Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 74

Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 74
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR58 golfogveidi@frettabladid.is Allir sem veiða á stöng þekkja Laxá á Ásum sem eina gjöful- ustu laxveiðiá Íslands og reynd- ar heims þegar veiði er deilt á stöng. Hins vegar eru það færri sem vita að í vatnakerfinu er líka ein gjöfulasta silungsveiðiá lands- ins, Fremri-Laxá á Ásum. Hólmgeir Elías Flosason, umsjónarmaður veiðileyfasölu í Fremri-Laxá, segir að áin geymi ótrúlegt magn af urriða sem geri hana góðan kost fyrir dellukarla en ekki síður fjölskyldufólk. „Áin er mjó og tiltölulega vatnslítil svo hættur eru ekki eins marg- ar og við margar aðrar veiðiár á Íslandi. Þetta sést líka vel á þeim hópum sem koma til okkar. Það eru fjölskyldur sem hafa komið ár eftir ár í áratugi. Oft má sjá alla aldurshópa saman við ána sem er stórkostlegt,“ segir Hólmgeir. Hólmgeir segir að til standi að bæta aðstöðuna með nýju veiði- húsi en veitt er á tvær til þrjár stangir í ánni. „Veiðin er oft ævin- týraleg og fiskur á í hverju kasti. Það dregur fjölskyldur með unga veiðimenn til okkar því erfitt er að finna álitlegri kost til að byrja að kasta flugu. Áin er lítil og fisk- ur alls staðar.“ Hólmgeir segir að veiðistaðir séu fjölbreyttir, bæði strengir og lygnur. Yfirleitt sé áin frekar grunn en dýpri hyljir inn á milli. Vatnakerfið er óvenjulega gjöfult. Ein skýring þess er að áin rennur á milli tveggja stöðu- vatna sem bæði eru matarkistur miklar. Fremri-Laxá rennur úr Svínavatni til Laxárvatns, sem myndaðist eftir að Laxá á Ásum var virkjuð árið 1930. Laxá á Ásum fellur svo áfram úr Laxár- vatni niður í Húnavatn þar sem hún sameinast affalli Vatnsdals- ár. Saman falla þær til sjávar um Húnaós. Af urriðaveiðisvæðum þar sem stangveiði var stunduð árið 2010 veiddust flestir urriðar í Veiði- vötnum alls 19.079. Næstflestir urriðar veiddust í Laxá í Þingeyj- arsýslu ofan Brúa 3.988 og þriðja mesta urriðaveiðin var í Fremri- Laxá með 3.376 fiska. Það segir aðeins hálfa söguna því skýrslur Veiðimálastofnun- ar sýna að algeng veiði í Fremri- Laxá er á bilinu 4.000 til 5.500 fiskar. Mesta veiði fór yfir 7.000 fiska fyrir nokkrum árum, að sögn Hólmgeirs. Þá skyggir það ekki á veiði í Fremri-Laxá að þar veiðast 60 til 90 laxar á hverju ári. Sú saga hefur verið útbreidd að urriðinn úr Fremri-Laxá sé allur smár en það stenst einfaldlega ekki skoðun. „Ekki veit ég hvað- an þetta er komið en þeir sem þar veiða vita að áin geymir mikið af stórum urriða. Í fyrra var stærsti fiskurinn sem ég heyrði af átta pund en ég hef heyrt að stærsti urriði sem áin hefur gefið hafi verið 17 pund.