Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 78

Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 78
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR62 LÖGIN VIÐ VINNUNA „Ég hlusta mest á FM957 og nú er lagið Give Me Everything með Pitbull og Ne-Yo ofarlega á lagalistanum.” Fanndís Friðriksdóttir, leikmaður kvennaliðs Breiðabliks í knattspyrnu og starfsmaður Kópavogsvallar. „Við förum í ágúst og dveljum í tvö ár,“ segir söngkonan Birgitta Hauk- dal, en hún og fjölskylda hennar hafa ákveðið að flytja til Barcelona. Í Barcelona ætlar eiginmaður Birgittu, Benedikt Einarsson, í nám í viðskiptafræði en hann er lögfræðingur að mennt. Birgitta segir að hún verði þó með annan fótinn á Íslandi til að byrja með. „Ég er með alls konar gigg bókuð hér á landi og er að vinna að því að klára plötuna mína, svo ég verð á flakki á milli Íslands og Spánar fyrsta hálfa árið. Þegar ég klára þessi verkefni, stefni ég bara á að verða eins og innfædd,“ segir Birgitta og hlær, og útskýrir að fyrsta verkefnið í Barcelona verði að skrá sig í spænskuskóla. „Ég er ekki með neinn grunn í spænsku, en maðurinn minn fór í spænsku- skóla sem unglingur og hann hefur hjálpað mér að pikka upp eina og eina setningu,“ segir Birgitta. Fjölskyldan gerði sér ferð til Barcelona fyrir tveimur vikum í leit að húsnæði. „Við fundum okkur íbúð í æðislega góðu hverfi. Það er ótrúlega fallegur garður rétt hjá, með leikvöllum og kaffihúsum og ég er bara orðin rosalega spennt,“ segir Birgitta. Hún segist ekki vita hvort hún ætli sér í frekara nám ytra. „Þetta verður eiginlega bara allt að koma í ljós. Ég þarf bara að klára verkefni mín hér heima, koma syninum á leikskóla og koma fjölskyldunni almennilega fyrir úti. En spænskuskóli er klárlega fyrsta skrefið.“ Áður en Birgitta heldur til Barcel ona, ætlar hún að skella sér á Mærudaga á Húsavík undir lok júlí- mánaðar. Þar ætlar hún að syngja með Greifunum sem eiga aldar- fjórðungsafmæli í ár. „Það verð- ur virkilega gaman að syngja með þeim. Þeir eru frá Húsavíkinni, eins og ég, og við Viddi [Kristján Viðar Haraldsson] höfum þekkst í mörg ár og erum góðir vinir,“ segir Birgitta. Spurð að því hvaða lög verði sungin, gefur Birgitta lítið upp. „Ég mun allavega syngja eitt Greifalag. Annað á eftir að koma í ljós.“ kristjana@frettabladid.is BIRGITTA HAUKDAL: FLYTUR MEÐ FJÖLSKYLDUNA TIL SPÁNAR ÆTLAR AÐ VERÐA EINS OG INNFÆDD Í BARCELONA SEST AÐ Í BARCELONA Söngkonan Birgitta Haukdal er að flytja til Barcelona þar sem eiginmaður hennar er á leið í nám. Fyrsta verk hennar verður að skrá sig í spænsku- skóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Samkvæmt frétt á vefsíðunni develop-online.net hafa rúmlega 5.500 notendur íslenska tölvuleiks- ins EVE Online óskað eftir því í mótmælaskyni að aðgangi þeirra verði lokað. Þetta myndi þýða að CCP, sem hannar og rekur tölvuleikinn, yrði af 115 milljónum íslenskra króna í áskriftargjöld. Í fréttinni er vísað í skjal á netinu en það hýsir þá notendur sem hafa óskað eftir því að aðgangi þeirra verði lokað. „Við ætlum ekki að tjá okkur um þetta mál fyrr en við höfum rætt við Council of Stellar Management eða CSM. En þú getur haft samband við fjölmiðlafulltrúa fyrirtækisins í gegnum tölvupóst,“ segir Arnar Hrafn Gylfa- son, framleiðandi hjá CCP. Valeri Massey, fjöl- miðlafulltrúi CCP, vísaði í tölvupósti til blaðsins á blogg Arnars Hrafns, eveonline.com/devblog, en tók að öðru leyti undir