Fréttablaðið - 06.07.2011, Qupperneq 2
6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR2
Kristinn, eruð þið þá braut-
ryðjendur?
„Já, og ætlum að ryðja hinum
íþróttunum úr vegi.“
Kristinn Þór Sigurjónsson er varafor-
maður Rugby-félags Reykjavíkur en á
sunnudag fór fyrsti opinberi ruðnings-
leikurinn fram á Íslandi.
NEYTENDAMÁL Posinn á hársnyrti-
stofu Torfa Geirmundssonar, rak-
ara við Hlemm, hefur ítrekað
tekið rangar upphæðir af kortum
viðskiptavina stofunnar á síðustu
dögum. Fyrri viðskiptavinur borg-
ar fyrir þann sem á eftir kemur.
Torfi fékk ábendingu um villuna
á laugardag, þegar viðskipta vinur
hringdi inn og tjáði honum að tvær
færslur hefðu verið teknar af kort-
inu hans. Fyrri upphæðin var sú
sem hann greiddi en sú síðari var
færsla þess viðskiptavinar sem á
eftir kom. Rétt upphæð umrædds
viðskiptavinar var 1.500 krónur
en upphæð þess næsta var 8.700
krónur. Síðari færslan kom nokkr-
um mínútum á eftir þeirri fyrri.
Viðskiptavinurinn sem átti að
borga 8.700 krónur, greiddi ekki
neitt.
„Þetta er allt í tómri vitleysu
hérna hjá mér,“ segir Torfi, og
vill benda þeim viðskiptavinum
sínum sem hafa lent í þessu á að
hafa samband við sig. „Ég er alveg
miður mín og finnst þetta ofboðs-
lega leiðinlegt.“
Torfi bendir á að hann hafi
fyrst og fremst áhyggjur af því
að gallinn liggi í fleiri posum en
sínum. „Það er engin leið að gera
sér grein fyrir þessu nema menn
skoði kortayfirlitið sitt,“ segir
hann.
Rétt upphæð prentast út úr pos-
anum og kvitta viðskipta vinir
undir þær. Þetta gerir það að
verkum að annar hver viðskipta-
vinur fær ókeypis hársnyrtingu
án þess að gera sér grein fyrir
því að sá sem á undan kom borgi
fyrir hann.
Torfi hafði samband við
Borgun, sem rekur greiðslu-
fyrirkomulag stofunnar, á mánu-
dag. Um klukkan tvö í gærdag
komu starfsmenn frá Borgun og
skiptu um posa.
Haukur Oddsson, forstjóri
Borgunar, segir gallann ekki
liggja í kerfi Borgunar, heldur
í posanum sjálfum. Færslurnar
verði leiðréttar og verið sé að
skoða hvað hafi farið úrskeiðis.
„Það sem við sjáum í okkar
kerfum er að gallinn liggur ekki
þar,“ segir Haukur og segist ekki
muna eftir því að þessi tiltekna
bilun hafi áður komið upp.
„Yfirleitt eru bilanirnar þannig
að þær sjást strax. En því miður
er það stundum svo að þær upp-
götvast af notendunum. En bilanir
geta komið fyrir hjá öllum,“
segir Haukur. Kerfis fræðingar
Borgunar eru að skoða hvort
villan hafi átt sér stað víðar.
sunna@frettabladid.is
Borguðu klippingu
næsta manns á eftir
Rakarinn Torfi Geirmundsson er miður sín yfir vegna galla í kortaposa sem olli
því að annar hver viðskiptavinur hans fékk frítt en hinir greiddu tvöfalt og sumir
mun meira. Sést bara á greiðsluyfirliti. Hefur áhyggjur af fleiri gölluðum posum.
MEÐ HENDUR FULLAR AF KVITTUNUM Fjöldi viðskiptavina Torfa Geirmundssonar
greiddi klippingu fyrir þann sem á eftir kom. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Ég er alveg miður
mín og finnst þetta
ofboðslega leiðinlegt.
TORFI GEIRMUNDSSON
RAKARI
DANMÖRK, AP Danir hófu í gær
landamæraeftirlit og sendu 50 nýja
tollverði til starfa við landamæri
Þýskalands og Svíþjóðar.
Þýsk stjórnvöld hafa gagnrýnt
landamæraeftirlit Dana harðlega
og segja það brjóta gegn Schengen-
samkomulaginu.
