Fréttablaðið - 27.07.2011, Qupperneq 2
27. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR2
Guðný Gígja, voru þið ekki
frekar að ylja upp.
„Jú, og við gerðum það með því
að ylja fólki um hjartarætur en ekki
undir uggum.“
Guðný Gígja Skjaldardóttir er í þjóð-
lagadúettinum Ylju, sem hitaði upp fyrir
írska tónlistarmanninn Glen Hansard á
Café Rosenberg í gær.
SPURNING DAGSINS
BANDARÍKIN, AP Christine Lagarde,
forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(AGS), segir að stjórnmálamenn í
Bandaríkjunum þurfi að ná niður-
stöðu um breytingar á skuldaþaki
ríkissjóðs sem allra fyrst. Náist það
ekki sé hætta á að áhrifa þess muni
gæta um allan heim.
Í ræðu sinni á fundi hjá hugveit-
unni Council on Foreign Relations
kallaði Lagarde eftir því að banda-
rískir stjórnmálaleiðtogar sýndu
viðlíka pólitískt hugrekki og evr-
ópskir starfsbræður þeirra hafa
sýnt að undanförnu.
Greiðslufal l eða lækkun
lánshæfismats Bandaríkjanna
vofir yfir ef ekki semst um hækkun
skuldaþaks ríkissjóðs fyrir 2. ágúst
næstkomandi. Segir Lagarde að
slíkt yrði „afar alvarlegur atburð-
ur, ekki aðeins fyrir Bandaríkin
heldur allt fjármálakerfi heimsins“.
Ríkisskuldabréf Bandaríkjanna
eru almennt talin öruggasta fjár-
festing sem völ er á, en skuldabréf
að upphæð 4 þúsund milljarðar
Bandaríkjadala eru í eigu erlendra
ríkissjóða, eins og Kína og Japan,
sem og einkaaðila.
Deilur repúblikana og demó-
krata snúast aðallega um hvort eigi
að hækka skuldaþakið til skamms
tíma eða til lengri tíma.
Mikil harka er hlaupin í málið
eftir að upp úr slitnaði í viðræðum
flokkanna fyrir skemmstu. - þj
Forstjóri AGS uggandi vegna afgreiðslu skuldamála í Bandaríkjunum:
Lýsir eftir pólitísku hugrekki
KNÝR Á UM LAUSN Christine Lagarde,
forstjóri AGS, hvetur til þess að deilur
um skuldaþak Bandaríkjanna verði
leystar sem allra fyrst. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFÉLAGSMÁL Boðað hefur verið
til samverustundar í Norræna
húsinu í dag klukkan 17 vegna
harmleiksins í Noregi á föstudag.
Norræna húsið, Norræna félagið
og Félag Norðmanna á Íslandi
bjóða til samverustundarinnar.
Markmið samkomunnar er að
skapa vettvang fyrir fólk til að
koma saman, eiga hlýja stund og
votta ættingjum og vinum fórn-
arlamba árásanna samúð.
Minningabækur norska sendi-
ráðsins verða til áritunar á
meðan á samverustundinni stend-
ur. Þá verður boðið upp á kaffi og
kökur. - mþl
Norræna húsið síðdegis í dag:
Fólk velkomið í
samverustund
LJÓS GEGN ILLSKU Minningarathöfn
vegna voðaverkanna í Noregi fer fram í
Norræna húsinu í dag.
Stjórnlagaráð hefur lokið vinnu við þrjá af níu köflum stjórnarskrárdraga:
Stinga upp á nýju kosningakerfi
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu óskar eftir að ná
tali af manni, sem að því er virð-
ist kom í veg fyrir líkamsárás í
Mosfellsbæ aðfaranótt laugar-
dagsins 16. júlí.
Málsatvik eru þau að milli
klukkan eitt og tvö um nóttina
voru tveir menn staddir við bens-
ínstöð N1 í Háholti. Annar þeirra
var vopnaður barefli og hugðist
berja hinn. Af því varð ekki en
talið er að þriðji maðurinn, sem
átti þar leið hjá, hafi komið í veg
fyrir líkamsárásina með því að
skerast í leikinn.
