Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2011, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 30.06.2011, Qupperneq 70
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR54 sport@frettabladid.is JÓHANNES KARL SIGURSTEINSSON var í gær vikið úr starfi sem þjálfara meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki ásamt aðstoðarþjálfara sínum Vöndu Sigurgeirsdóttur. Breiðablik er í sjöunda sæti Pepsi-deildar kvenna með sjö stig að loknum sjö leikjum og er dottið úr leik í Valitor-bikarnum. UTAN VALLAR Henry Birgir Gunnarsson segir sína skoðun henry@frettabladid.is Hrun A-landsliðs karla undir stjórn Ólafs Jóhannessonar 70 75 80 85 90 95 100 105 110 115 120 125 2007 2008 2009 2010 2011 Sæ ti á st yr kl ei ka lis ta F IF A FÓTBOLTI Miðvikudagurinn 29. júní 2011 er svartur dagur í íslenskri knattspyrnusögu. Þá hrundi íslenska karlalandsliðið niður í 122. sætið á styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins. Versti árangur Íslands á listan- um fram að þessum degi var 117. sæti. Ekki er hægt að segja að list- inn sé marklaus. Hann tekur mið af árangri landsliðanna og árang- ur Íslands síðustu ár er nákvæm- lega enginn. Ísland er þess utan í 48. sæti af 53 Evrópuþjóðum, sem er hörmu- leg niðurstaða. Ólafur Jóhannesson hefur stýrt landsliðinu í 1.341 dag, eða þrjú ár, átta mánuði og tvo daga. Árangur Ólafs er ótrúlega lélegur. Einn sigur í fimmtán mótsleikjum! Ólafi hefur einnig tekist að skrá sig í sögubækurnar með því að vera fyrsti landsliðsþjálfarinn í sögu Íslands sem er án sigurs í níu mótsleikjum í röð. Eini sigur Ólafs í mótsleik kom 15. október árið 2008. Formaðurinn stendur þétt við bak þjálfarans Ólafur er aftur á móti í þeirri ein- stöku aðstöðu að yfirmaður hans, Geir Þorsteinsson, er hundtrygg- ur. Formanni KSÍ virðist vera slétt sama þótt landsliðið sé í frjálsu falli. Hann hefur sýnt ótrúlegt ábyrgðarleysi með því að taka ekki í taumana. Þess í stað flýtur hann sofandi að feigðarósi á meðan skip Ólafs sekkur. Áhuginn á landslið- inu er fyrir vikið í sögulegu lág- marki og skal engan undra. Geir hefur ítrekað lýst því yfir að Ólafur muni klára undankeppn- ina, sama hvað raular og tautar. Það er með hreinum ólíkindum. Það er nákvæmlega ekkert sem styður það að Ólafur haldi áfram með liðið. Ólafur þekkir ekki heldur sinn vitjunartíma og hefur engan áhuga á að gera íslenskri knattspyrnu þann greiða að hætta. Launaseðillinn frá KSÍ virðist skipta hann meira máli en fram- tíð A-landsliðsins. Ef hann bæri virðingu fyrir framtíð landsliðsins væri hann hættur. Það er flestum löngu ljóst að hann hefur ekkert fram að færa lengur til liðsins. Ábyrgð Geirs í hruninu er mikil. Það er hans að taka í taumana og ráða faglega í lykilstöður. Hvor- ugt hefur hann gert. Framtíðar- sýn hans virðist þess utan ekki vera nein. Sinnuleysið er algjört og stefnan engin. Íslenska karlalands- liðið er stefnulaust rekald. Á leið í neðsta styrkleikaflokk Þetta frjálsa fall landsliðsins hefur gert það að verkum að íslenska landsliðið verður væntanlega í neðsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir undan- keppni HM 2014. Það er því ekki verið að auðvelda verkið fyrir gull- kynslóðina sem er að