Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 60

Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 60
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR44 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson tUnE-yArDs er eitt þeirra nafna sem eru komin inn á ört vaxandi lista þeirra sem koma fram á næstu Iceland Airwaves-hátíð. tUnE-yArDs er listamannsnafn tónlistarkonunnar Merrill Garbus frá Nýja-Englandi, en hún hefur vakið mikla athygli fyrir aðra plötuna sína, Whokill, sem kom út hjá 4AD útgáfunni í vor. Tónlist tUnE-yArDs þykir einkar vel heppnað og nútímalegt fjölbragðapopp sem blandar m.a. saman þjóðlagatón- list, raftónlist, indírokki, hipphoppi og ryþmablús. Merrill hóf tónlistarferilinn þegar móðir hennar keypti handa henni notað úkúlele. Merrill leist vel á að byrja þar vegna þess að úkúlele hefur bara fjóra strengi, en ekki sex eins og gítarinn. Merrill spilar enn á úkúlele, en hún var strax ákveðin í því að hún vildi ekki verða „ein af þessum stelpum sem syngja og spila á úkúlele“ þannig að hún bætti í hljóðfærasafnið. Hún spilar líka á trommur og önnur ásláttarhljóðfæri og á plötunum bætir hún svo ýmsum hljóðfærum í mixið. Á tónleikum kemur hún fram ein með bassaleikara, en hljóðritar eigin trommutakta á staðnum og spilar („loopar“) ásamt því að spila á úkúlele og syngja. Söngurinn hennar er mjög sérstakur. Hún hefur breitt raddsvið og beitir röddinni á ýmsa vegu og hljómar stundum eins og karlmaður. Það má því segja að hún sé eins ólík krúttlegu hvíslandi úkúlele-stelpunni eins og hægt er að ímynda sér. Merrill er töffari. Eins og áður segir er Whokill önnur plata tUnE-yArDs. Þá fyrstu, Bird Brains, gaf hún upphaflega út sjálf í júní 2009. Hún fjölfaldaði hana á endurnýttar hljóðsnældur. Eftir að hún gerði samning við 4AD kom endurhljóðblönduð útgáfa af plötunni út seinna sama ár. Bird Brains er mun hrárri en Whokill, enda var hún öll tekin upp á lítinn diktafón. Whokill er mjög flott plata. Ein af þeim betri það sem af er ársins. Þeim sem vilja hlusta er bent á að báðar plöturnar, ásamt smáskífum, eru fáanlegar á gogoyoko.com. Þar er hægt að hlusta á þær í fullri lengd. Áhugaverður einyrki FJÖLBRAGÐAPOPP Merrill Garbus blandar saman ólíkum stílum í tónlist tUnE-yArDs. > PLATA VIKUNNAR Guðmundur - Guðmundur ★★★ „Ágæt rokkplata frá Guðmundi.“ -TJ > Í SPILARANUM Brian Eno - Drums Between the Bells Tom Vek - Leisure Seizure Beggi Smári - Mood Yacht - Shangri-La Jón Jónsson - Wait For Fate BRIAN ENO JÓN JÓNSSON Beyoncé er mætt með sína fjórðu plötu í farteskinu. Fela Kuti, Lauryn Hill og Stevie Wonder eru á meðal áhrifavalda. Stutt er síðan bandaríska söng- konan Beyoncé gerði allt vit- laust á Glastonbury-hátíðinni í Englandi þegar hún steig þar á svið í fyrsta sinn á ferlinum. Allt ætlaði um koll að keyra þegar hún söng sín bestu lög fyrir framan tugi þúsunda tónleika- gesta og milljónir sjónvarps- áhorfenda. Sjálf talaði hún um tónleikana sem hápunkt ferils síns. Tímasetning nýju plötunnar hennar, 4, er vafalítið engin til- viljun. Hún kom út í gær, aðeins tveimur dögum eftir tónleikana á Glastonbury enda er Beyoncé enn sjóðheit eftir frammistöð- una. Upptökur á 4 stóðu yfir í eitt ár, frá vorinu 2010 þar til nú í vor, á sama tíma og Beyoncé var í sjálfskipuðu fríi frá sviðsljós- inu. Þennan tíma nýtti hún til að drekka í sig tónlist sem hafði lengi verið í uppáhaldi hjá henni, þar á meðal með Fela Kuti, sálarbandinu The Stylistics, Lauryn Hill, Stevie Wonder og Michael Jackson, og hefur hún nefnt alla þessa flytjendur sem áhrifavalda á plötunni. Titillinn 4 er fenginn frá aðdá- endum Beyoncé sem hvöttu hana á netinu til að skíra plötuna þessu nafni. Henni þótti uppá- stungan góð enda er platan hennar fjórða á ferlinum auk þess sem fæðingardagur hennar er 4. september. Hún fæddist árið 1981 og ólst upp í Houston í Texas. Síðar meir átti hún eftir að slá í gegn í stúlknabandinu Destiny´s Child áður en hún hóf vel heppnaðan sólóferil. Tólf lög eru á nýju plöt- unni sem Beyoncé samdi með aðstoð ýmissa laga- höfunda, þar á meðal Jeff Bhasker, sem