Sá er stöðvaði árásina er beðinn
um að hringja í lögregluna í síma
444-1000 eða hafa samband á net-
fangið abending@lrh.is. - jss
Lögreglan leitar að vitni:
Kom í veg fyrir
líkamsárás
STJÓRNLAGARÁÐ Stjórnlagaráð samþykkti í gær lokaút-
gáfur þriggja af níu köflum þeirra stjórnarskrárdraga
sem það hefur unnið að. Ráðið stefnir að því að klára
umræður um þá kafla sem út af standa í dag og skila á
föstudag fullunnum drögum til forsætisráðherra.
Í gær voru samþykktar undirstöður stjórnarskrár-
innar en þeim er ætlað að vera fyrsti kafli nýrrar
stjórnarskrár. Þá var samþykktur nýr mannréttinda-
og náttúrukafli auk kafla um Alþingi og kosningar til
þess.
Í Alþingiskaflanum er fjöldi nýmæla. Má þar nefna
að þar er kveðið á um að atkvæði kjósenda alls staðar
á landinu vegi jafnt. Þá er einnig kveðið á um að kjós-
andi geti með persónukjöri valið frambjóðendur þvert
á lista en þó verði heimilt að mæla fyrir um í lögum að
valið sé einskorðað við kjördæmalista eða landslista
sömu samtaka.
Tíu af hundraði kjósenda munu geta krafist þjóðar-
atkvæðis um lög sem Alþingi hefur samþykkt sam-
kvæmt drögunum. Þá mun tiltekinn hluti kjósenda
geta lagt fram þingmál og frumvörp á Alþingi. Mál-
skotsréttur forseta Íslands er óbreyttur í drögunum.
Í mannréttinda- og náttúrukaflanum koma einnig
fram margar nýjungar. Þar á meðal er ákvæði um
að auðlindir sem ekki eru í einkaeigu séu sameigin-
leg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn geti fengið
þær eða réttindi tengd þeim til eignar eða varanlegra
afnota auk þess sem aldrei megi selja þær eða veð-
setja. Þá er sérstaklega kveðið á um að öllum skuli
tryggður réttur til að lifa með reisn og að börnum
skuli tryggð í lögum sú vernd og umönnum sem vel-
ferð þeirra krefst. Loks er jafnræðisreglan ítarlegri
en í núgildandi stjórnarskrá. - mþl
SKIPULAGSMÁL „Ég held að virðing-
arstiginn hjá bæjaryfirvöldum sé
þannig að eldri borgarar og elsta
hverfið sé lægst í stiganum,“ segir
Hrefna Geirsdóttir, einn íbúa í
Faxatúni í Garðabæ sem ósáttir
eru við vaxandi umsvif í Túna-
hverfinu.
Færanleg kennslustofa var í
fyrrakvöld flutt að leikskólan-
um Bæjarbóli
aftan við hús
Hrefnu. Hún
kveður þetta
koma íbúunum
í opna skjöldu
því þeir hafi
þegar mótmælt
stækkun leik-
skólans og kært
„skipulagsleysi“
á svæðinu til
úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála.
„Jafnvel þó ekki sé búið að
ganga frá skipulagi og þótt búið sé
að birta bænum kæruna er samt
verið að vinna í flutningi þessa
húss. Við bjuggumst við að þeir
myndu stoppa þegar undirstöð-
urnar væru tilbúnar en svo komu
þeir með þetta hús,“ segir Hrefna.
Að sögn Hrefnu eru íbúarnir
afar ósáttir við að ekki hafi enn
verið gengið frá skipulagi Túna-
hverfisins. „Við viljum ekki að það
sé verið að hrúga hér niður kofum
stanslaust. Þetta nýja hús þýðir
einfaldlega meira álag á svæðið;
aukinn hávaða og meiri umferð,“
segir hún.
Meðal þess sem íbúarnir í
Túnahverfi voru ósáttir við var
útleiga veislusalar í húsi skátafé-
lagsins Vífils. Í kjölfar kvart-
ana frá íbúunum hættu skátarn-
ir að leigja út salinn. „Þeir eru
hættir í bili en gráta mikið yfir
því að tekjurnar séu horfnar. Nú
skilst mér að bærinn vilji stækka
lóðina þeirra þannig að hægt sé
að byggja einhvern varnarvegg
svo við heyrum ekki eins mikið
í skemmtanahaldinu. Við teljum
ekki eðilegt að gert sé ráð fyrir
útleigu á veislusölum í íbúða-
hverfi og viljum fá kynningu á
áætluðu skipulagi og samþykkt
skipulag áður en þeir halda áfram
að framkvæma þarna,“ undir-
strikar Hrefna.
