegi, gamla vegslóða, kindastíga, hóla og hæðir. Hlaupin eru
upplögð fyrir þá sem vilja njóta náttúru Íslands í góðum félagsskap.
Nánari upplýsingar á www.66north.is/hlauparod
og www.facebook.com/hlauparod
Grettir stuttermabolur
6.800 kr.
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010