hefur samið töluvert fyrir Kanye West, Luke Steele úr hljómsveit- inni Empire of the Sun, André 3000, Kanye West og Diane Warren sem hefur samið þekkt lög á borð við I Don´t Want To Miss A Thing og Nothing´s Gonna Stop Us Now. Beyoncé hefur verið ein vinsælasta söng- kona heims í mörg ár og er hún oftast nefnd í sömu andrá og þær Lady Gaga og Rihanna. Tölurnar ljúga held- ur ekki því Beyoncé hefur selt afurðir sínar í 75 milljón- um eintaka og þá er átt við plötur, safn- plötur, smáskífur og mynddiska. freyr@frettabladid.is SJÓÐHEIT MEÐ NÚMER FJÖGUR MÖGNUÐ Á GLASTONBURY Frammi- staða Beyoncé þótti mögnuð á Glastonbury- hátíðinni. Fjórða plata hennar, 4, er komin út. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Um 900 fleiri miðar verða í boði á Iceland Airwaves-hátíðina í október en verið hefur. Ástæðan er sú að Harpa er komin í hóp tón- leikastaða og því verður meira pláss en áður fyrir áhorfendur. Alls verða um sex þúsund manns á hátíðinni ef miðarnir seljast upp og eru þá meðtaldir tónlistarmennirnir og fólkið sem starfar við hátíðina. Um fjögur þúsund miðar verða í boði fyrir almenning. Að sögn Kamillu Ingibergsdótt- ur hjá Airwaves verða ekki jafn- margir flytjendur í ár og í fyrra. „Það var metfjöldi í fyrra. Við vildum stimpla hátíðina almenni- lega inn í fyrra en það verða ekki eins margir í ár,“ segir hún. Tólf listamenn hafa bæst við dagskrána, þar á meðal Dale Earnhardt Jr. Jr. frá Bandaríkjunum, Secret Chiefs 3, Jenny Hval og Team Me frá Noregi, Touchy Mob frá Þýskalandi og frændsystkinin Ólöf og Ólafur Arnalds. Einnig hafa Berndsen, Hoffman, Oculus og Just Another Snake Cult bæst í hópinn. Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að aðstandendur Airwaves hefðu reynt að fá bandarísku þjóðlagapopparana í Fleet Foxes á hátíðina en nú er ljóst að ekkert verður af komu þeirra. Miðasala á hátíðina fer fram á www.icelandairwaves.is. - fb Harpa fjölgar Airwaves-miðum FLEIRI MIÐAR 900 fleiri miðar verða í boði á Airwaves í ár. 4 (2011) I Am Sasha...Fierce (2008) B´Day (2006) Dangerously In Love (2003) PLÖTUR BEYONCÉ KNOWLES Beyoncé hefur unnið sextán Grammy-verð- laun, þar af þrenn með Destiny ś Child. 16 Meiri Vísir. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á vísi. Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir, ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér allt sem Vísir hefur upp á að bjóða. TÓNLISTINN Vikuna 23. - 29. júní 2011 LAGALISTINN Vikuna 23. - 29. júní 2011 Sæti Flytjandi Lag 1 Coldplay .........................Every Teardrop Is A Waterfall 2 GusGus ......................................................................... Over 3 Bubbi Morthens.................................Blik augna þinna 4 Lady Gaga ..........................................The Edge Of Glory 5 A Friend In London ............................... New Tomorrow 6 Rihanna ............................................California King Bed 7 Aloe Blacc ................................................ I Need A Dollar 8 BlazRoca, Friðrik Dór og fleiri... .....Reykjavíkurnætur 9 Hvanndalsbræður ............................................. Ferðalag 10 Memfismafían & Valdimar ........Það styttir alltaf upp Sæti Flytjandi Plata 1 Gus Gus ......................................................Arabian Horse 2 Bubbi ..............................................................Ég trúi á þig 3 Ýmsir ................................................................. Pottþétt 55 4 FM Belfast ...................................... Don‘t Want To Sleep 5 Ýmsir ......................... Miklu meira veistu hver ég var? 6 Ýmsir .................................Sjómenn: Íslenskir við erum 7 Valdimar ............................................................Undraland 8 Magnús og Jóhann ................Ástin og lífið 1971-2011 9 Björk .....................................................................Gling gló 10 Ýmsir ......Eurovision Song Contest 2011: Düsseldorf Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar:

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.