koma upp. Það verður ekki auðvelt verk fyrir hana að komast aftur inn á stórmót ef Ísland verður í flokki ruslliða. Ísland hefur misst þjóðir á borð við Liechtenstein og Færeyjar fram fyrir sig. Smáríki sem spila á sama vettvangi og íslenska liðið. Það er sláandi staðreynd. Ekki er hægt að kenna peninga- og aðstöðuleysi um þennan hörmu- lega árangur. Tími kominn á erlendan þjálfara A-landsliðið stendur á tímamótum. Núverandi riðlakeppni er löngu ónýt og því þætti mér eðlilegt að byrjað væri að undirbúa liðið sem spilar í næstu keppni. Henda úr liðinu leikmönnum sem hafa marg- oft sýnt að þeir eiga ekkert erindi í landsliðið og gefa þeim tækifæri sem eiga að taka við. Af nægu er að taka á þeim bænum enda er Ísland með eitt besta ungmenna- landslið Evrópu. Einnig þarf að fara í faglega ráðningu á þjálfara og það strax. Ráða þarf reyndan og hæfan þjálf- ara sem er líklegur til þess að ná því besta úr gullkynslóðinni sem er að koma upp. Mitt mat er að kominn sé tími á erlendan þjálf- ara. KSÍ ætti að hafa efni á reynd- um og hæfum erlendum þjálfara. Manni sem gerir hlutina á eigin forsendum og er ekki innsti kopp- ur í búri hjá KSÍ. Eina spurningin er hvort Geir ætli loksins að fara að sinna starfi sínu af ábyrgð? Það er ábyrgðar- leysi að koma landsliðinu í þessa stöðu án þess að taka í taumana. Ef Geir gerir það ekki núna er að mínu mati einnig kominn tími á nýjan formann. FLOTIÐ SOFANDI AÐ FEIGÐARÓSI Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er opinberlega komið í ruslflokk knattspyrnulandsliða. Liðið situr í 122. sæti á styrkleikalista FIFA og hefur aldrei verið neðar á listanum. Smáríki á borð við Færeyjar og Liechtenstein, sem Ísland hefur litið niður á hingað til, eru komin upp fyrir Ísland á FIFA-listanum. GEIR ÞORSTEINSSON OG ÓLAFUR JÓHANNESSON Bera ábyrgð á slöku gengi íslenska A-landsliðsins. Hvorugum dettur í hug að axla ábyrgð á hörmulegu gengi liðsins. FÓTBOLTI Kristinn Steindórsson hefur farið á kostum með Breiða- bliki í Pepsi-deildinni í sumar og skorað átta mörk eða mark að með- altali í leik. Öll mörkin hafa komið á heimavelli en Kristinn kann vel við sig á vellinum enda starf- ar hann þar. Hann segist vera í nánum tengslum við völlinn. „Ég mæti á völlinn, tek hálftíma í öðrum teignum og svo hálftíma í hinum. Síðan dvel ég aðeins inni á miðjunni og rölti svo bara um völl- inn og þefa af honum,“ segir Krist- inn í léttum tón. Blikar fóru fýluferð vestur á Ísa- fjörð í síðustu viku þar sem liðið datt út úr Valitor-bikarnum gegn BÍ/Bolungarvík. Úrslitin vöktu mikla athygli og voru mikil von- brigði fyrir Blika. „Þetta var ekki alveg það sem við bjuggumst við. Við tókum fimmtudagskvöldið og svo föstu- daginn fram að æfingu í að jafna okkur. Svo ræddum við saman og ákváðum að gleyma þeim leik. Það þýddi ekkert að staldra við, því það var leikur framundan gegn Keflavík. Við gíruðum okkur upp í þann leik, komum hópnum saman og náðum flottum úrslitum,“ segir Kristinn. Blikar hafa verið í þjónustu hjá Capacent síðustu tvö tímabil. Laug- ardaginn fyrir leikinn gegn Kefla- vík var hópeflisstund með fulltrú- um fyrirtækisins. „Við fórum í létta leiki og feng- um hópinn til þess að vinna saman. Þetta snýst bara