Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 62

Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 62
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR46 bio@frettabladid.is Urður Hákonardóttir, söngkona danssveit- arinnar Gus gus, er vinsælasta söngkona landsins um þessar mundir. Þriðja myndin um Umbreyt- ingana verður frumsýnd um helgina en þetta á að vera síðasta myndin í þrí- leik Michaels Bay um vél- rænu geimverurnar. Að þessu sinni er allur heimur- inn undir. Transformers 3: Dark of the Moon tekur upp þráðinn þar sem mynd númer tvö, Revenge of the Fall- en, skildi við hann. Sam Witwicky og vélrænu vinirnir hans horfast í augu við eitt erfiðasta verkefni sitt fram að þessu þegar undarlegt tæki finnst á tunglinu. Um er að ræða Örkina, vél sem leiðtogi vél- rænu geimveranna, Sentinel Prime, bjargaði í miklu stríði milli Auto- bots (góðu gæjarnir) og Deceptic- ons (vondu vélarnar). En vélin fell- ur í rangar hendur og Decepticons ógna fljótlega öllu lífríki jarðar. Michael Bay hefur lýst því yfir að Dark of the Moon sé síðasta myndin hans í þessum svokallaða þríleik. Og það er vel skiljanlegt að Bay vilji binda endahnútinn á þennan kafla í lífi sínu því fram- leiðslan hefur ekki gengið snurðu- laust fyrir sig. Aðalstjarnan, Shia LaBeouf, hefur ekki reynst auð- veldur í samstarfi enda þjakað- ur af stjörnustælum. Til að bæta gráu ofan á svart neyddist Bay til að reka aðalleikkonuna sína, Megan Fox. Leikstjórinn á heiður- inn af því að hafa uppgötvað Fox og gert hana að eftirsóttasta kven- kosti í blautum draumum unglings- drengja. Fox launaði honum lamb- ið gráa strax eftir fyrstu myndina og talaði um hann sem þrælahald- ara og hélt uppteknum hætti eftir mynd númer tvö; þá ákvað Fox að nota Hitlers-samlíkinguna sem fór illa í meðframleiðanda myndanna, Steven Spielberg, og hann krafðist þess að Fox yrði látin fara. Og frú Fox ætti að vita það núna að Spiel- berg fær það sem hann biður um. Rosie Huntington-Whiteley, ung og óreynd undirfatafyrirsæta, var fengin til að hlaupa í skarðið. „Hún kann þetta hlutverk, að vera kyn- þokkafull fyrir framan tökuvélarn- ar,“ var það sem LaBeuof hafði um mótleikkonu sína að segja. Aðdáendur Transformers þurfa ekki gráta sig í svefn þótt Bay hafi lýst því yfir að þetta sé síðasta myndin hans. Tvær fyrstu mynd- irnar höluðu inn rúman einn og hálfan milljarð Bandaríkjadollara á heimsvísu í miðasölu og Brian Goldner, forstjóri leikfangarisans Hasbro sem hefur framleitt Trans- formers-leikföngin í 25 ár, sagði í samtali við fjölmiðla að hann von- aðist til að Bay myndi endurskoða ákvörðun sína. Þá ber auðvitað að líta til þess að Hollywood er aldrei spennt fyrir því að slátra gullkálf- um sínum að nauðsynjalausu. freyrgigja@frettabladid.is Umbreytingar snúa aftur Quentin Tarantino hefur klófest bæði Leonardo DiCaprio og Jamie Foxx fyrir kvikmynd sína Django Unchained. Fréttir af myndinni eru frekar óljósar en samkvæmt vefsíðunni contactmusic. com er um að ræða vestra, innblásinn af spagettívestranum Django eftir Sergio Corbucci. „Mig hefur alltaf langað til að gera mynd um svartasta blettinn á sögu Bandaríkjanna; þrælahaldið. En ég vil ekki gera það á dramatískan hátt held- ur með því að notast við vestraformið,“ hafði Daily Telegraph eftir Tarantino fyrir fjórum árum. Og nú virðist þessi hugmynd Tar- antinos ætla að verða að veruleika. Foxx mun taka við hlutverkinu af Will Smith sem var fyrst orðaður við myndina en gaf það frá sér vegna anna á öðrum vígstöðvum. Meðal annarra leikara í myndinni má nefna Christoph Waltz sem aðdáendur Tarantinos ættu að muna eftir úr Inglourio- us Basterds og Samuel L. Jackson en hann er fastagestur í kvik- myndum Tarantinos þegar slíkt á við. Myndin segir sögu þræls- ins Djangos sem hyggur á hefndir er hann sleppur úr klóm kvalara síns. Sá verður leikinn af DiCaprio en Tarantino