Fréttablaðið - 27.07.2011, Síða 8

Fréttablaðið - 27.07.2011, Síða 8
27. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR8 HRYÐJUVERKAÁRÁS Í NOREGI Árásirnar í Noregi eru merki um vaxandi reiði í Evrópu gagn- vart múslímskum innflytjendum. Þetta segir leiðtogi ensku varð- deildarinnar, English Defence League, sem eru öfgahægrisam- tök gegn innflytjendum í Bret- landi. Stephen Lennon, leiðtogi sam- takanna, sagðist í gær ekki sam- þykkja aðgerðir ódæðismanns- ins. Hann vísaði því einnig á bug að samtökin hefðu haft eitthvert opinbert samband við Breivik. Hann sagði þó að líta ætti á atburðina í Noregi sem merki um vaxandi reiði. Hann hafi ferðast um Evrópulönd undanfarið og orðið var við vaxandi stuðning við samtök eins og þau sem hann er í forsvari fyrir. - þeb Öfgahægrimenn í Englandi: Árásir merki um vaxandi reiði Útey verður byggð upp á ný eftir hörmungarnar í síðustu viku. Uppbyggingin mun líklega kosta fimmtán til tuttugu milljónir norskra króna, sem eru um 321 til 429 milljónir íslenskra króna. Eskil Pedersen, formaður ungliðahreyfingar Verkamanna- flokksins, segir að ásamt því að byggja staðinn upp verði þeim sem létust reistur minnisvarði þar. Mikil eyðilegging er á eyj- unni, ný hús vantar og græða þarf upp landsvæði. Auðmaður- inn Petter Stordalen hefur þegar gefið ungliðahreyfingunni, sem á eyjuna, fimm milljónir norskra króna til uppbyggingar þar. - þeb Mikil eyðilegging á eyjunni: Útey verður byggð upp á ný Kynntu þér Vörðuna eða pantaðu Vörðuráðgjöf á landsbankinn.is, í næsta útibúi eða í síma 410 4000. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Betri þjónusta í Vörðunni Varðan er vildarþjónusta fyrir viðskiptavini Landsbankans. Markmið þjónustunnar er að ÓSLÓ Lögreglumenn og hundar hófu í gær að rannsaka byggingar og leita líka eftir sprengjuárásina í Ósló. Þar er fólks enn saknað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Anders Behring Breivik er að öllum líkindum geðveikur, að mati Geirs Lippestad lögfræðings hans. Hann telur sig vera bjarg- vætt og vera í stríði gegn lýðræði og múslímum. Lippestad sagði í gær að ódæðismaðurinn yrði mögulega kærður fyrir glæpi gegn mann- kyni auk hryðjuverka. Þá sagði hann að Breivik yrði aldrei frjáls maður á ný. „Hann spurði mig hvort ég væri í áfalli og hvort ég gæti útskýrt fyrir honum hvað gerðist. Hann vissi ekki hvort honum hefði tekist ætlunarverk sitt,“ sagði Lippestad og bætti því við að Breivik hefði spurt sig hversu marga hann hefði drepið. Mikil áhersla er nú lögð á það að bera kennsl á lík þeirra sem fundist hafa. Vonast er til að því geti lokið á morgun, en fjörutíu manns vinna að því auk þess sem enn er leitað að fólki í vatninu við Útey og í byggingum í stjórnar- ráðshverfinu. Nöfn og myndir af mörgum fórnarlömbum hryðjuverkanna hafa verið birtar í norskum fjöl- miðlum. Endanleg tala látinna liggur enn ekki fyrir enda er ekki vitað hversu margra er saknað. Þá eru nítján manns í lífshættu á spítala. Þrettán þeirra urðu fyrir skotum í Útey og sex særðust í sprengjuárásinni í Ósló. Knut Storberget dómsmála- ráðherra greindi frá því í gær að starfsfólks í ráðuneytinu væri saknað. Ráðherra varði einn- ig lögregluna, sem hefur verið nokkuð gagnrýnd vegna þess að það tók 90 mínútur fyrir hana að komast í Útey eftir að skotárásin hófst. Greint hefur verið frá því að ekki hafi verið hægt að nota þyrlu til verksins þar sem allir starfsmenn hafi verið sendir í frí. Starfsemi forsætisráðuneytis- ins hefur verið flutt ótímabundið í húsnæði varnarmálaráðuneytisins en skrifstofur forsætisráðuneytis- ins skemmdust mikið í sprengju- árásinni á föstudag. Ekki er enn vitað hvort rífa þarf bygginguna en hafist hefur verið handa við að rannsaka bygginguna sem og aðrar sem urðu fyrir sprenging- unni. Pólskur efnafræðingur sem handtekinn var um helgina fyrir að hafa selt Breivik efni segir hann hafa virkað eðlilegan á sig. Rannsókn hefur verið hafin á því hvort hann hafi brotið lög með athæfinu. „Hann var mjög venju- legur viðskiptavinur með venju- legar spurningar. Það var ekk- ert skrítið í póstum hans,“ segir Lukasz Mikus. thorunn@frettabladid.is Ódæðismaður telur sig bjargvætt í stríði Lögfræðingur hryðjuverkamannsins í Noregi segir skjólstæðing sinn líklega geðveikan. Skrifstofur ráðuneyta eru óstarfhæfar og óvíst hvort byggingar munu standa. Nítján manns eru enn í lífshættu á spítala eftir árásirnar tvær. Sören Pind, ráðherra innflytj- endamála í Danmörku, baðst í gær afsökunar á ummælum sem hann lét falla á Face-book-síðu sinni. Þar sagði hann öfgahyggju vera að aukast og nefndi hópa danskra aðgerða-sinna í sömu andrá og fjöldamorð Anders Behring Breivik í Noregi, sem hann sagði„djöfullegustu ásjónu“ öfgahyggjunnar. Pind var gagnrýndur mjög fyrir þessi orð, bæði innan Dan- merkur og utan, og svaraði því til að hann hafi alls ekki verið að líkja þessu saman. Því þyki honum afar leitt að einhver hafi lagt þennan skilning í orð hans. - þj Ráðherra biðst afsökunar: Aðgerðasinnar ólíkir Breivik FJAÐRAFOK Danski ráðherrann Sören Pind var gagnrýndur fyrir Facebook- færslu í gær. NORDICPHOTOS/AFP Með stefnuyfirlýsingu sinni birti Anders Behring Breivik dagbók um athæfi sitt vikurnar fyrir hryðjuverkin. Þar lýsir Breivik vinnu sinni og frístundum meðan á smíði sprengjunnar stóð. Meðal þess sem fram kemur í dagbókinni eru lýsingar á því hvernig Breivik var tvisvar kom- inn á fremsta hlunn með að flýja þar sem hann óttaðist að komist hefði upp um sig. Þá kemur fram að hann missti stundum móðinn þegar illa gekk en þá fór hann iðulega út að borða á dýrum veit- ingastað. Hann tók sér jafnframt stundum frí til að horfa á sjón- varpsþætti og horfði til dæmis á öll þrjú kvöld Eurovision í maí. - mþl Dagbækur Anders Breivik: Var tvisvar næstum flúinn BÚGARÐUR BREIVIK Hér smíðaði Anders Breivik sprengjuna sem sprakk í mið- borg Óslóar. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.