Fréttablaðið - 06.07.2011, Page 30

Fréttablaðið - 06.07.2011, Page 30
6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR18 folk@frettabladid.is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Miele ryksugur Allt sem þú þarft Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing DAGA HJÓNABANDI þeirra Ryans Reynolds og Scarlett Johansson lauk á föstudaginn, en þá gekk skilnaðurinn endanlega í gegn. Poppdrottningin Madonna er byrjuð að taka upp nýja plötu. Þrjú ár eru liðin frá útgáfu síðustu plötu henn- ar, sem sló í gegn um allan heim. Umboðsmaður Madonnu, Guy Oseary, tilkynnti á Twitter-síðu sinni á mánudag að söngkon- an væri byrjuð að taka upp nýja plötu. „Þetta er komið á hreint. Fyrsti dagur Madonnu í hljóðverinu og vinna að nýrri plötu er hafin. Mjög spennandi,“ skrifaði Oseary. Platan verður sú tólfta í röðinni frá Madonnu, sem gaf síðast út plötuna Hard Candy árið 2008. Ekkert bendir til þess að vin- sældir Madonnu séu farnar að dala, enda fór síðasta plata á topp- inn í 19 löndum, hvorki meira né minna og hefur selst í milljónum eintaka um allan heim. Madonna, sem verður 53 ára í ágúst, virðist ekki ætla að setjast í helgan stein í bráð. Í kjölfarið á síðustu plötu fór hún í gríðarlega umfangsmikið tónleikaferðalag um heiminn og rakaði inn millj- örðum. Búast má við að hún fylgi næstu plötu eftir á svipaðan hátt. Óvíst er hver mun vinna nýju plöt- una með henni, en á síðustu plötu komu Justin Timberlake og upp- tökustjórateymið The Neptunes við sögu. Madonna í hljóðver á ný SNÝR AFTUR Madonna er byrjuð á nýrri plötu sem fylgir eftir hinni gríðarlega vinsælu Hard Candy. Hér er hún ásamt Lourdes, dóttur sinni. 1007

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.