orð hans, fyrirtækið myndi ekki tjá sig um málið fyrr en eftir helgi. Hún vildi því ekki staðfesta ofangreindar tölur. Samkvæmt blogginu eiga fundirnir með hinum svokölluðu Council of Stellar Management að fara fram í dag og á morgun en þeir eru tengi- liðir EVE Online-svæðisins við framleiðendur leiksins. Forsaga málsins er sú að notendur EVE Online eru æfir vegna innanhússfréttabréfs sem lekið var á netið. Þar kom fram sú hugmynd að notend- ur gætu notast við venjulega peninga til að kaupa sér geimskip og hæfileika sem aðrir notendur hafa eytt ómældum tíma í að byggja upp. Hug- leiðingin var sett fram í fréttabréfinu í kjölfar þess að CCP setti í sölu alls kyns aukahluti inni í leiknum sem hafa þó engin áhrif á framgang hans. - fgg CCP gæti orðið af hundrað milljónum ÓÁNÆGÐIR NOTENDUR Þótt gestir á Fanfest Eve Online hafi verið sáttir þá er annað uppi á teningnum um þessar mundir; yfir fimm þúsund notendur leiksins hafa sagt skilið við hann í mótmælaskyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Það finnst engum skemmtilegt að afhenda né fá uppsagnarbréf og auðvitað hefðum við viljað halda öllu þessu góða fólki. En því miður náðum við ekki að tryggja fjármögnun að næstu verkefn- um og Þór-myndin er að klárast í sumarlok þannig að við urðum að grípa til þessa örþrifaráðs,“ segir Hilmar Sigurðsson, for- stjóri kvikmyndafyrirtækisins Caoz. Átta starfsmönnum var sagt upp hjá fyrirtækinu nýverið. Hilmar segir þetta ekki vera neinn heimsendi en viðurkenn- ir að hann hefði viljað hafa betri verkefnastöðu þegar vinnu við teiknimyndinni Þór lýkur. „Margt af okkar fólki er á verk- efnistengdum samningum og það lá alltaf fyrir að þetta yrði raunin ef okkur tækist ekki að tryggja inn fjármagn fyrir næstu mynd- ir,“ segir Hilmar en teiknimynd- in um Þór og hetjur Valhallar verður dýrasta teiknimynd sem íslenskt fyrirtæki hefur ráðist í að gera. Hilmar vill ekki gefa upp hver þessi næstu verkefni eru en upp- lýsir að það sé ekkert launung- armál að Þór 2 sé inni í mynd- inni. „Fyrst verðum við auðvitað að klára númer eitt, það liggur í augum uppi.“ - fgg Caoz segir upp átta starfsmönnum DÝRASTA TEIKNIMYND ÍSLANDS Teiknimyndin um Þór og hetjur Val- hallar verður dýrasta teiknimynd í sögu Íslands. Ekki hefur hins vegar gengið að fjármagna næstu verkefni hjá Caoz. ALLTAF ÓDÝRARI www. ring.is / m .ring. is ferðalög ölskyldunnar, velgengni og vernd m. Ólýsanlega fagurt er á kvö kura þegar kertaljós n hvarvetna húsasló JANÚAR 2011 FRAMHALD Á SÍÐU 4 INÚÍTALÍF Góður markaður Íslendingar geta nú nýtt sumarfríið til að leigja út íbúðir sínar í gegnum fyrirtækið Iceland Summer. SÍÐA 2 Skemmtileg lífs- reynsla Lilja Björk Jónasdóttir starfaði ðir a- ta SÍÐA 6 [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] a nánd við náttúruna. Vinsæl- gðir eru í Lapplandi, Sviss, pan, þar sem hin ægifagra er haldin í febrúar ár hvert héraði í norðaustur Japan. r í Yokote og ekki óalgengt sentimetra snjór yfir nótt. llast kamakura og inni í i til tilbeiðslu vatnsguð ur fyrir góðri öryggi fjgegn elduin á Kama snjóhúsin, e ríkjum á snjó elskenda að g lilluð við sumarbú barna í Band ríkjunum síðas sumar og ætlar aftur í vor. föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 11. mars 2011 Helicopter vekur athygli Á rúmstokknumTískan á pöllunumÁrshátíðarförðunin Fríða María Harðardóttirer sannur eyjarskeggi Kr. TILBOÐ 117.950 FRÁBÆRT FARTÖLVUTILBOÐ 15.6” Skand ínavís