Fréttablaðið - 06.07.2011, Blaðsíða 4
6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR4
Það er alveg ótrúlegt
að horfa upp á þetta,
þetta er nánast alveg dautt
hérna.
MAGNÚS JÓNSSON
ÍBÚI Í FLATEY
DÝRALÍF Fyrstu vísbendingar úr
rannsóknarleiðangri á Breiðafirði
benda ekki til þess að sílastofninn
sé að ná sér á strik. Þetta segir
Valur Bogason líffræðingur og einn
leiðangursmanna. Hríðminnkandi
sílastofn kemur illa niður á varpi
sjófugla við sunnan- og vestanvert
landið, til dæmis er fuglalíf í Flatey
með daufasta móti að sögn íbúa þar.
Öðru máli gegnir um ástandið
við norðanvert landið, segir Erpur
Snær Hansen líffræðingur enda er
nóg um loðnu á þeim svæðum.
Magnús Jónsson, íbúi í Flatey,
segir hríðversnandi afkomu sjó-
fugla ekki fara framhjá heima-
mönnum.
„Það er alveg ótrúlegt að horfa
upp á þetta, þetta er nánast alveg
dautt hérna,“ segir hann. „Maður er
farinn að reka upp stór augu þegar
maður sér lunda hérna,“ bætir hann
við.
Þessi sílaskortur hefur ekki ein-
göngu áhrif á fjölda fuglanna í Flat-
ey heldur einnig hegðun þeirra.
„Það er svo lítið æti fyrir mávinn að
hafa í sjónum að hann er farinn að
haga sér eins og við Tjörnina fyrir
sunnan. Hann er farinn að sækja í
matarbita uppi á landi, hann er til
dæmis farinn að leita í hænsna-
fóðrið há mér,“ segir Magnús.
Hann segir enn fremur að kríu-
varpið virðist hafa farið forgörð-
um að mestu þó eitthvað sé krían
að taka við sér eftir að það hitn-
aði í veðri í síðustu viku. Þó sé það
spurning hvort ungarnir verði orðn-
ir nógu stálpaðir þegar kemur að
því að hefja sig til flugs yfir hafið.
Erpur Snær segir að lægð í lunda-
varpi haldist oft í hendur við hlýn-
andi sjó. Til dæmis hafi verulega
dregið úr lundafjöldanum í kring-
um 1930 en þá var sjávarhiti í
hámarki. Valur segir að skýringin
á fækkun síla kunni að vera sam-
bland af umhverfisáhrifum, eins
og hækkandi sjávarhita, og arðráni.
jse@frettabladid.is
GENGIÐ 05.07.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,3497
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,19 114,73
183,92 184,82
165,26 166,18
22,153 22,283
21,313 21,439
18,207 18,313
1,4068 1,4150
182,64 183,72
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
LÖGREGLUMÁL Móðir kornabarns
sem fannst látið í gámi í Reykjavík
á laugardag er undir stöðugu eftir-
liti lögreglu þar sem hún liggur á
Landspítalanum. Hún hefur enda
verið úrskurðuð í tveggja vikna
gæsluvarðhald og til að sæta geð-
rannsókn.
Gert er ráð fyrir að unga konan
verði útskrifuð af spítalanum
í dag eða í allra síðasta lagi á
morgun. Hún mun þá verða færð
til skýrslutöku hjá lögreglunni á
höfuðborgar svæðinu.
Það var á laugardag sem komið
var með konuna á bráðamóttöku
Landspítala. Læknar töldu að hún
hefði fætt barn á síðasta sólar-
hring. Lögreglan var kvödd til
og fundu lögreglumenn lík full-
burða sveinbarns í gámi við Hótel
Frón á Laugavegi. Þar hafði konan
starfað í um fjóra mánuði sem her-
bergisþerna og vissi samstarfsfólk
hennar þar ekkert um að hún bæri
barn undir belti.
Konan flutti hingað til lands í
október síðastliðnum. Hún bjó hjá
samlanda sínum og föður hans um
skeið. Í þá hringdi hún þegar hún
hafði alið barnið á herbegi á hótel-
inu. Hún vildi fara heim en þeir
ákváðu að fara með hana á bráða-
móttökuna. - jss
Unga litháíska móðirin að líkindum útskrifuð af spítala í dag:
Undir stöðugu eftirliti lögreglu
LANDSPÍTALINN Konan útskrifast líklega
í dag fremur en á morgun.
LÖGREGLUMÁL Séra Baldur Krist-
jánsson, sóknarprestur í Ölfusi,
greindi frá kynferðisbrotum gegn
konu sem lést nýverið. Baldur
sagði frá brot-
unum í líkræðu
konunnar.
„Hann kom
þegar móðirin
vann á nætur-
vöktum. Það
mál upplýstist
aldrei og hún
náði sér aldrei.
Sjúklingur var
hún upp frá því.
Geðtruflun greinileg upp frá því
segir mér bróðir hennar,“ sagði
Baldur í líkræðunni.