“ svavar@frettabladid.is FL U G A N A F B A K K A N U M Veiðin er oft ævin- týraleg og fiskur á í hverju kasti. HÓLMGEIR ELÍAS FLOSASON Þessi útfærsla Sunray Shadow er kennd við hönnuð hennar, Henrik Kassow Andersen hjá Zpey. Flugan hefur einnig gengið undir öðrum nöfnum, svo sem Bismóm, Skandi Sunray o.fl. Túpan er til hnýtt á plaströr en einnig á álrör, allt eftir því hve ofarlega í vatni hún á að veiða. HKA Sunray er fáanleg í ýmsum litum og hefur reynst frábærlega undanfarin ár í ýmsum laxveiðiám hér á landi, ekki síst í Rangánum. UPPSKRIFT ■ Ál eða plaströr ■ Tvinni - Svartur UNI 6/0 ■ Búkur - Mylar ■ Vængur - Undir er appelsínugult hrosshár, og nokkrir glitþræðir. Efri hluti vængs er svartlitað hrosshár og fanir af páfuglsfjöður. Haus er málaður appelsínugulur með álímdum eða lökkuðum augum. Mynd og uppskrift af Flugan.is Skæð laxafluga Settur hefur verið upp varnar- garður í Andakílsá til að spyrna við mikilli fjölgun flundru, flat- fiski af kolaætt sem mjög hefur fjölgað hér á síðustu árum. Þessi vágestur á greiða leið að hrygn- ingarsvæðum árinnar að sögn Kristjáns Guðmundssonar, for- manns árnefndar. Fyrsti laxinn kom úr Andakílsá á mánudag. Var þar á ferðinni 82 sentimetra hrygna sem veiddist um miðbik árinnar eða fyrir ofan garðinn. Mjög líklegt verður að telja, og sér í lagi í ljósi þess að fyrsti laxinn fékkst ofan við garð- inn, að þar sé kominn álitlegasti veiðistaður, segir á vef SVFR. - shá Framkvæmdir í Andakílsá: Varnargarður gegn flundru Þúsund urriðar á eina stöng Allir stangveiðimenn vita að Laxá á Ásum er ein gjöfulasta laxveiðiá landsins. Færri vita að í vatnakerfinu er eitt af bestu silungsveiðisvæðum landsins. Fremri-Laxá á Ásum gefur þúsundir urriða á hverju sumri. 105 Á BÖKKUM FREMRI-LAXÁR Fyrsta hollið í sumar veiddi yfir 200 urriða. Gríðarlegt magn er af fiski og margir fá mikið af smásilungi. Hins vegar ná margir vænum urriða í tugatali. Myndin sýnir glöggt að vel fer um straumönd í Fremri. MYND/ERIC DOS SANTOS HKA SUNRAY FLUNDRUVARNARGARÐUR Árnefndar- menn hafa miklar áhyggjur af flundru í ánni. MYND/KRISTJÁN GUÐMUNDSSON DAGA Á ÁRI eru laxveiðar leyfðar á Íslandi, samkvæmt lögum. Fiskistofu er heimilt að framlengja þann tíma í allt að 120 daga þar sem veiðar byggja á seiðasleppingum. 84 KLUKKUSTUNDIR Í VIKU hverri skal lax vera friðaður fyrir allri veiði. Breiðdalsá opnar á morgun og allar líkur eru á að ævintýri bíði þeirra sem fyrstir kasta flugu á þeim bænum. Sigurði Árnasyni, sem var að vinna við laxastigann í Efri-Beljanda, varð litið út á breiðuna og sá lax bylta sér. Við nánari skoðun kom í ljós að hylurinn var fullur af stórlaxi. Neðri-Beljandi var einnig fullur af fiski. - shá Von á góðu í Breiðdalsá á morgun Tíu hæstu urriðaveiðisvæðin 2010 1. Veiðivötn 19.079 2. Laxá í Þing. ofan Brúa 3.988 3. Fremri-Laxá á Ásum 3.376 4. Vatnsdalsá 2.794 5. Reykjadalsá 2.305 6. Vatnamót 1.376 7. Litlaá 1.038 8. Steinsmýrarvötn 1.027 9. Grenlækur 905 10. Húseyjarkvísl 868 Urriðaveiðin 2010 Stóra-Laxá í Hreppum var opnuð á þriðjudag og laxinn er mættur upp á svæði 4. Fyrsti dagurinn gaf þrjá laxa, allt tíu til tólf punda hrygnur. Þær tóku allar flugu og var sleppt eins og reglur gera ráð fyrir. Tvær hrygnur komu af Skerinu, þar sem fimm stórlaxar lágu. Einn sýnu stærstur. Svæði 1 og 2 og svæði 3 verða opnuð 7. júlí. - shá Fín opnun í Stóru-Laxá í Hreppum Smiðjuvegi 2 Kópavogi Sími 544 2121 www.rumgott.is Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 Löggiltir dýnuframleiðendur – Starfandi í 60 ár FRÍ LEGUGREINING OG FAGLEG RÁÐGJÖF

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.