Mikil hönnu narsýn ing er haldin í Stok k- hólmi í febrú ar. Þar eru he lstu ný jungar hönnu narhei msins kynnt ar. Sýn ingin þ ykir gefa g óða m ynd af þeim straum um se m einken na ska ndinav íska hö nnun o g þang að flykkis t fólk f rá öllu m heim shornu m. Sýning arsvæ en ein nig borgin a. Í á oft áð ur e framl eið umhve rf sín í b la EVERYTH ING MAT TERS. heimi li& hönnu n febrúar 2011 FRAM HALD Á SÍÐU 4 Klassís k hönnu n í nýju lj ósi Ungir hönnu ðir létu ljó s sitt s kína í Stokkh ólmi. Þ eirra á með al var J aeuk Jung. SÍÐA 6 Mikill græjuk arl SÍÐA 2 ld- lýsa upp ræður rómantík ðum og vinsælt meðal fast hvort öðru undir bleik- himni og glitrandi frostrós- -þlg s- uppskeru, eum stjörnu um. útvarp menning[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ] mars 2011 l FRAMHALD Á SÍÐU 6 DRÖGUM VARLA FLEIRI DÆMI Á djúpum miðum SÍÐA 2 Útsprungnar rósir SÍÐA 2 Ragn Viðt Kjartan Guðmundsson dustar rykið af fyrstu plötu The Pogues. matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]mars 2011 Dekrað við bragðlaukana Albert Eiríksson færir ljúffenga döðluköku í nútímalegra og heilsusamlegra horf. SÍÐA 2 Hreinn unaður Kristín Eik Gústafsdóttir býr til fádæma flotta tertu sem allir geta spreytt sig á.SÍÐA 4 Með sunnudagskaffinuKökur, huggulegheit og samvera. DÆMI Ívar Örn Hansen S: 5125429 , gsm 6154349 i @ 6 ivarorn 3 5. s Sigríður Dagný S: 5125462, gsm 8233344 i id d @ 6 is gr ur agny 3 5. s Sigríður Hallgríms S: 5125432, gsm 6924700 i id h@ 6 is gr ur 3 5. s AUGLÝSING Í SÉRBLÖÐUM SKILAR ÁRANGRI! k h ðið er stórt o g yfirg eru sý ninga r víðs r var v iður al ls ráða nda gr unnef ni í sk a slu. N áttúru lega isvæn ar fram leiðs nd við skæra og st Ásgeir Kolbe insson við sig í miðb ænum . fjölskyldan[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ] Þ órður Hermannsson sækir Hitt húsið með dóttur sína Karitas Lóu 6 mánaða. Þórður er 23 ára nýútskrifaður tónsmiður fráLHÍ. „Karitas Lóa er mitt fyrsta barn en kærastan mín átti tvö börn fyrir svo við erum með þrjú börn heima. Ég er í fæðingarorlofi núna og finnst mjög gott að geta hitt aðra foreldra og þá hittir hún líka aðra krakka.“ Þórður segir þá fræðslu sem boðið er upp á koma sér vel fyrir unga nýbak- aða foreldra en annanhvern miðvikudag eru faglegir fyrirlestrar eða kynning- ar. Hann segir félagsskapinn ekki síður mikilvægan. „Það er gott að hafa stuðning af fleiri ungum foreldrum en það eru ekki marg- ir vinir mínir komnir með börn. Hópur- inn sem hittist er á aldrinum 18 til 25 ára. Við erum öll með okkar fyrsta barn og að ganga í gegnum svipaða hluti. Það er alltaf febrúar 2011 Í hundunum Theodóra Róbertsdóttir sýnir á stærstu hundasýningu heims í næsta mánuði. SÍÐA 2 FRAMHALD Á SÍÐU 4 Ungir kenna fullorðnum Nemendur úr sjöunda bekk Grandaskóla kenna fullorðnum á tölvur. SÍÐA 6 Alla miðvikudaga milli klukkan 14 og 16 geta ungir foreldrar mætt með börnin sín í Hitt húsið, rætt málin og fengið faglega ráðgjöf varðandi umönnun ungbarna. Starfið ber yfirskriftina Ungt fólk með ungana sína. Gott að hitta aðra unga foreldra FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR okkar.is ze br a Sérblöð Fréttablaðsins eru fjölbreytt og höfða til fólks á öllum aldri. Fjöldi mismunandi sérblaða kemur út í hverjum mánuði. Leitaðu ráða hjá jöfum okkar um hvar auglýsingin ráðg þín nær best til markhópsins. AUGLÝSINGAR Í SÉRBLÖÐUM *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.