Fréttablaðið - 22.07.2011, Page 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
Föstudagur
skoðun 14
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
22. júlí 2011
169. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
É g veit ekki hvað þetta er með mig og dýrin mín, þau eru öll svo ein tök hegðun og lund varðar. Þegar húnflutti til Ítalí þ MYND/ÚR EINKASAFNI
Raddlistakonan og tónskáldið Gunnlaug Þorvaldsdóttir laðar að sér fjórfætlinga í Róm.
Laðar að sér ferfætlinga í Róm
Friðarhlaupinu hringinn í kringum landið lýkur í
dag og verður móttaka í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan
12. Hlaupið hefur staðið yfir frá 5. júlí eða í 17 daga.
Maraþonhlauparinn Tegla Loroupe frá Keníu mun
hlaupa síðasta spölinn með Steingrími J. Sigfússyni
fjármálaráðherra.
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 22. júlí 2011
PÉTUR
MARTEINSSON
Framtíðin er Kexið
● Druslugangan
● Á rúmstokknum
● Yfirheyrslan
Reykholtshátíð 15 ára
Auður Hafsteinsdóttir er
nýr listrænn stjórnandi
Reykholtshátíðar.
tímamót 20
Stríðsáraball að breskum sið
Hópur áhugafólks um Lindy-Hop
sýnir listir sínar á Bar 46 á morgun
og kennir réttu sporin.
allt 2
Tjú tjú
Cocoa Puffs!
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÞAÐ ERU
ENGIN HÖFT Í
VIÐSKIPTUM
Á VÍSI
SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM Í dag
verður hæg suðlæg eða breytileg
átt. Víða skýjað með köflum en
bjartara eystra. Hiti 12-18 stig.
VEÐUR 4
15
13
14
12
15
GLAÐUR Á GULUM VAGNI Hallgrímur P. Gunnlaugsson, varðstjóri hjá Strætó bs., var glaður í
bragði þegar hann tók af stað frá stoppistöð í Garðabænum í gær. Fjöldi fólks hefur ferðast með Strætó í sumar
þrátt fyrir skerta þjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
DÝRALÍF Raddlistakonan og tón-
skáldið Gunnlaug Þorvaldsdótt-
ir, sem er búsett í Róm, hefur
laðað að sér
bæði flækings-
hunda og -ketti.
Kötturinn Mau
hefur hænst
svo mikið að
henni að hann
reynir sem best
hann getur að
herma eftir
henni í athöfn-
um daglegs
lífs. Hann drekkur til að mynda
úr glasi og gerir þarfir sínar í
klósett.
Gunnlaug, eða Gulla eins og
hún er kölluð, er þekkt fyrir að
geta framkallað alls kyns fugla-
hljóð og ræktaði Abyssiníu-
og Sómalíuketti á Íslandi með
góðum árangri áður en hún hélt
til Rómar.
- jma / sjá allt
Óvenjulegur köttur í Róm:
Köttur sem
hagar sér eins
og maður
GUNNLAUG
ÞORVALDSDÓTTIR
BANDARÍKIN, AP Bandarísk stjórn-
völd ætla framvegis að reiða sig á
einkafyrirtæki, þegar koma þarf
geimförum til alþjóðlegu geim-
stöðvarinnar, nú þegar bandarísku
geimferjurnar hafa verið teknar
úr notkun.
Í staðinn fyrir að ríkið standi
straum af þessu mun ríkið borga
einkafyrirtækjum fargjöld fyrir
hvern geimfara, sem sendur
verður á loft með væntanlegum
farartækjum.
Einnig verði einkafyrirtækjum
greitt fyrir að senda birgðir með
ómönnuðum geimförum.
Nokkur fyrirtæki eru þegar
byrjuð að undirbúa sig og stefna á
að vera tilbúin með nothæf farar-
tæki innan þriggja ára. Aðrir telja
raunhæfara að reikna með fimm
til tíu árum. Þangað til munu
Rússar sjá um að ferja bandaríska
geimfara til stöðvarinnar úti í
geimnum, og fá greitt frá banda-
rískum stjórnvöldum fyrir hvern
farþega.
Það var tilfinningaþrungin
stund í stjórnstöð bandarísku
geimferðastofnunarinnar NASA
á Canaveral-höfða þegar síðasta
geimferjan, Atlantis, lenti í gær.
Haldnar voru hástemmdar ræður
og Mike Leinbach, sem hefur haft
umsjón með geimskotum, sagði
fólk engan veginn geta haldið
aftur af tárunum.
