Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 51

Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 51
FIMMTUDAGUR 30. júní 2011 35 Á undanförnum áratugum hafa viðhorf til náttúru og dýralífs tekið stórstígum framförum. Mað- urinn gerir sér sífellt betur grein fyrir áhrifum sínum í viðkvæmu lífríki jarðar. Nokkuð ber á áhyggj- um varðandi afkomu villtra dýra- stofna, t.d. þeirra sem eiga allt sitt undir viðkomu regnskóga Suður- Ameríku eða þá hvítabjarna hér á norðurhjara sem eiga í vök að verj- ast vegna rýrnandi kjörlendis. Þrátt fyrir þessa kærkomnu vakningu er þó einn hópur dýra afskiptur þegar fjallað er um verndun náttúru- og dýralífs, en það eru eldisdýrin. Þar skýtur eilítið skökku við, því hvergi hefur altækur ráðstöfunar- réttur manna yfir lífi og velferð dýra meiri og verri afleiðingar en einmitt í þeim geira. Hvað veldur því að svo lítið fer fyrir umfjöllun um þennan mikilvæga málaflokk? Erum við neytendur dýraafurða feimnir við umfjöllun um velferð eldisdýra? Þykir okkur ef til vill ósamrýmanlegt að berjast fyrir hagsmunum þeirra á sama tíma og við neytum afurða þeirra og þau falli því hvort eð er í valinn í okkar þágu? Halda fjölmiðlar sig til hlés í umræðunni til að verða ekki af aug- lýsingatekjum framleiðenda og selj- enda dýraafurða? Þegar horft er til þess alræðis- valds sem mannskepnan tekur sér yfir náttúru og dýralífi má gera ráð fyrir að slíku fylgi mikil ábyrgð. Eru viðhorf hvað þetta varðar óumbreytanleg í okkar annars víð- sýna samfélagi? Hvílir ekki sú sið- ferðilega skylda á okkur að tryggja bjargarlausum eldisdýrunum við- hlítandi aðbúnað þann tíma sem þau draga lífsandann? Nýverið náðu áströlsk dýra- verndarsamtök að beina kastljósi fjölmiðla að svívirðilegri meðferð sláturdýra í Indónesíu, en Ástralir hafa um árabil flutt þangað eldis- dýr á fæti. Í meira en áratug hefur ábendingum um skelfilega meðferð dýranna verið komið á framfæri við áströlsk stjórnvöld án þess að nokk- uð væri aðhafst af þeirra hálfu. Þau hafa fram að þessu hunsað slíkar upplýsingar og tekið efnahagslega hagsmuni fram yfir siðferðislegar skyldur og alþjóðlegar skuldbind- ingar varðandi meðferð eldisdýra. Það var ekki fyrr en átta dögum eftir að mikil reiðialda reis í land- inu í kjölfar birtingar myndskeiða af meðferð sláturdýranna, að stjórnvöld neyddust til að stöðva útflutninginn. Þrátt fyrir að bann- ið sé einungis tímabundið er hér þó um merk tímamót að ræða því það heyrir til undantekninga að efnahagslegir hagsmunir ríkja eða einkaaðila víki fyrir velferð dýra. Þó að umrædd myndskeið séu svo yfirgengilega hrottaleg að öllu venjulegu fólki ofbjóði eru til sannanir um sambærilega og jafn- vel verri meðferð eldisdýra í okkar heimshluta. Í sjálfbirgingslegri einfeldni gefum við Íslendingar okkur að ástand dýraverndarmála sé annað og betra hér á landi en í fjarlægum heimshlutum – að svona nokkuð gerist ekki hér í okkar góða landi. Það var því verulegt áfall þegar á liðnum vetri komu fram upplýs- ingar um tannklippingar grísa og geldingar unggalta í íslenskum eldisbúum, aðgerðir sem fram- kvæmdar voru á fyrirlitlegan hátt, deyfingarlaust og án aðkomu dýra- lækna. Þegar eftir var gengið voru viðbrögð og skýringar þeirra sem ábyrgð báru á þessum óhæfuverk- um óásættanlegar og siðlausar með öllu. Að bera fyrir sig að um einfalt reikningsdæmi hafi verið að ræða og að höfð hafi verið að leiðarljósi arðsemis- og hagnaðarsjónarmið eru óboðleg rök í siðaðra manna samfélagi. Að einu leyti hafa þess- ir aðilar þó rétt fyrir sér. Þeir bera fyrir sig að við neytendur krefj- umst ódýrrar kjötvöru og að hana viljum við fá burtséð frá velferð þeirra dýra sem í hlut eiga. Er sanngjarnt af framleiðendum að gera okkur neytendur á þennan hátt samseka skefjalausum níðingsskap gagnvart varnarlausum málleys- ingjunum? Já, því miður er það svo. Við neytendur dýraafurða erum svo sannarlega samsekir þegar litið er til skelfilegs aðbúnaðar dýra í verksmiðjubúskap og þar sem stunduð er fjöldaframleiðsla í landbúnaði. Síauknar kröfur okkar um aðgengi að slíkum afurðum á lágu verði eru helsta orsök þess að eldisdýr búa við óviðunandi aðbún- að og skerta velferð. Mál er að linni og gera þarf gangskör að því að breyta neyslu- venjum á afgerandi hátt. Það er ekkert sem mælir með því að mannskepnan neyti kjöts eða ann- arra dýraafurða í hvert mál, þvert á móti. Við neytendur þurfum að snúa við blaðinu og gera þá kröfu til framleiðenda og seljenda land- búnaðarafurða að á boðstólum séu afurðir sem vottað sé af þar til bærum aðilum að séu afurðir eldisdýra sem búið hafi við siðleg- ar aðstæður þar sem eðlislægum þörfum þeirra og velferð hafi verið sinnt. Í því felst enginn tvískinn- ungur eins og gagnrýnendur þeirra sem krefjast aðgangs að lífrænt ræktuðum landbúnaðar afurðum hafa haldið fram. Séum við í vafa um að dýrin skynji sársauka og ótta eða lifi við þröngan kost og langvarandi kvalræði ber okkur að láta blessuð skinnin njóta vafans. Það fer ágætlega saman að vera neytandi en jafnframt að huga að velferð og aðbúnaði þessara hrekk- og saklausu samferðafélaga okkar hér á jörðinni. Náttúra og dýralíf Dýravernd Óskar H. Valtýsson neytandi og félagi í Dýraverndarsambandi Íslands »6. ágúst« Jökulsárhlaup 33 km »2. júlí « Þorvaldsdalur       25 km Grettir hlaupabuxur 8.800 kr. Hlaupavesti 6.500 kr. La Sportiva vatnsbelti 5.800 kr. La Sportiva hlaupaskór Raptor: 29.800 kr. Crossover: 29.800 kr. Power Stretch fylgihlutir hanskar: 5.900 kr. húfa/hálsvörn: 4.400 kr. »30. júlí « Barðsnes      27 km Annað sumarið í röð býður 66°NORÐUR uppá skemmtileg en krefjandi hlaup um náttúru Íslands. Hlaupið er um malarvegi, gamla vegslóða, kindastíga, hóla og hæðir. Hlaupin eru upplögð fyrir þá sem vilja njóta náttúru Íslands í góðum félagsskap. Nánari upplýsingar á www.66north.is/hlauparod og www.facebook.com/hlauparod Grettir stuttermabolur 6.800 kr. Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.