hefur einstakt lag á að fá stjörnur til að snúa baki við fyrir- fram ákveðinni ímynd. Di Caprio hefur til að mynda ekki oft leikið ofbeldisfull illmenni en í Django Un chained leikur hann sadískan plantekrubónda sem kúgar þræla sína með misk unnarlausu ofbeldi. - fgg Línurnar að skýrast hjá Tarantino STÓRSKOTALIÐ Tar- antino hefur klófest bæði Leonardo DiCaprio og Jamie Foxx en þeir munu leika aðalhlutverkin í kvikmynd- inni Django Unchained. NÝTT STRÍÐ Shia LaBeouf og Rosie Huntington-Whiteley í hlutverkum sínum í þriðju Transformers-myndinni. Hún er sögð vera sú síðasta í þríleik Michaels Bay en enginn skyldi vanmeta ást Hollywood á gullkálfunum sínum. Leikstjóranum Chris Nolan er ákaflega annt um kvikmynd- ir sínar og krefst algjörrar þag- mælsku og trúnaðar frá starfs- fólki sínu. Sir Michael Caine fékk að bragða á þessari sérvisku leikstjórans þegar hann missti óvart út úr sér í blaðaviðtali að tökur væru hafnar og hann myndi áfram leika einka- þjón Bruce Wayne, Alfred Pennyworth. „Ég fékk símtal strax daginn eftir frá Nolan sem spurði mig af hverju ég hefði sagt þetta,“ segir Caine í samtali við breska blaðið Daily Express. „Ég má bara teljast heppinn að fá að nefna titilinn á myndinni í þessu við- tali, The Dark Knight Rises.“ Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum bregður Christian Bale sér í svarta spandex-gallann á nýjan leik til að lemja þrjótana í Gotham- borg. Þetta verður hins vegar í síð- asta sinn sem það gerist því bæði hann og Nolan hafa lýst því yfir að þetta sé þeirra síðasta framlag til Leðurblökumyndanna. Tom Hardy, Anne Hathaway og Joseph Levitt-Gordon hafa bæst í leikarahópinn en Hathaway leikur hina seiðandi Kattarkonu. Marion Cotillard og Matthew Modine eru einnig ný í leik- hópnum en ráðgert er að myndin verði frum- sýnd í júlí á næsta ári. Caine skammaður Í VONDUM MÁLUM Michael Caine fékk orð í eyra frá leikstjóra Batman-myndarinnar fyrir að hafa talað um tökurnar í blaðaviðtali. > COOPER Í BURTON-MYND Alice Cooper gæti hugsanlega leik- ið lítið hlutverk í kvikmynd Tims Burton, Dark Shadows. Cooper gaf þetta óbeint til kynna á heimasíðu sinni sem ætti að skýra hvers vegna Johnny Depp tók lagið með söngv- aranum á tónleikum fyrir skemmstu. En Depp leikur einmitt aðalhlutverk- ið í Dark Shadows. Denzel Washington er nú talinn lík- legastur til að hreppa aðalhlutverkið í kvikmyndinni The American Can sem fjallar um fellibylinn Katrínu og þær skelfilegu afleiðingar sem hann hafði fyrir íbúa New Orleans. Will Smith framleiðir myndina og hugðist leika aðalhlutverkið en hefur hætt við það sökum þess að hann er á fullu að leika í kvikmynd- inni One Thousand A.E. Washington situr heima með handritið, skrifar niður athugasemdir og spáir í spil- in og þegar hann hefur skilað af sér taka hann sjálfur og Sony-fyrirtæk- ið ákvörðun um hvort Óskarsverð- launahafinn sé rétti maðurinn. Blökkumenn hafa átt erfitt með að skilja hvers vegna íbúum New Orleans var ekki komið fyrr til bjargar þegar fellibylurinn fór yfir borgina fyrir sex árum. Skemmd- irnar voru gríðarlegar, borgin sjálf nánast á kafi og stjórnvöld virt- ust standa á gati gagnvart vandan- um. Fjölmargir áhrifamenn innan blökkumannasamfélagsins gagn- rýndu þáverandi forseta Bandaríkj- anna, George W. Bush, harðlega og töldu að ekki hefði staðið á aðstoð- inni ef þarna hefðu verið hvítir Bandaríkjamenn í vandræðum. American Can verður byggð á sannsögulegum atburðum um her- mann sem verndar hóp eldri borg- ara, sem verður innlyksa á dvalar- heimili sínu, fyrir þjófagengjum. Það var ekki fyrr en íbúarnir voru fluttir upp á þak að björgunarsveitir komu þeim til bjargar. Til liðs við Smith SAMAN Will Smith vill fá Denzel Washington til að leika aðalhlutverkið í mynd sem hann framleiðir um eftirmála fellibylsins Katrínar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.