Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.07.2011, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 06.07.2011, Qupperneq 15
Sögurnar... tölurnar... fólkið... Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 66 Markaðsátak í vændum 4-5 H E L S T Í Ú T L Ö N D U M Miðvikudagur 6. júlí 2011 – 11. tölublað – 7. árgangur Síminn hefur sótt um tilrauna- leyfi til reksturs á 4G-háhraða- gagnaflutningsneti til Póst- og fjarskiptastofnunar. Áformað er að hefja prófanir á netinu í febrúar á næsta ári í samstarfi við sænska tæknifyrirtækið Ericsson. Í lok maí sótti Nova fyrst fjar- skiptafyrirtækja hér um leyfi til prófana á 4G-netinu í samstarfi við Huawei Technologies. Síminn sækir um leyfið fyrir tvö tíðnibönd, annars vegar 800 mega- hertz (Mhz) og hins vegar 2.600 Mhz. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, segir ástæðuna fyrir því að sótt er um tvö tíðni- bönd þá að hann telji að 800 MHz henti jafnvel betur íslenskum að- stæðum og að samband náist yfir stærra svæði. - jab Síminn skoðar 4G SÆVAR FREYR Forstjóri Símans segir mikilvægt að kanna hvaða tíðnisvið fyrir gagnaflutningsnet henti best hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR FRAMLEIÐA ÞARF MEIRI MAT Sameinuðu þjóðirnar segja nauð- synlegt að auka mjög matvæla- framleiðslu í heiminum, jafnvel þurfi hún að tvöfaldast á næstu þremur áratugum vegna mann- fjölgunar upp í níu milljónir. Mat- vælaframleiðslan þarf auk þess að verða „grænni“ eða umhverfis- vænni. LAGARDE RÁÐIN Christine Lagarde, nýr yfir maður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, fær 53 milljónir króna í árslaun auk nærri tíu milljóna í dagpeninga, eða samtals ríflega fimm millj- ónir á mánuði – eftir að skattar hafa verið dregnir frá. Í viðbót við þetta getur hún fengið endur- greiddan útlagðan kostnað ef hann tengist beint starfinu. Sjóð- urinn birti í gær ráðningarsamn- ing hennar, sem er til fimm ára. FLUGFÉLÖG Í MÁL Mál bandarískra flugfélaga gegn Evrópusambandinu hefur verið tekið til meðferðar hjá Evrópu- dómstólnum. Flugfélögin segja kröfur ESB um hámarks útblástur gróðurhúsalofttegunda brjóta gegn alþjóðalögum. Vistvæna prentsmiðjan! Þjónusta Veitingahús VerslunÍþrótta- og félagasamtök Ríki- og sveitarfélögFerðaþjónusta Miklir möguleikar í vetrarferðamennsku. Greinaröð um nýsköpun Að selja hugmyndir Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Ekkert fyrirtæki hefur verið skráð á hlutabréfa- markað hér í rúm þrjú ár, eða frá skráningu Skipta, móðurfélagsins Símans á vordögum 2008. Staðan er hvergi jafn slæm á hinum Norðurlöndunum nema í Finnlandi. Þar hefur ekkert nýtt fyrirtæki litið dagsins ljós á aðallista hlutabréfamarkaðs í þrjú ár. Væntingar voru uppi um að fyrsta fyrir- tækið liti dagsins ljós í Kauphöllinni um mánaðamótin. Af því varð ekki. Búist er við að Arion Banki og Landsbankinn setji Haga og fjárfestingarfélagið Horn á mark- að í haust. Þá stóð Kauphöllin nýverið fyrir fræðslufundi, um þýðingu þess að vera skráð félag, fyrir fimmtíu forsvarsmenn rúmlega tuttugu fyrirtækja. Búist er við að það skili sér í hol- skeflu skráninga í haust. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir hlutina geta gengið hraðar fyrir sig. Ástæðan liggi að hluta til hjá bönkunum sem haldi í fyrirtæki sem þeir eigi að hluta eða öllu leyti lengur en þurfa þykir. „Við tökum heilshugar undir það sem hefur komið fram hjá Samkeppniseftirlitinu um að það eru kerfis- lægir hvatar hjá bönkunum sem toga í ranga átt og tefja fyrir endurskipulagningu fyrirtækja og endur- reisn atvinnulífsins. Við tökum einnig undir með- mæli OECD sem hefur mælt með því að eiginfjár- krafa bankanna miðaðist við upprunalegt virði lána frekar en niðurfært virði þeirra. Það myndi skapa hvata til að klára endurskipulagninguna og koma þessum eignum úr bókum bankanna,“ segir hann og bendir á að á meðan gjaldeyrishöft eru í gildi sé fátt sem ýti við bönkunum. Viðmælendur Fréttablaðsins taka undir gagn- rýni Páls að hluta. Nokkrir þeirra sem blaðið hefur rætt við benda jafnframt á að skráning á hlutabréfamarkað henti stærri fyrirtækjum betur en smærri. Allt umstang og umsýsla við skráningu sé kostnaðarsamt auk þess sem kostnaður hér sé hár miðað við aðrar kauphallir á Norðurlöndunum. „Það hentar ekki öllum fyrirtækjum að vera skráð í Kauphöll,“ segir frumkvöðull- inn Frosti Sigurjónsson. Hann hefur ásamt Erni Þórðarsyni lagt grunninn að vettvangi fyrir eigendur og hluthafa óskráðra sprotafyrir- tækja til að kynna fyrirtæki sín sem fjárfestingar- kost. Viðræður hafa átt sér stað við banka, fjármála- fyrirtæki og miðlara sem hafa tekið vel í hugmynd- ina. Vettvangurinn keppir ekki við Kauphöllina held- ur er hann hugsaður til að tengja saman fyrirtæki, miðlara og fjárfesta, að sögn Frosta. „Það er til fullt af fyrirtækjum sem eru góðir fjárfestingarkostir ef einhver vissi af þeim,” segir hann og bendir á að vettvangurinn geti nýst þeim fyrirtækjum vel sem síðar meir vilji fara á hlutabréfamarkað. Mörg fyrirtæki líkleg á markaðinn í haust Væntingar um skráningar fyrirtækja á hlutabréfamarkað hafa ekki gengið eftir. Endurskipulagning er sögð ganga hægt. Nýr vettvangur fyrir sprotafyrirtæki í leit að fjármagni er í mótun. PÁLL HARÐARSON Klausturbleikja Bíða eftir lífrænni vottun á bleikju.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.