Frá þessu greinir hann á vef-
svæði sínu á Eyjunni. Hann til-
kynnti málið til barnaverndar-
yfirvalda. „Svona mál eiga ekki og
mega ekki fyrnast,“ segir Baldur
á vefsíðu sinni, en ofbeldið átti sér
stað þegar fórnarlambið var ung
stúlka. Hún var fædd árið 1932. - sv
Kynferðisbrot upplýst í líkræðu:
Svona mál eiga
ekki að fyrnast
SÉRA BALDUR
KRISTJÁNSSON
NJÓTTU SUMARSINS
TILBOÐSDAGAR
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is
ÆGIR TJALDVAGN
1.279.000.
*Afsláttur -200.000.
Verð kr. 1.079.000.
með fortjaldi
PALOMINO COLT
2.559.000.
*Afsláttur -369.000.
Verð kr. 2.190.000.
með fortjaldi
KÍKTU VIÐ OG GERÐU GÓÐ KAUP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
33°
27°
27°
23°
25°
26°
23°
23°
26°
19°
29°
31°
33°
25°
21°
24°
23°
Á MORGUN
3-8 m/s.
FÖSTUDAGUR
Hæglætis veður,
skúrir síðdegis.
11
15
13
15
15
15
13
13
14
10
16
3
2
3
4
3
2
6
4
8
2
4
14
12
15
16
14
10
12
15
11
8
SUMARVEÐUR Það
er von á sumar-
blíðu á landinu
næstu daga.
Nokkuð sólríkt og
áfram milt í veðri.
Þurrt að mestu en
hætt við síðdegis-
skúrum, einkum
vestan til á landinu.
Kólnar lítillega á
föstudag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNSÝSLA Páll Hreinsson hæsta-
réttardómari hefur verið skipaður
dómari við EFTA-dómstólinn að
tilnefningu Össurar Skarphéðins-
sonar utanríkisráðherra. Hann
tekur við 15. september af Þor-
geiri Örlygssyni, sem tekur sæti í
Hæstarétti.
Aðrir sem sóttu um voru Aðal-
heiður Jóhannsdóttir prófessor,
Davíð Þór Björgvinsson, dómari
við Mannréttindadómstól Evrópu,
Ólafur Börkur Þorvaldsson hæsta-
réttardómari, Róbert Spanó pró-
fessor og Skúli Magnússon, dóm-
ritari EFTA-dómstólsins.
EFTA-dómstóllinn leysir úr
ágreiningsmálum um framkvæmd
EES-samningsins. Stjórnvöld í
EFTA-ríkjunum skipa sameigin-
lega í stöðuna. - sh
Hverfur úr Hæstarétti:
Páll til EFTA-
dómstólsins
Sílastofninn virðist
ekki ná sér á strik
Fyrstu vísbendingar benda ekki til þess að sílastofninn sé að ná sér á strik.
Mávurinn í Flatey farinn að hegða sér eins og í borginni vegna ætisskorts í sjó.
KRÍA Á SVEIMI YFIR FLATEY Þótt krían
hafi oft verið til ama eru menn farnir að
sakna þess að sjá ekki meira af henni í
Flatey. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FUGLALÍF Í FLATEY Magnús Jónsson segist reka upp stór augu þegar hann sér lunda.
SVÍÞJÓÐ 147 manns létu lífið í
umferðarslysum í Svíþjóð fyrstu
sex mánuði ársins. Það eru tæp-
lega þrjátíu prósentum fleiri en á
sama tímabili í fyrra.
23 gangandi vegfarendur, 83
ökumenn eða farþegar í bílum og
21 á mótorhjólum létust á tíma-
bilinu. Umferð hefur aukist um
rúm tvö prósent á þjóðvegum
landsins á þessu ári. Þá á eftir að
draga frá sjálfsmorð, en þau voru
þrjátíu talsins í umferðinni í fyrra.
Að öðru leyti hafa yfirvöld ekki
skýringar á muninum. - þeb
147 látnir í Svíþjóð á árinu:
Mun fleiri deyja
í umferðinni
Nauðgari ófundinn
Lögreglan á Akureyri vinnur að rann-
sókn á nauðgun sem átti sér stað
á Landsmóti hestamanna á Vind-
heimamelum í Skagafirði um síðustu
helgi. Gerandinn er enn ófundinn.
Ung kona tilkynnti um nauðgunina
undir morgun á sunnudag.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir kannabisræktun og
fleiri brot.
Hann var tekinn með 46 kanna-
bisplöntur sem hann ræktaði í
leiguíbúð sinni í Reykjanesbæ.
Þá var hann dæmdur fyrir fíkni-
efnaakstur.
Maðurinn á alllangan sakaferil
að baki, þar á meðal dóma fyrir
fíkniefnalagabrot og umferðar-
lagabrot. Héraðsdómur Reykja-
ness dæmdi manninn, auk skil-
orðsbundnu refsingarinnar, til
sviptingar á ökurétti í tvö ár.
- jss
Kannabisræktandi fyrir dóm:
Skilorð fyrir
kannabisrækt
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur
maður hefur verið dæmdur í
þrjátíu daga skilorðsbundið fang-
elsi fyrir að slá og sparka í mann
og bíta dyravörð á skemmtistaðn-
um Manhattan þegar sá síðar-
nefndi reyndi að stöðva hann.
Maðurinn hefur áður hlotið dóm.
Hann játaði sök fyrir dómi. Mað-
urinn var auk fangavistar dæmd-
ur til að greiða fórnarlambinu
200 þúsund krónur. -jss
Greiði 200 þúsund í bætur:
Réðst á mann
og beit dyravörð