Geimferðastofnunin vonast til
þess að fé, sem sparast við að fá
einkafyrirtæki til þess að sjá um
geimflutningana, geti nýst til þess
að þróa þá tækni sem þarf til að
senda mönnuð geimför enn lengra
út í geiminn en áður hefur þekkst,
og þá til að byrja með til reiki-
stjörnunnar Mars. - gb
Bandarísk stjórnvöld hætt að þróa og reka geimferjur:
Geimferðir einkavæddar
ATLANTIS LENDIR Síðasta geimferjan
komin til jarðar úr síðustu geimferðinni.
NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAGSMÁL „Útlendingastofn-
un er búin að fá öll þau gögn sem
hún óskaði eftir,“ segir Þórólfur
Gunnarsson sem hefur barist
ötullega fyrir því að Priyanka
Thapa, 23 ára Nepali, fái dvalar-
leyfi á Íslandi.
Mál Priyönku hefur mikið verið í
umræðunni frá því hún sagði sögu
sína í Fréttablaðinu um síðustu
jól. Priyanka kom til Íslands til að
vinna sem barnfóstra hjá Þórólfi
og konu hans. Hún hefur auk þess
lagt stund á nám hjá Keili með frá-
bærum árangri. Vistráðning henn-
ar er hins vegar runnin út og ef
hún fær ekki dvalarleyfi á Íslandi
þarf hún að snúa aftur heim.
Einstæð móðir hennar á orðið
erfitt með að framfleyta sér og fötl-
uðum syni sínum. Hún tók því til
þess ráðs að gefa Priyönku fertug-
um manni sem hefur lofað að sjá
fyrir fjölskyldunni.
Útlendingastofnun synjaði
Priyönku upphaflega um dvalar-
leyfi en umsókn hennar var síðan
tekin til endurskoðunar eftir að
Ögmundur Jónasson innanríkisráð-
herra átti fund með forsvarsmönn-
um stofnunarinnar. Priyanka þurfti
þá að afla frekari gagna.
„Það var mikið ævintýri að
útvega þessi gögn. Við þurftum
að sanna sögu hennar og koma
með vottorð sem staðfesti and-
lát föður hennar og bróður. Faðir
hennar dó á Indlandi svo að við
þurftum að útvega vottorð þaðan,“
segir Þórólfur. Sömu sögu var að
segja frá Nepal. „Við þurftum að
fá mann til að fara fyrir okkur í
þriggja daga leiðangur í lítið þorp
þar sem fjölskyldan er skráð, það
er fæðingarstaður þeirra. Hann
þurfti að taka lest, rútu og labba
svo restina,“ segir Þórólfur.
„Við skiluðum síðustu pappír-
unum í þarsíðustu viku. Þá á
Útlendingastofnun að vera komin
með öll þau gögn sem hún óskaði
eftir.“
En hvað tekur þá við? „Nú tekur
bara það sama við – endalaus bið.
Við vitum í raun ekki neitt,“ segir
Þórólfur. - kh
Bíður enn eftir dvalarleyfi
Priyanka Thapa frá Nepal sem var upphaflega synjað um dvalarleyfi á Íslandi hefur nú skilað inn öllum
gögnum sem Útlendingastofnun bað um. Hún bíður nú milli vonar og ótta eftir svari frá stofnuninni.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur sett á fót starfshóp sem fjalla
á um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins. Ögmundur
boðaði breytingar á málefnum útlendinga í kjölfar umfjöllunar Fréttablaðs-
ins um málefni Priyönku Thapa í byrjun apríl.
Verkefni starfshópsins verður að móta stefnu fyrir stjórnvöld í málefnum
útlendinga utan EES sem leita hælis eða óska eftir dvöl á Íslandi.
„Þessi réttindi [dvalarleyfi] hafa verið mjög vinnumarkaðstengd til þessa.
Mér finnst mikilvægt að aðrir þættir komi ekki síður við sögu, það er sam-
félagslegar áherslur og félagslegt réttlæti,“ sagði Ögmundur við Fréttablaðið
í gær.
Aukin áhersla á félagslegt réttlæti
Rannsóknarnefndir
Löggafinn á ekki að setja á
laggirnar rannsóknarnefnd-
ir til að yfirfara endanlega
úrlausn Hæstaréttar, skrifar
Róbert R. Spanó.
umræðan 15
KR-ingar komust áfram
KR stóðst pressu Zilina í
lokin og sló Slóvakana út.
sport 30