Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.07.2011, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 06.07.2011, Qupperneq 10
6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR10 ALLIR SAMAN NÚ TIL GÓÐS HLAUPUM ... og ef við hlaupum fjórir saman ... Það er lítið mál að hlaupa tíu kílómetra ... ... þá náum við heilu maraþoni ... 275 250 225 200 15 12 9 6 3 Tö lu r í þ ús un du m Tö lu r í þ ús un du m 19 99 20 01 20 03 20 05 20 07 20 09 20 11 19 99 20 01 20 03 20 05 20 07 20 09 20 11 Breytingar á fjölda skráðra í þjóðkirkju og utan trúfélaga Þjóðkirkjan Utan trúfélaga TRÚMÁL Um 6.740 manns hafa sagt sig úr þjóðkirkjunni frá því í des- ember 2009. Þetta kemur fram í nýjum tölum um trúfélaga- skráningu sem Þjóðskrá hefur tekið saman. Langmest var um úr sagnir í ágúst og september í fyrra, þegar umræðan um kynferðis- brot innan kirkjunnar var sem mest. Þá sögðu ríflega 3.500 skil- ið við þjóðkirkjuna, meirihlutinn í ágúst. Næstmesti kippurinn var í nýliðnum júnímánuði, þegar 890 manns breyttu skráningunni. Þá var skýrsla Rannsóknarnefndar kirkjuþings um kynferðisbrota- mál þar innanborðs gerð opinber. Á þessu tímabili, frá því í desember 2009, hafa 259 verið skráðir í þjóðkirkjuna. Nettó- fækkun er því um 6.500 manns. Langflestir þeirra sem sögðu sig úr þjóðkirkjunni á þessu tíma- bili standa nú utan trúfélaga, eða um 4.800 manns. Næst flestir gengu til liðs við einhverja af fríkirkjunum þremur. Fjölgað hefur í þeim söfnuðum um rúm- lega 1.200 manns á þessu eina og hálfa ári. Afgangurinn, ríflega 700 manns, skráðu sig í önnur trúfélög. Töluvert fleiri karlar hafa sagt sig úr þjóðkirkjunni en konur, eða 3.722 á móti 3.019. Þá er algeng- ara að fólk með lögheimili á höfuðborgar svæðinu segi skilið við þjóðkirkjuna en fólk af lands- byggðinni. Breytingarnar ná til allra aldurs hópa en þó má merkja rík- ari tilhneigingu meðal yngra fólks en eldra til að breyta trú- félagaskráningu sinni. - sh Langflestir þeirra sem hafa sagt sig úr þjóðkirkjunni á síðasta einu og hálfa ári standa nú utan trúfélaga: Fækkað í þjóðkirkjunni um 6.500 manns SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir- litið hefur sektað bókaútgáfuna Forlagið um 25 milljónir króna vegna samkeppnisbrota. Fyrir- tækið er talið hafa brotið skilyrði sem sett voru fyrir samruna JPV-útgáfu og Vegamóta í Forlag- ið árið 2008. Forlagið kveðst harma ákvörð- un Samkeppniseftirlitsins. Þá er Forlagið ósammála úrskurðinum og mun skjóta honum til áfrýjun- arnefndar samkeppnismála og síðan til dómstóla ef þörf krefur, segir í tilkynningunni. - mþl Brot á reglum um samruna: Forlagið sektað um 25 milljónir FÆDD Í DÝRAGARÐI Þessi snæugla var aðeins 46 grömm þegar hún fæddist fyrir skömmu í Hannover í Þýskalandi. Innan sextíu daga verða fjaðrirnar að mestu orðnar hvítar. MYND AFP/NORDIC PHOTO HEILBRIGÐISMÁL Hreppsnefnd Vopna- fjarðar hefur mótmælt því við við velferðarráðuneytið og Heilbrigðis- stofnun Austurlands að Vopna- fjörður verði án grunnlæknis- þjónustu eins og var um þriggja daga skeið í síðasta mánuði. „Það var búið að gera okkur grein fyrir því að þetta gæti endur- tekið sig í haust og það viljum við alls ekki sjá,“ segir Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri. „Það getur nefnilega verið erfitt, jafnvel fyrir fílhraust fólk, að segja: nei ég ætla ekki að vera veikur í dag,“ bætir hann við. Hreppsnefndin bókaði mótmæli á fundi sínum 23. júní og þar segir: „Vopnafjörður er í 135 kílómetra fjarlægð frá Egilsstöðum, þar sem næst er unnt að ná í lækni, ef vá ber að dyrum. Jafnframt er um háa fjallvegi í um 600 metra hæð yfir sjávarmáli að ræða svo all- sendis er óvíst hversu öruggt er að komast milli þessara staða...“ „Þetta er eins og rúlletta að spara með þessum hætti, það gæti nú aldeilis orðið dýrt ef ein- hver veikist og kemst ekki undir læknis hendur í tíma,“ segir Þor- steinn. Það var dagana 16. til 19. júní sem enginn læknir var á vakt á Vopnafirði. - jse Læknislaust var á Vopnafirði um þriggja daga skeið vegna sparnaðaraðgerða: Mótmæla læknisleysi harðlega FRÁ VOPNAFIRÐI Vopnfirðingar taka það ekki í mál að verða læknislausir aftur. ORKUMÁL Landsvirkjun vinnur nú í sumar að fjölmörgum við- haldsverkefnum í Laxárstöðvum. Þess vegna verður ekki mögulegt að taka á móti gestum í Laxár- stöðvar í sumar eins og fyrri ár. Á framkvæmdatíma má gera ráð fyrir lítilsháttar töfum á umferð í næsta nágrenni við vinnusvæðið. Verklok eru áætluð í september. - shá Viðhald hjá Landsvirkjun: Framkvæmdir í Laxárstöðvum LAXÁRSTÖÐ II Viðhald veldur því að ekki verður unnt að taka á móti ferða- mönnum. MYND/ÞORKELL ÞORKELSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.