Danska stjórnin segir hins vegar
að nýja landamæraeftirlitið, sem
þingið samþykkti í síðustu viku,
sé nauðsynlegt til þess að verjast
glæpamönnum, sem annars fari
óhindrað yfir landamærin. Einnig
séu þau nauðsynleg til að hindra
straum ólöglegra innflytjenda. - gb
Hefja landamæraeftirlit:
Leitað í bílum
af handahófi
ALÞINGI Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsóknar-
flokksins, hefur óskað eftir
fundi í utan-
ríkismálanefnd
Alþingis eins
fljótt og auðið
er.
Þar vill Sig-
mundur ræða
yfirlýsingar
Össurar Skarp-
héðinssonar
utanríkisráð-
herra í þá veru
að Íslendingar þurfi engar undan-
þágur frá sameiginlegri sjávar-
útvegsstefnu Evrópusambandsins
í komandi aðildarviðræðum.
Í yfirlýsingu frá Sigmundi
segir að þau orð Össurar sam-
ræmist ekki áliti meirihluta
nefndarinnar um samnings-
viðmið í sjávarútvegsmálum.
Hann óskar sérstaklega eftir því
að Össur mæti á fundinn. - sh
Sigmundur vill nefndarfund:
Össur standi
fyrir máli sínu
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
SJÁVARÚTVEGUR Greiningardeild
Arion banka telur að hækkun
veiðigjalds úr 9,5 prósentum í
13,3 prósent af reiknaðri framlegð
útgerða á næsta fiskveiðiári muni
að öllum líkindum leggjast þyngra
á minni fyrirtæki. Þetta kemur
fram í Markaðspunktum bankans.
Jafnframt er það niðurstaða
greiningardeildarinnar að aukin
gjaldtaka muni íþyngja meðal-
stórum og minni fyrirtækjum
meira en stærri fyrirtækjum,
sökum mismunandi skuldsetning-
ar þeirra. Samkvæmt úttekt grein-
ingardeildarinnar er skuldabyrði
minni fyrirtækjanna hlutfallslega
mun þyngri en þeirra stærri. - shá
Hækkun veiðigjalds:
Leggst þyngra á
lítil fyrirtæki
Í HÖFN Hugsanlegt að lítil fyrirtæki finni
meira fyrir hækkun veiðigjalds.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
AFRÍKA Svo vannærð eru börn
sem eru á flótta með foreldrum
sínum frá þurrkasvæðum í
Sómalíu að „mannlegur harm-
leikur af óþekktri stærðargráðu“
er yfirvofandi. Þetta segir Ant-
onio Guterres, yfirmaður flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (UNHCR).
Ung börn deyja á leiðinni í
flóttamannabúðir í Eþíópíu og
Kenía. Talið er að fjórðungur
Sómala hafi þurft að flýja heimili
sín.
Ýmsar hjálpastofnanir hafa
óskað eftir fjárhagsaðstoð til að
hjálpa tólf milljónum manna sem
svelta heilu hungri í Sómalíu,
Eþíópíu, Kenía og Súdan. - shá
Hungursneyð í Afríku:
Milljónir þjást
og börnin deyja
SJÁVARÚTVEGUR Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, kynnti í gær ákvörðun
um heildarafla á næsta fiskveiði-
ári. Ákvörðunin byggir á ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunarinnar og
í samráði við hagsmunaaðila.
Að tillögu stofnunarinnar hefur
ráðherra ákveðið að heildarafli
þorsks verði 177 þúsund tonn eða
um tíu prósent hærri, en er á yfir-
standandi fiskveiðiári.
Heildarafli ýsu er ákveðinn 45
þúsund, sem er fimm þúsund tonna
lækkun frá fyrra ári. Heildar afli
ufsa verður 52 þúsund tonn, sem
er lítilsháttar aukning frá afla-
heimildum fyrra árs. Heildarafli
djúpkarfa verður tólf þúsund
tonn og 40 þúsund tonn í gull-
karfa. Aflamark í grálúðu verður
óbreytt, eða þrettán þúsund tonn.
Heimildir í steinbít eru lækk-
aðar talsvert eða úr tólf þúsund
tonnum í 10.500 tonn. Samhliða
útgáfu aflamarks hefur ráðherra
ákveðið að setja á fót starfshóp
sem athugi notkun á flottrolli og
áhrif þess á lífríki sjávar.
