Fréttablaðið - 22.07.2011, Side 26
6 föstudagur 22. júlí
Óþægileg umræðuefni
SP: Fyrir langa löngu fór ég í hefðbundna skoðun til kvensjúkdómalæknis og
mér var sagt að ég væri með aftursveigt leg en læknirinn tók fram að það væri
ekki hættulegt. Ég heyrði kunningjavinkonu segja fyrir stuttu að þetta gæti aftrað
manni frá því að eignast börn. Veistu hvort það er satt?
Svar: Nú er ég ekki læknisfræðilega menntuð en heimildirnar sem ég aflaði mér
um aftursveigt leg bentu til þess að það ætti ekki að hafa nein áhrif á frjósemi
konunnar. Það var talið áður fyrr að lega legsins gæti haft áhrif á frjósemina en
læknavísindin í dag telja ekki lengur að svo sé. Hins vegar upplifa sumar konur
með aftursveigt leg sársauka eða óþægindi við samfarir, sérstaklega í ákveðn-
um stellingum. Ef sársauki við samfarir hamlar samförum þá mætti líta á það sem
ákveðna hindrun í barneignum því samfarir eru jú ansi mikilvægar fyrir getnað.
Það hafa verið framkvæmdar aðgerðir til að „laga“ aftursveigt leg
sérstaklega ef önnur vandkvæði fylgja en fyrir getnað og með-
göngu þá ætti það ekki að þurfa. Þetta er því ekki eitthvað
sem þú ættir að þurfa hafa miklar áhyggjur af.
SP: Er mikið um kynsjúkdóma hér á landi og af hverju er um-
ræðan um þá svona mikið „tabú“? Hverjir eru algengustu
kynsjúkdómarnir hérlendis?
Svar: Samkvæmt heimasíðu Landlæknisembættis-
ins eru til 30 tegundir af kynsjúkdómum. Á Íslandi eru
kynfæravörtur, kynfæraáblástur og klamydía algeng-
ust og smithlutfall kynjanna er svipað. Það er áætl-
að að um 2.000 einstaklingar smitist árlega af klam-
ydíu. Ég hef ekki orðið sérstaklega vör við að um-
ræðan sé „tabú“, frekar að henni sé sleppt því hún
er óþægileg og fólk lifir annað hvort í hugsanahættin-
um „þetta kemur ekki fyrir mig“ eða þá að kynsjúkdóm-
ur sé eitthvað sem hverfi af sjálfu sér. Staðreyndin er hins
vegar sú að klamydíusmit getur verið einkennalaust og
sjúkdómurinn getur leitt til ófrjósemi hjá stúlkum. Það
er ekki flókin lækning við klamydíu, ef hún greinist nógu
snemma, og því ætti fólk ekki að vera hrætt við að
skella sér í skoðun. Kynfæraáblástur og kynfæravört-
ur orsakast af veirum og þeim fylgir ævilangt smit en þó
ekki viðvarandi einkenni. Þessir sjúkdómar geta valdið
óþægindum. Þá eru tengsl milli kynfæravartna og leg-
hálskrabbameins. Enn og aftur, það er einkar mikilvægt
að fara reglulega í skoðun hjá Húð og kyn á Landspít-
alanum í Fossvogi, eða á heilsugæslunni þinni. Smokk-
urinn er eina vörnin gegn kynsjúkdómum og eru stelp-
ur og strákar jafn ábyrg fyrir því að fylgja eftir notkun
hans. Þú berð ábyrgð á sjálfum þér þegar kemur að
kynlífi. Það sést sjaldnast á viðkomandi hvort sá sé
smitaður af kynsjúkdómi og því er það á þína ábyrgð
að krefjast notkunar smokksins og fara reglulega í
kynsjúkdómaskoðun.
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum
um umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Þ
að gerist sjaldan að fréttir
séu sagðar af ástarsambandi
tveggja fyrirsæta en slík frétt
hefur nú farið sem eldur í sinu um
netheima. Ofurfyrirsæturnar Freja
Beha Erichsen og Arizona Muse
staðfestu fyrir stuttu samband
sitt og er líklega óhætt að kalla
þær eitt myndarlegasta parið
í tískuheiminum í dag.
Stúlkurnar eru um þess-
ar mundir á meðal tíu vin-
sælustu fyrirsæta heims. Hin
danska Freja Beha hefur verið
í sýningum allra helstu hönn-
uða heims, prýtt forsíð-
ur i-D, W Magazine
og fjölda Vogue-hefta
auk þess sem bæði
skór og töskur hafa
verið nefndar eftir
henni. Arizona Muse
hefur einnig sýnt
fyrir helstu hönnuði
heims og prýtt ýmsar
forsíður og tvisvar
hefur hún deilt forsíð-
unni ásamt núverandi
kærustu sinni, Freju.
OFURFYRIRSÆTUR OPINBERA SAMBAND SITT:
Ofurparið Arizona
og Freja Beha
Fagurt par Of-
urfyrirsæturn-
ar Freja Beha
og Arizona
Muse hafa opin-
berað samband
sitt. Fréttirnar hafa
vakið mikla at-
hygli innan tísku-
heimsins.
NORDICPHOTOS/GETTY
LÉTTÖL
Sumarið er stutt, njóttu þess alla leið
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 16, sími 553 7300
Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing