Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 64
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR48
folk@frettabladid.is
Leikkonan America Ferrera gekk
í það heilaga á dögunum en hinn
heppni er æskuástin og leikstjór-
inn Ryan Piers Williams. Parið
hefur verið saman lengi en trú-
lofaði sig fyrir ári.
Ferrera, sem er best þekkt
fyrir leik sinn í sjónvarpsþátt-
unum Ugly Betty, bauð einung-
is nánustu vinum og fjölskyldu
í brúðkaupið. Meðal gesta voru
leikkonurnar Vanessa Williams
og Rebecca Romjin, sem leika
einnig í Ugly Betty, og Blake
Lively úr Gossip Girl en hún er
mjög góð vinkona Ferrera.
Ugly Betty-
stjarna gift
HJÓN Leikkonan America Ferrera úr Ugly
Betty giftist æskuástinni, Ryan Piers
Williams, um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KR-útvarpið ætlar að elta
meistaraflokk karla í fótbolta til
Gundadal í Þórshöfn í Færeyjum.
Þar fer fram leikur ÍF Fugla-
fjarðar og KR í Evrópudeildinni
í kvöld. Þröstur Emilsson verður
í Þórshöfn með viðtöl fyrir leik
og lýsir svo leiknum sem hefst
klukkan 18. Útsendingin, sem er
sú 314. í röðinni hjá KR-útvarp-
inu, hefst klukkan 17 og verður
Páll Sævar Guðjónsson í KR-
heimilinu. Útvarp KR sendir
út á FM 98,3 og á Netheimur.is,
iPhone, iPad og Ipod.
KR-útvarpið
til Færeyja
Kvikmynd er í bígerð um ævi
Brians Wilson, fyrrum for-
sprakka hljómsveitarinnar Beach
Boys. Oren Moverman, sem leik-
stýrði hinni vel heppnuðu The
Messenger, er að skrifa hand-
rit myndarinnar, sem hefur ekki
enn fengið nafn. Í yfirlýsingu frá
framleiðslufyrirtækinu River
Road Entertainment fjallar mynd-
in um einstakan tónlistarferil
Wilsons, andlega erfiðleika hans
og hvernig honum hefur tekist
að halda áfram í tónlistinni með
hjálp eiginkonunnar Melindu.
Kvikmynd
um Wilson
BRIAN WILSON Mynd um ævi Wilsons er
væntanleg á hvíta tjaldið.
Fjórar erlendar hljómsveit-
ir koma fram á rokkhátíðinni
Eistnaflugi sem verður haldin í
Neskaupstað dagana 7. til 9. júlí.
Þær heita Triptykon frá Sviss,
The Monolith Deathcult frá Hol-
landi, Secrets of the Moon frá
Þýskalandi og hin færeyska
Hamferð. Á meðal íslenskra
hljómsveita sem stíga á svið
eru Ham, Dr. Spock, Sólstafir,
Mammút, SH Draumur og Skálm-
öld auk Eiríks Haukssonar.
Rokkað á
Eistnaflugi
NEXT Kringlunni•Sími 551 3200
AF ÖLLUM VÖRUM!
ÚTSALAN ER HAFIN!
K R I N G L U N N I
FYRIR ÞIG OG ÞÁ SEM
ÞÉR ÞYKIR VÆNST UM!
DÖMU, HERRA- OG
BARNAFATNAÐUR!
40% AFSLÁTTU
R! OPNUMKL. 07:00Í DAG!
Nýjasta tölublað tímaritsins
Newsweek hefur vakið hörð
viðbrögð, en á forsíðunni er
að finna tölvugerða mynd af
Díönu prinsessu og Katrínu
hertogaynju af Cambridge.
Díana prinsessa hefði orðið
fimmtug á morgun hefði
hún lifað og veltir ritstjóri
blaðsins, Tina Brown, fyrir
sér hvernig líf prinsess-
unnnar væri árið 2011.
Lafði Díana Spencer, betur þekkt
sem Díana prinsessa, hefði orðið
fimmtug á morgun, 1. júlí. Af
því tilefni er forsíða tímaritsins
Newsweek heldur óvenjuleg, en
þar má sjá Díönu prinsessu og
tengdadóttur hennar Katrínu
hertogaynju af Cambridge ganga
brosandi hlið við hlið. Myndin er
mjög sannfærandi en vart þarf
að taka fram að hún er tölvugerð.
Eins og flestir vita lést Díana
prinsessa langt fyrir aldur fram
í bílslysi í París árið 1997.
Ritstjóri Newsweek er Tina
Brown og veltir hún fyrir sér í
grein inni í blaðinu hvernig líf
Díönu væri ef hún hefði ekki lát-
ist. Brown hefur lengi haft áhuga
á Díönu og skrifaði meðal ann-
ars ævisögu prinsessunnar árið
2007.
Brown telur að Díana hefði
ábyggilega flutt til New York,
hún hefði óhrædd látið flikka
upp á útlitið með lýtaaðgerðum
og án efa væri hún virkur með-
limur á samskiptavefnum Twit-
ter. Einnig telur Brown að Díana
væri búin að vera í sambandi við
marga karlmenn og væri öfund-
sjúk út í Katrínu hertogaynju,
sem einmitt prýðir forsíðuna
með tengdamóðurinni sem hún
hefur aldrei hitt.
Skiptar skoðanir eru um for-
síðuna og greinina. Margir eru
æfir og segja athæfið ósmekk-
legt. Aðrir telja grein Newsweek
góða og að Brown hafi nýtt sér
listrænt frelsi til að endurvekja
minningu Díönu. Dæmi svo hver
fyrir sig. alfrun@frettabladid.is
Umdeild forsíða Newsweek
á fimmtugsafmæli Díönu
BROSANDI
Díana prinsessa
var mjög vinsæl
og var dauði
hennar mikill
harmleikur, en
hún lést í bílslysi
í París aðeins 36
ára að aldri.
6
DÍANA FIMMTUG Myndin á forsíðunni er mjög sann-
færandi og sýnir prinsessuna ganga við hlið tengdadóttur
sinnar, Katrínar hertogaynju af Cambridge. Margir eru æfir
og telja athæfið ósmekklegt hjá Newsweek.
LEIKARINN BRAD PITT, sem á sex börn, passar sig á því
að taka vinnuna ekki með heim. „Ég vil að þau séu frjáls og laus
við allt það sem ég þarf að glíma við,“ segir Pitt.