Hafrannsóknastofnunni verður
falið að auka rannsóknir á mis-
munandi áhrifum veiðafæra
með tilliti til lífríkis og orku-
notkunar. Ennfremur verður því
beint til stofunarinnar að kanna
hrygningar stöðvar steinbíts og
friðun þeirra. - shá
Ákvörðun heildaraflamarks fyrir fiskveiðiárið 2011 til 2012:
Fylgir ráðgjöf í þorskúthlutun
ÞORSKUR Á ÞURRU LANDI Heildarafla-
mark næsta fiskveiðiárs liggur fyrir.
NÁTTÚRA Almannavörnum var
á mánudag gert viðvart um
hræringar í kringum eldfjallið
Heklu sem jarðvísindamenn telja
óvenjulegar. Þetta kom fram í
fréttum RÚV í gærkvöldi. Þó
hafði ekki þótt ástæða til að grípa
til aðgerða vegna ástandsins.
Hreyfingarnar hafa komið fram
á fimm staðsetningar mælum sem
settir hafa verið í kringum Heklu
undanfarin misseri.
Rúm ellefu ár eru síðan Hekla
gaus síðast. Gos þar gera alla
jafna lítil boð á undan sér. - sh
Óvenjulegar jarðhræringar:
Almannavarnir
bíða eftir Heklu
SPURNING DAGSINS
Tveir leikir í Laser Tag (2x15 mín.)
Laser Tag er fyrir fólk á öllum
aldri. Salurinn að Salavegi 2
í Kópavogi er einn stærsti
Laser Tag salur í Evrópu.
www.lasertag.is
50 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
890 kr. GILDIR 24 TÍMA
1.900 kr
Verð
53%
Afsláttur
1.010 kr.
Afsláttur í kr.
PI
PA
R\
A
TB
W
A
R\
PI
PA
R
TB
W
A
•
SÍ
A
SÍ
A
•
11
15
31
11
15
31
FÓLK Þrettán ára fiðlunema, Ágústu Dómhildi Karls-
dóttur, hlotnaðist í gær óvæntur heiður þegar
einn allra virtasti fiðluleikari veraldar bauð henni
ókeypis kennslustund.
Rússinn Maxim Vengerov leikur á tónleikum í
Hörpu á föstudag. Hann hefur um árabil verið einn
eftirsóttasti og hæst launaði einleikari veraldar og á
aðdáendur um heim allan.
Tveir þeirra eru Ágústa og móðir hennar, Arn-
hildur Valgarðsdóttir, organisti í Lágafellskirkju.
„Dóttir mín er búin að vera að læra á fiðlu í tvö ár
og gengur alveg rosalega vel. Hún er dálítið „wun-
derkind“,“ útskýrir Arnhildur. „Svo fórum við að
horfa á Maxim á Youtube og fórum að halda rosa-
lega mikið upp á hann. Þegar ég sá að hann var að
koma hringdi ég í Steinunni Birnu [Ragnarsdóttur,
tónlistarstjóra Hörpu] og sagði: Jæja, nú er okkar
maður að koma og við þurfum bara að hitta hann,“
segir hún.
Það gekk eftir og mæðgurnar hittu snillinginn í
gær. „Hann var alveg til í það. Þetta er svo mikill
indælis- og öndvegismaður,“ segir Arnhildur.
Í lok fundarins spurði Arnhildur hann í hálf-
kæringi hvort hann væri ekki til í að taka Ágústu í
eina kennslustund og það stóð ekki á svari: tíminn
verður á morgun klukkan fimm og Arnhildur á vart
orð til að lýsa hrifningu sinni á Vengerov. „Hann er
bara svo dásamlegur að gera þetta,“ segir hún.
Að skilnaði gáfu mæðgurnar honum það sem
Arnhildur kallar „krúttulegan Íslandspakka“, sem
í var geisladiskur sem Arnhildur gerði með Hjör-
leifi Valssyni fiðluleikara og söngkonunni Ingu
Backman, Heimsljós eftir Halldór Laxness í enskri
þýðingu og mynd sem Ágústa málaði fyrir hann. - sh
Þrettán ára undrabarn málaði mynd handa frægasta fiðluleikara heims:
Fær kennslustund hjá snillingi
ÆTLAR AÐ KENNA ÁGÚSTU Ágústa, sem hefur áður lært á
þverflautu, klarinett og píanó, hóf fiðlunám fyrir tveimur árum.
Henni hefur gengið svo vel að Arnhildur grípur hana oft með
að spila í messum og á tónleikum.