Gunnar Einarsson bæjarstjóri
segir framkvæmdirnar við Bæjar-
ból í fullu samræmi við alla skipu-
lagsskilmála og að málið hafi
verið kynnt fyrir íbúum. Hann
undirstrikar að um sé að ræða hús
sem megi fjarlægja ef hið gagn-
stæða komi í ljós. „Það er verið að
bæta við plássum fyrir um tutt-
ugu börn. Það hefur áhrif á um
tuttugu fjölskyldur. Við ætlum að
halda okkar striki,“ segir Gunnar.
Undirbúningur nýs deiliskipu-
lags er að sögn Gunnars í eðlilegu
ferli. Meðal annars sé gert ráð
fyrir útvistarsvæði milli Faxatúns
og leikskólans. „Ég er sannfærður
um að þegar þessu er lokið verður
hverfið komið í enn hærri stand-
ard,“ segir bæjarstjórinn.
gar@frettabladid.is
Saka bæinn um skort
á virðingu við íbúana
Íbúar í Faxatúni í Garðabæ eru vonsviknir yfir því að bæjaryfirvöld hafi flutt
hús að leikskólanum Bæjarbóli þótt vinnu við nýtt skipulag hverfisins sé ólokið.
Bæjarstjórinn segir „standard“ hverfisins munu hækka með nýju deiliskipulagi.
GÍGJA GRÉTARSDÓTTIR OG HREFNA GEIRSDÓTTIR Fjölga á plássum í leikskólanum
Bæjarbóli úr 85 í 110 með færanlegri stofu sem flutt hefur verið að skólanum.
Gígja og Hrefna sem búa í Faxatúni þar við hliðina segja hins vegar nóg komið af
umsvifum í íbúahverfinu þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
GUNNAR
EINARSSON
STJÓRNLAGARÁÐ Lokaútgáfur þriggja af níu köflum stjórnar-
skrárdraga hafa verið samþykktar.
STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson,
innanríkisráðherra, íhugar nú
breytingar á vopnalögum í kjöl-
far árásanna í Noregi. Hann
segir hins
vegar ekki vera
þörf á skipu-
lögðu eftirliti
með skrifum
á internetinu.
Frá þessu var
greint í kvöld-
fréttum Stöðv-
ar 2 í gær.
Ríkisstjórn-
in fundaði með
ríkislögreglustjóra í gær um
hryðjuverkin.
Þá tókst ekki að ná samkomu-
lagi um fjármögnun á byggingu
nýs fangelsis á ríkisstjórnarfund-
inum í gær líkt og stefnt hafði
verið að. Nú er stefnt að ákvörð-
un um málið í ágúst. - mþl
Engin ákvörðun um fangelsi:
Vill taka vopna-
lög til endur-
skoðunar
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
LÖGGÆSLA Lögreglan í Vest-
mannaeyjum mun að vanda við-
hafa öflugt eftirlit fyrir og um
Þjóðhátíðina í Eyjum. Það felst
meðal annars í eftirliti með hugs-
anlegu fíkniefnamisferli og eftir-
liti er varðar velferð ungmenna.
Lögregla vill minna foreldra og
forráðamenn barna á að útivistar-
reglur eru í gildi þessa helgi eins
og aðrar. „Þá er rétt að benda á
að ungmenni yngri en 18 ára eiga
ekkert erindi á útihátíð án þess
að vera í fylgd með fullorðnum.“
- jss
Lögreglan tilkynnir:
Öflugt eftirlit á
Þjóðhátíðinni
ENGLAND Breski snyrtivörufram-
leiðandinn Ilamasqua og útfarar-
þjónustan Leverton & Son í Lond-
on hafa nú tekið höndum saman
um þjónustu sem þau kalla The
Final Act of Self-Expression. Er
hún ætluð öllum sem vilja líta vel
út þegar þeir hafa kvatt hið jarð-
neska líf.
Í fréttatilkynningu frá snyrti-
vöruframleiðandanum segir að
fyrirtækið hvetji fólk til að líta
vel út í lifanda lífi og það eigi
ekki að vera öðruvísi þegar lífið
er kvatt.
Hinsta snyrtingin kostar allt
frá 450 pundum eða sem svarar
rúmlega 85 þúsundum íslenskra
króna. Þjónustan verður ein-
göngu veitt í London. - ibs
Nýstárleg þjónusta í London:
Hinsta snyrting
á 85 þúsund