um að fá menn til þess að hugsa og tala saman. Gera eitthvað annað en að vera bara á æfingum,“ segir markahrókurinn. Kristinn hefur fagnað mörkum sínum í sumar með einkennilegri handahreyfingu. Hann kallar fagn- ið „Svaninn“ sem hafi upphaflega verið refsing eftir að hann tapaði fyrir vini sínum, Arnari Hólm Ein- arssyni leikmanni Álftaness, í ball- skák. „Það var ákveðið að sigurveg- arinn fengi að velja fagnaðarlæti fyrir hinn í fyrsta leik. Hann vann þannig að ég þurfti að taka fagnið þá. Einhverra hluta vegna hélt ég þessu áfram, það var að ganga vel þannig að ég sé enga ástæðu til að breyta,“ segir Kristinn. Kristinn er langmarkahæstur í deildinni og telur sig alveg geta orðið markakóngur. „Ég ætti að geta náð því en ég er ekkert að hugsa sérstaklega um það. Liðið þarf bara að ná í fleiri stig og komast ofar í töflunni,“ segir Kristinn að lokum. - ktd Blikinn Kristinn Steindórsson er besti leikmaður 8. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins: Röltir bara um völlinn og þefar af honum SKORAR Á HEIMAVELLI Kristinn hefur skorað fimm mörk í átta leikjum í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Lið 8. umferðarinnar Markvörður Srdjan Rajkovic, Þór Varnarmenn Skúli Jón Friðgeirsson, KR Mark Rutgers, Víkingur Guðmundur Reynir Gunnarsson, KR Miðjumenn Gunnar Örn Jónsson, KR Haukur Páll Sigurðsson, Valur Björn Daníel Sverrisson, FH Hilmar Geir Eiðsson, Keflavík Sóknarmenn Kristinn Steindórsson, Breiðabliki Tryggvi Guðmundsson, ÍBV Dylan Macallister, Breiðabliki 1. deild karla Víkingur Ólafsvík - KA 2-1 0-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson 1-1 Artjoms Goncars 2-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson Haukar - HK 1-1 1-0 Björgvin Stefánsson 1-1 Atli Valsson Upplýsingar um markaskorun frá Fótbolti.net ÚRSLIT Opna Örninn Golfverslun/Cleveland - Srixon mótið Texas Skramble 2. júlí Golfklúbbur Selfoss. Skráning á golf.is Golfklúbbur Selfoss Sími 482-3335 Email: gos@heima.is FÓTBOLTI HK-ingar náðu í dýr- mætt stig í 9. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í gær þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Hauka í Hafnarfirði. Lengi vel leit allt út fyrir sigur heimaliðsins á gervi- grasinu við Ásvelli en varamað- urinn Atli Valsson skoraði jöfnun- armarkið mikilvæga skömmu fyrir leikslok. Atli var einn fjögurra leik- manna sem voru teknir út úr byrjunarliði HK frá því í síðasta leik vegna agabrota. HK er því enn ósigrað í deildinni í þeim tveimur leikjum sem Ragnar Gíslason hefur stýrt liðinu í. Kópavogsliðið situr þó enn ein- mana á botni deildarinnar og á eftir að innbyrða sinn fyrsta sigur í sumar. Úrslitin hljóta að vera mikil vonbrigði fyrir Magnús Gylfa- son og lærisveina hans. Með sigri hefðu Haukar komist upp að hlið Selfyssinga í 2. sæti deildarinnar. Í Ólafsvík unnu heimamenn góðan 2-1 sigur á KA. Með sigr- inum skutust Víkingar upp í 5. sæti deildarinnar með tólf stig en Norðanmenn færðust niður í tíunda sæti. Umferðinni lýkur í kvöld með fjórum leikjum. -ktd 1. deild karla í knattspyrnu: HK náði í stig í Hafnarfirði AGAVANDAMÁL HJÁ HK Ragnar Gíslason hefur um nóg að hugsa. MYND/HAG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.