Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 56

Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 56
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR40 40 menning@frettabladid.is Sumarhefti tímaritsins Þjóðmála er komið út. Meðal efnis er grein Jóns Magnússonar lögmanns um lands- dómsákæruna á hendur Geir H. Haarde, Óli Björn Kárason skrifar Manifesto hægri manns, Páll Vil- hjálmsson skrifar um Baugsmálið með hliðsjón af nýrri bók Björns Bjarnasonar, Björn Jón Bragason skrifar um ný upplýsingalög og leyndarhyggju og Björn Bjarnason fjallar um umrót og óvissu í stjórn- málaflokkum auk þessa að rýna í Bankastræti núll eftir Einar Má Guðmundsson. Þá skrifar Hannes Hólm- steinn Gissurarson um hrakspár í umhverfismálum, Einar Bene- diktsson fjallar um stjórnarskrána og þingbundið lýðræði, Jóhannes Stefánsson brýtur heilann um áhrif fíkniefnabanns og Gústaf Níelsson skrifar ritdóm um Sjálfstæða þjóð eftir Eirík Bergmann. Ritstjóri Þjóðmála er Jakob F. Ásgeirsson. Þjóðmál komin út 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Ég man þig - kilja Yrsa Sigurðardóttir Bollakökur Rikku Friðrika Hjördís Geirsdóttir Ævintýri góða dátans Svejks Jaroslav Hasek Rosabaugur yfir Íslandi Björn Bjarnason Allt á floti Kajsa Ingemarsson METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 22.06.11 - 28.06.11 10 árum yngir á 10 vikum Þorbjörg Hafsteinsdóttir Nemesis - kilja Jo Nesbø Risasyrpa - Svarti skuggi Walt Disney The little big book about Iceland - Sigurgeir Sigurjóns. Vegahandbókin 2010 útgáfa - Ýmsir höfundar Bollar, vasar og kertastjak- ar sem draga dám af þak- rennum og pípulögnum eru í forgrunni á sýningu Guð- nýjar Hafsteinsdóttur leir- listakonu í Kaolín galleríi. Sýning Guðnýjar Hafsteinsdóttur, Allt fram streymir … , var opnuð í Kaolín galleríi við Ingólfsstræti í síðastliðinni viku. Þar sýnir Guðný postulínsverk sem sækja innblást- ur í þakrennur. Hugmyndina segist Guðný hafa fengið þegar hún var að skipta um þakrennur heima hjá sér. „Þegar ég virti þær fyrir mér liggjandi á jörðinni datt mér í hug að hanna ílát og aðra gripi út frá þessu formi og það hefur leitt mig í nokkrar ólíkar áttir, sem má meðal annars sjá á sýningunni.“ Guðný segist nú gera sér far um að virða fyrir sér hvernig þak- rennur og niðurföll liggja á húsum, ekki síst á ferðalögum erlendis þar sem rennur geta verið mismunandi milli landa. „Ég er alltaf að koma auga á nýja möguleika með rörið, formið og hvernig vatnið rennur um það en ekki síður ólík litabrigði sem verða til þegar gróður eða ryð myndast á rennunum og geta verið mjög falleg.“ Guðný er með fleiri járn í eldin- um því hún hannar meðal annars stórgerð leirföt fyrir veitingahúsið Grillmarkaðinn. „Það atvikaðist þannig að ég fékk Hrefnu Sætran til að elda fyrir mig í eina rennuna á Hönn- unarmars. Í framhaldinu bað hún mig að hanna ílát fyrir veitinga- staðinn. Afraksturinn var föt, eða hálfgerðir bátar, sem ég bjó til úr jarðleir og eru allt að metra að lengd.“ Guðný hannar fyrst og fremst nytjahluti, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga eftir pöntun. Hún segir aukinn vöxt í greininni eftir hrun. „Þar spilar sjálfsagt ýmislegt inn í,“ segir hún. „Í fyrsta lagi er orðið dýrara að flytja leir- og postulínsmuni til landsins. Íslenskir leirlistamenn eru fyrir vikið orðnir samkeppnishæfari, sem skilar sér í auknu samstarfi við veitingahús. Í öðru lagi hefur orðið ákveðin vitundarvakning; veitingahús og einstaklingar vilja styðja við innlenda hönnun og framleiðslu.“ Þá tekur Guðný þátt í samsýn- ingu um 40 íslenskra hönnuða á Hönnunarsafninu í Frankfurt í Þýskalandi, sem haldin verður í tengslum við bókamessuna í haust. „Það er auðvitað frábært tæki- færi. Ég veit enn ekki hvaða verk ég kem til með að sýna, ég er búin að senda þeim mikið af myndum en líklega verða rennurnar fyrir valinu.“ Sýningin Allt fram streymir ... stendur yfir í Kaólín galleríi til 6. júlí næstkomandi. bergsteinn@frettabladid.is SKÁL Í ÞAKRENNUM GUÐNÝ HAFSTEINSDÓTTIR Sýnir verk sín í Kaolín Gallerí við Ingólfsstræti um þessar mundir, auk þess sem hún hannaði föt úr jarðleir fyrir Grillmarkaðinn og býr sig undir að taka þátt í samsýningu um 40 íslenskra hönnuða í Frankfurt í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI RENNILEG HÖNNUN Verkin á sýningunni draga dám af þakrennum og niður- föllum,. Á laugardaginn opna 39 félagar í Textílfélagi Íslands sýningu á Akur- eyri. Sýningin markar upphaf Lista- sumars á Akureyri og er haldin á þremur stöðum í bænum: í Mjólk- urbúðinni, í Ketilhúsinu og Menn- ingarhúsinu Hofi. Á sýningunni má finna prjóna- hönnun, fatahönnun, veflistaverk, tauþrykk, þæfingu, útsaum, papp- írsverk, ljósmyndaverk, ljósahönnun og margs konar óhefðbundin þráð- listaverk unnin í blandaða tækni. Textílfélag Íslands var stofnað 1974 af nemendum og kennurum textíldeildar Myndlista- og hand- íðaskólans ásamt starfandi textíl- listamönnum. Félagskonur eru nú um 80 og því um helmingur þeirra sem tekur þátt í sumarsýningunni á Akureyri en þetta er í fyrsta sinn sem Textílfélag Íslands sýnir norð- an heiða. Sýningin stendur yfir frá 2. til 17. júlí og er opin alla daga nema mánudaga frá 13 til 17. Textílfélagið norður LENNON Á RAUÐUM SKÓM Eva G. S. opnar sýninguna Rauðir gúmmískór og John, í Deiglunni, Listagilinu á Akureyri á laugardag klukkan 15. Eva sýnir málverk, teikningar og innsetningu. Titillinn vísar til vinnuferlisins þar sem hún tengdi saman orð Johns Lennon um að ástin væri það eina sem maður þyrfti og rauða gúmmískó. Sýningin stendur til 17. júlí. Swing-kvartett Óskars Guðjóns- sonar saxófónleikara kemur fram á fimmtu tónleikum sumar- tónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu á laugardag. Aðrir meðlimir hljómsveitar- innar eru Jón Páll Bjarnason á gítar, Valdimar K. Sigurjónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Tónleikarnir hefjast klukkan 15 og standa til klukkan 17. Leik- ið er utandyra á Jómfrúartorg- inu. Aðgangur er ókeypis. Swing á Jóm- frúnni ÓSKAR GUÐJÓNSSON Blæs í saxófóninn á Jómfrúnni á laugardag. FRÁ SÝNINGUNNI Sýning Textílfélagsins á Akureyri verður haldin í Mjólkurbúðinni, Ketilhúsinu og í Hofi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.